Leita í fréttum mbl.is

MEGUM VIÐ TREYSTA ÞVÍ VALGERÐUR?

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra sagði í fréttum útvarps, að fái Framsóknarflokkurinn í kosningunum, fylgi í samræmi við það sem skoðanakannanir hafa verið að sýna sé algjörlega ljóst að flokkurinn verði ekki í ríkisstjórn.  Hún fullyrðir líka að þingflokkurinn sé sammála um þetta.   Er á þetta trúandi Valgerður?

Nú benda kannanir til að Framsóknarflokkurinn stefni í sögulegan ósigur.  Mér finnst það ekki skrýtið þeir eru algjör tímaskekkja í íslenskri pólitík og mikill fyrirgreiðsluflokkur.  Ég tel ásamt fjölmörgum öðrum að tími sé kominn á hvíld hjá bændaflokknum.

Ég er samt ekki alveg tilbúin að trúa þeim þegar þeir halda þessu fram.  Finnst valdalöngun þeirra skína í gegn og ætla að spyrja að leikslokum.  Nú er að bíða þolinmóður og komast að því í fyllingu tímans hvort Framsóknarflokkurinn verði brátt minni eitt.


mbl.is Valgerður: Framsóknarflokkur ekki í ríkisstjórn með svona lítið fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Samt er greinilega ekkert vitað fyrr en talið hefur verið - þeir fá kannski samúðaratkvæði, hver veit?

Edda Agnarsdóttir, 7.5.2007 kl. 20:58

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Valgerður er nú ekki vön að fara með fleipur. Annars er ég að spá í að gefa Árna Johnsen atkvæðið mitt, það fer svo ári mikið í taugarnar á mér hvernig þeir fara með hann "félagar" hans í sjálfstæðisflokknum hér. Hann er skilinn eftir úti í bíl á meðan hinir fara inn á vinnustaði í atkvæðaveiðar. Mér finnst þetta svo hallærislegt að ég á eiginlega ekki til orð í eigu minni. Af hverju var manninum ekki bara sagt strax að þeir vildu ekki hafa hann með - ef þau ætluðu hvort sem er að tríta hann svona? Kona spyr!!! Hneyksluð. En þá man ég það að ég gaf honum molasykur hér í vetur þegar þeir voru uppiskroppa með birgðir. Læt það duga í aumingjagæzku

Hrönn Sigurðardóttir, 7.5.2007 kl. 21:08

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Iss já Árni er nú ekki eðalaumingji.  Hann hverfur ekki heim í kartöflugarðinn ef allt klikkar.  Hann fer heim á óðalið í Eyjum.  Sjmútsj.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.5.2007 kl. 21:42

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hvar hefur Árni verið skilinn eftir út í bíl, vildi gjarnan fá að vita það ??

Ásdís Sigurðardóttir, 7.5.2007 kl. 22:35

5 identicon

Ekki einu sinni dreyma um það kæra fólk að Framsókn skríði ekki undir pilsfaldinn hjá íhaldinu ef að stjórnin "heldur velli" í kosningunum.Skoðannakannanir gefa til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn vinni stórsigur í kosningunum.Þeim mun þó vanta herslumuninn til að vera með hreinann meirihluta og þá kemur sér vel að hafa Framsókn í vasanum.Jókernum sem spilað verður út til þess að skríða upp í 32.þingmenn.Þó svo að stefni í mesta afhroð Framsóknarflokksins frá upphafi þá mun núverandi stjórn engu að síður túlka það sem umboð og eindreginn vilja frá kjósendum um áframhaldandi stjórnarsamstarf þeirra eftir kosningar.Guð hjápi okkur öllum ef sú verður raunin. 

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 23:31

6 Smámynd: Þórbergur Torfason

Bændaflokkur getur hann trauðla talist. ekkert vald hefur hamlað bændum jafnmikið og framsóknarafturhaldið undanfarin 5 kjörtímabil. Ég get ekki skilið hvernig ráðherra bænda getur þagað í hel eignaupptöku á þinglýstum eignum einstaklinga. Undan rótum hvers andskotans er þetta eiginlega runnið og Guðni bara brosir og svarar útí hött eins og honum er einum lagið.

Ég segi bara og tek undir hvatningarorðin. Áfram framsóknarmenn, úr flokknum og ekkert stopp

Þórbergur Torfason, 7.5.2007 kl. 23:32

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já ég held að þú hafir rétt fyrir þér Sigurður.  Þeir troða sér í stjórn ef kostur er. Spurning hvað verður með þessar yfirlýsingar sem þeir eru með nú til að hræða fólk til að kjósa sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.5.2007 kl. 23:32

8 Smámynd: Björg K. Sigurðardóttir

Valgerður er bara að vonast eftir samúðarfylgi og að einhver hugsi sem svo: "Æ best að kjósa þessi grey" 

Halldór Ásgrímsson kom með svona sambærilegar yfirlýsingar fyrir kosningar 2003 og það svínvirkaði hjá honum.

Björg K. Sigurðardóttir, 8.5.2007 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 2985809

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband