Leita í fréttum mbl.is

KÁRAHNJÚKAHEILKENNIÐ

22

Hver ætlar að taka á sig ábyrgðina á framkomu Impregilo á Íslandi?  Þorsteinn Njálsson, yfirlæknir á heilsugæslustöðinni á Kárahnjúkum segir að listi með nöfnum 180 starfsmanna Impregilo sem veikst hafa á síðustu vikum, hafi verið tekinn af skrifborði hans af starfsmanni heilsugæslunnar (á launaskrá hjá Impregilo)sem hafi svo afhennt hana sínum yfirmönnum.  Ómar R. Valdimarsson, talsmaður fyrirtækisins segir ekkert óeðlilegt við þetta.  Það þarf sérstaka manngerð til að tala fyrir fyrirtæki eins og Impregilo.

Hvað varð um trúnaðinn milli læknis og sjúklings?  Þorsteinn segir réttilega að sjúkdómsupplýsingar og kennitölur hafi ekkert að gera í hendurnar á fyrirtækjum. 

Það er ekki mikið manngildið þarna austur að Kárahnjúkum.


mbl.is Starfsmaður heilsugæslu afhenti Impregilo lista yfir veika starfsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega, og það er einmitt svona atvik sem við erum að vara við í Frjálslyndaflokknum.  Þetta er ekki einsdæmi þótt þetta sé af ljótara taginu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2007 kl. 17:46

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fyrir nú utan það að fólk er fárveikt þarna fyrir austan í stórum stíl vegna ömurlegra aðstæðna í göngunum (sem er grafalvarlegt mál),  hvað hefur tegund veikinnar að gera með þá staðreynd að fyrirtækið virðir ekki trúnað læknis og sjúklings?  Ertu að verja það Kristinn?

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.4.2007 kl. 19:28

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hér er um að ræða fólk sem er flutt inn í miklum mæli, sem ekki er hægt að fylgjast með að fái mannsæmandi aðbúnað.  Það er nákvæmlega það sem við höfum verið að tala um.  Ef þú ætlar að bjóða til veislu, þá bíður þú ákveðnum hópi og gerir ráð fyrir að veisluföngin dugi.  En þú bíður ekki öllu bæjarfélaginu og missir algjörlega kontról yfir aðstæðunum.  Það er að gerast þarna.

Kynntu þér betur það sem stendur í málefnahandbók flokksins og hvað formaðurinn hefur verið að segja, en ekki hvað einstaka menn hafa sagt, eða túlkun óvinveittra manna.  Það gefst alltaf best að hlusta á það sem verið er að segja frænka mín.  'Eg þekki vel til í þessum flokki, betur en þú því ég er í miðstjórn og þekki persónulega flesta þá sem eru í forsvari fyrir flokkinn.  Hef ekki kynnst þeim sem nýlega hafa gengið til liðs við hann.  En stefnuskráin er skýr.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2007 kl. 20:29

4 Smámynd: Ragnheiður

Ég var ánægð með Þorstein Njálsson þegar hann sagðist EKKI ætla að hætta þarna og skilja verkamennina eftir í klóm þessa fyrirtækis.

Ég skil svosem ekki pointið hjá FF enda ekki lesið stefnuskrána, bara séð þessa menn, Magnús og Jón, í fjölmiðlum og get ekki sagt að þeir hafi heillað mig.

Ragnheiður , 26.4.2007 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 2985800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband