Leita í fréttum mbl.is

AF PÚLI, PÓLITÍK OG DRAUMFÖRUM

45

Þetta hefur verið dálítið strembinn dagur en þó skemmtilegur.  Ég hef verið í bloggmaníu í dag en það er ekkert nýtt.  Skrif-andinn alveg á fullu.  Ég er enn lasin en þar sem ég þeyttist út um allt í gær í hjólreiðakaupaerindum þá hefur pestin bara aukist.  Þá er manni kalt og heitt til skiptist, og ég dregst áfram eins og að þrotum komin en það hefst.  Þetta segi ég EKKI í fórnarlambstón.

Ég er búin að þvo, að þrífa, að blogga, að grilla og var meira segja með matargesti.  Þe ég undirbjó og lét húsbandið grilla.  Það var kallt úti og þá sendir maður staðgengil.  Merkilegt hvað það er napurt úti þó það sé bara nærri því hásumar! Segi sonna.

Ég horfði á Steingrím J. í Kastljósinu og var ákaflega ánægð með minn mann, enda rökfastur og málefnalegur.  Ég horfði líka á kosningafundinn frá því í gær í Íslandi í dag og var hreinilega að deyja úr leiðindum.  Hvað er í gangi með þessa kosningafundi hjá sjónvarpsstöðunum?  Í Kastljósinu sitja stjórnarflokkarnir saman og stjónarandstaðan í naumu rými allir í hóp.  Það eina jákvæða sem kemur út úr þessari uppsetningu er að maður verður skolli meðvitaður um að D og B eru saman í liði og þeir vilja vera það áfram. Það er nottla plús.  Á kosningafundi Ísl. í dag er frambjóðendum stillt upp standandi hlið við hlið.  Kyndir ekki beinlínis undir skoðanaskipti enda varla ætlast til þess. Fulltrúar flokkanna eru spurðir hver af öðrum eins og í munnlegu hópprófi. Ég hreinlega var að deyja úr leiðindum. En nú fer þetta að skýrast með kosningarnar.  Ég á erfitt meða að bíða.  Það er þetta með þolinmæðina.  Guð vill ekki gefa mér hana STRAX!

Mig dreymir eins og annað fólk og ég ræð mína drauma sjálf.  Margir draumar eiga sér skýringar úr raunveruleikanum, þe eins og hugurinn sé að vinna úr reynslu daganna á meðan ég sef.  Svo eru hinir draumarnir, sem ég kalla andlega.  Þessir sem eiga sér ekki skýringu í hvunndeginum.  Þá drauma er auðvelt að muna.  Undanfarnar tvær vikur, reglulega, hefur mig dreymt gamla vinkonu.  Við erum ekki í neinu sambandi en ég veit að henni líður vel svo ekki er hægt að útskýra draumana með að hún þurfi aðstoð eða að eitthvað sé að (ælSick), mér er meinilla við hinar typisku draumráðningar (skítur þýðir peninga, tár gleði osfrv.).  Mér þykir undurvænt um þessa konu og hugsa oft til hennar.  Ég minnist þess samt ekki að hafa haft hugann við hana nokkuð lengi.  Mig s.s. dreymir að við séum að tala saman.  Draumarnir eru svo skýrir að það er eins og að horfa á bíómynd.  Við tölum og tölum (af því að við höfum ekki sést utan einu sinni fyrir tilviljun í nokkuð mörg ár) og við reynum að segja frá öllu sem á daga okkar hefur drifið síðan við vorum í þéttu sambandi.  Þetta eru skemmtilegar stundir með skemmtilegri konu.  Skrýtið.  Skýring einhver?  Jæja nú er að fara að lúlla svo ég geti haldið áfram að blogga á morgun.

Gúddnæt!Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

Hm..pólítík.      Ég vinn með konu sem er fædd inn í sjálfstæðisflokkinn. Harðari sjálfstæðismann þekki ég ekki.  Þó að sjálfstæðismenn myndi klúðra eitthverju BIGTIME.. þá myndi hún verja þá fram í rauðan dauðann.

  Ég drakk sjálfstæðisvatn í allan gærdag.  Hún var að útdeila flöskum merktum sjálfstæðisflokknum.   Ég var alltaf að mæta henni og fékk nýja flösku í hvert skipti.  Hvort sem mér líkaði betur eða ver. Vatnið var volgt og ég kvartaði en ég talaði fyrir daufum eyrum..þetta var miklu betra vatn en úr krananum! 

Hvernig væri að hringja í þessa konu sem þig dreymir og hitta hana yfir kaffibolla.   Kannski er eitthvað sem hún þarf að segja þér ( ég hef sterka trú á draumum)

kkv. Ester

Ester Júlía, 4.5.2007 kl. 08:00

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir ráðleggingarnar.  Smútsj.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 08:20

3 Smámynd: Heiða  Þórðar

Æi, þú ert alveg þræl-yndæl Jenný

Heiða Þórðar, 4.5.2007 kl. 08:57

4 Smámynd: Ósk Sigurðardóttir

Sæl Jenný,mæli með Jung fyrir draumaráðningar.....ekki þessar týpísku. Það að þig sé að dreyma gamla vinkonu, getur verið að það sé einhver hlið af sjálfri þér - en ekki vinkonan sjálf ;) Besos, Ósk

Ósk Sigurðardóttir, 4.5.2007 kl. 11:16

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já Ósk þetta er skýring sem ég get lifað með. Mikið rosalega er ég þá hrifin að minni eðlu hlið.  Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 11:34

6 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

kannski finnst þér bara vera kominn tími til að setjast niður með þessari vinkonu þinni og það er að angra þig í undirmeðvitundinni. Jafnvel þó að það sé þögult samkomulag ykkar á milli að ekki sé þörf á því. Segi sona..

Jóna Á. Gísladóttir, 4.5.2007 kl. 12:08

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

annars verð ég að segja þér.. ég fékk svo mikla deisja vú tilfinningu þegar ég byrjaði að lesa þetta innlegg frá þér að ég þurfti að skrolla upp aftur til að skoða dagsetninguna. Var viss um að ég hefði villst inn á gamalt innlegg. Þú hefur sent einhverja skrítna strauma frá þér þegar þú skrifaðir þetta.

Jóna Á. Gísladóttir, 4.5.2007 kl. 12:09

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Skrýtið Jóna veit ekki til þess að ég hafi verið undarleg þegar ég var að skirfa, lol.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.5.2007 kl. 12:13

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ertu ekki alltaf stórundarleg

Jóna Á. Gísladóttir, 4.5.2007 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband