Leita í fréttum mbl.is

NEI HÆTTU NÚ JÓNÍNA!

Nú ætlar Jónína Bjartmarz, skv. upplýsingum mbl.is að kæra umfjöllun Kastljóss  um ríkisborgararétt tengdadótturinnar, til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands.  ´

Ég veit ekkert um hvort Jónína vissi af flýtimeðferðinni sem margumrædd umsókn fékk en hún getur varla verið hissa á að hún í þessari stöðu sé krafin svara.  Henni er greinilega stórlega misboðið. 

Ég held að öllum sem vilja sjá sé ljóst að eitthvað er athugavert við afgreiðslu þriggja-manna-nefndarinna á afgreiðslu þessa máls.  Það er hins vegar allsendis óvíst að Jónína hafi gert eitthvað til að hafa haft áhrif á málið.  En að kæra Kastljós fyrir að vinna vinnuna sína finnst mér út í hött.

Nú er mál að linni og slaka, slaka Jónína.


mbl.is Umhverfisráðherra ætlar að kæra umfjöllun til siðanefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að þetta sé ekki "stórlega misboðið " heldur stórleg botnlaus frekja.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2007 kl. 14:39

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Jónína er komin með ------- langt upp á bak í þessu máli.

Hún er búinn að sýna og sanna að hún á ekki heima í stjórnkerfinu.

Jens Sigurjónsson, 4.5.2007 kl. 14:43

3 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kem ég með ljóstustu spurningu ever en hún á bara svo vel við núna..Jónína hvað heldurðu að þú sért eiginlega?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 15:18

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Æ, já, blessuð konan. Það er nú meira hvað á hana er lagt í miðri kosningabaráttunni að þurfa svo líka að bölsótast og djöflast yfir því sem var fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt.

Steingerður Steinarsdóttir, 4.5.2007 kl. 15:19

5 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sumir halda ef þeir kalla nógu oft að svart sé hvítt að það trúi því allir.

Ester Sveinbjarnardóttir, 4.5.2007 kl. 15:37

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já konunni finnst greinilega að hún sé hafin yfir að vera spurð út í málið.  Þetta segi ég án þess að hafa hugmynd um hennar aðild að málinu yfirhöfuð enda ekki hún sem var í nefndinni.  Það liggur auðvitað í hlutarins eðli að hún skuli spurð um aðild sína og það skuli gengið hart eftir svörum.  Jafnræðisreglan var brotin af þriggja manna nefndinni.  Því miður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 15:51

7 identicon

Hún er að kæra af því að hún var ekkert spurð, heldur kom bara botnlaus einræða hjá Helga Seljan sem ræddi ekki við nokkurn mann en tönglaðis á "sínum heimildum" sem hefðu alveg getað verið hundurinn hans, hvað veit ég. Málið er að hann kannaði málið ekki á nokkurn hátt nema því sem hann gaf sér fyrirfram "að hún hafi notað sín pólitísku áhrif" sem enn hefur ekki sannast. Það má leiða líkum að því en enginn er sekur fyrr en sekt er sönnuð!

Brynjar (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 16:38

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er alls ekki að halda því fram að hún hafi haft einhver áhrif á afgreiðslu umsóknarinnar Brynjar.  En fólk í framvarðasveit í pólitík þarf ekki að verða við ef hart er gengið á það þegar svona kemur upp.  Það er hlutverk fjölmiðla að leiða hið sanna í ljós. Hvað sekt eða sakleysi varðar vitum við öll minna en ekki neitt um það mál.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 17:39

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það sakaða hana enginn um neitt.  Hún sá algjörlega sjálf um sakfellinguna, og málefnaþurrðina, og frekjuna.  Fólk sem sér það ekki er að mínu mati annað hvort ekki með fulle fem, eða algjörlega siðlaust sjálft.  Sorrý en það er mín meining og hana nú.  En ég viðurkenni líka að þarna er auðvitað örvænting líka, övænting konu sem sér sína sæng útbreidda í pólitíkinni.    Það er örugglega sárt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2007 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 2985829

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.