Leita í fréttum mbl.is

NÚ BRETTUM VIÐ VINSTRI GRÆN UPP ERMAR

12

Við vinstri græn sláum sjálfum okkur við í hverri skoðanakönnuni (þessum marktæku) á fætur annari.  Það er flott og ég er komin með kosningatitring.  En við fögnum að leikslokum.  Það sem skiptir máli er atkvæðafjöldinn sem kemur upp úr kassanum.  VG er að höfða til fólks fyrir margra hluta sakir.  Vegna kvenfrelsismálanna, fyrir stóriðjustefnu sína, fyrir aðgerðir til handa þeim sem verst hafa farið út úr Mammonstryllingi núverandi ríkisstjórnar og.. og.. og..  Brettum nú upp ermar gott fólk.  Kjósum Vg þ. 12. maí og verðum afgerandi sigurvegarar kosninganna.  Aðeins þannig erum við örugg með að okkar stefna fái einhverju ráðið í komandi ríkisstjórn.

22

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert alveg örugglega góður fulltrúi þíns flokks. Áfram Jenný 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.4.2007 kl. 13:33

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og þú þíns. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.4.2007 kl. 13:39

3 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Hjartanlega sammála Jenný, við verðum að koma VG að stjórnvellinum í vor.

Sædís Ósk Harðardóttir, 14.4.2007 kl. 15:53

4 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hvurslags.... ertu vinstri græn?! kannski feministi líka? hehe, love you too!

Heiða Þórðar, 14.4.2007 kl. 18:52

5 Smámynd: Stefán Stefánsson

Mér sýnist nú að Vinstri Grænir séu nú að byrja að síga niður á við og er ekki hissa.
Þeir sem vilja stöðnun og eymd munu kjósa VG, en þeir sem vilja áframhaldandi  góðæri munu kjósa núverandi ríkisstjórnarflokka.
Við skulum bara sjá hvað kemur upp úr kjörkössunum í vor, en taka samt mark á öllum skoðanakönnunum.. 

Stefán Stefánsson, 14.4.2007 kl. 19:01

6 Smámynd: halkatla

áfram Jenný og co
 

halkatla, 14.4.2007 kl. 20:19

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hafðu það skemmtilegt með VG fólki Jenný mín, þar er svo mikið að góðu fólki eins og alls staðar, sérstaklega frábærar konur. Ég er búin að hafa það svo gott með mínum í Samfó um helgina!  

Edda Agnarsdóttir, 14.4.2007 kl. 20:57

8 Smámynd: Ragnheiður

Ég var aftur að senda þér mail, kíktu í junk mail ef það skilar sér ekki núna.

Kveðja

Ragnheiður , 14.4.2007 kl. 21:00

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Baráttukveðjur!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 14.4.2007 kl. 21:55

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gangi ykkur sem best, því einungis með því að við verðum sem sterkust, V - S - og F þess meiri líkur til að koma á velferðarstjórn til hagsældar fyrir okkur öll.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2007 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband