Leita í fréttum mbl.is

MANSALSHRINGUR UPPRÆTTUR!

656

Lögregla á Spáni hefur upprætt mansalshring á Costa Brava ströndinni á austurhluta Spánar.  Það var Albani sem stýrði hringnum en um 40 konum var haldið í kynlífsþrælkun. Flestar kvennanna komu frá Rússlandi og voru neyddar til að vinna í hóruhúsum og við götuvændi.

Mér verður alltaf jafn illa við þegar maður les fréttir af þessum óhugnaði sem mansal er.  Það blómstar í heiminum í dag.  Það er gleðiefni þegar tekst að uppræta þó ekki sé nema einn mansalshring en mér fallast hendur þegar ég hugsa um þær miljónir kvenna og barna sem búa við þennan hroðalega raunveruleika í heiminum í dag.


mbl.is Mansalshringur upprættur á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Frábært!

Guðríður Haraldsdóttir, 7.4.2007 kl. 17:37

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Manni verður ill af að heyra svona, og ekki síður af barnaklámshringjum. Hvað er að fólki ? Ég bara spyr. Ef eitthvað gæti fengið friðarsinnan mig til að fara á skytterí og fjöldamorð, þá er það ef ég kæmist í þá aðstöðu að útrýma barnaníðingum og svona mansalshrottum.  Þeir eiga að mínu mati ekki tilverurétt í siðuðu samfélagi.  Og hugsið ykkur alla þá sem notfæra sér atferli þessara djöfuls níðinga, og leggja þannig grunninn að ríkidæmi þeirra.  Svei því bara.  Þeir eiga engan tilverurétt nema í dýragörðum, þar sem þeir væru hafðir í búrum til að sýna úrkynjun mannsins.  Ljótt ? já, en ég bara get ekki sagt neitt annað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2007 kl. 17:49

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásthildur ef þú leggst í leiðnangur með haglarann til að útrýma svona skriðdýrum þá kem ég með. Maðurinn er og verður mesta skepnan.

Ásdís Sigurðardóttir, 7.4.2007 kl. 17:58

4 Smámynd: Ibba Sig.

Miðað við málflutning margra, m.a. hér á blogginu, þá hljótum við nú að hafa fundið um 40 eintök í viðbót af hamingjusömum hórum. 

Ibba Sig., 7.4.2007 kl. 18:00

5 Smámynd: bara Maja...

hroðalegt að heyra að svona sé til  kem með í leiðangurinn, ekki spurning !

bara Maja..., 7.4.2007 kl. 18:31

6 Smámynd: Sylvía

ég treysti á ystu myrkur sem Jesús talar um... what goes around comes around.

Sylvía , 7.4.2007 kl. 19:11

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Veistu ég var ekkert að hafa mig í frammi, líka eins gott með húsbandið svona veikt, ekki skil ég hann einan eftir heima, og með I lfokkin þá var þett náttl. bara góður djókur,  hehe

Ásdís Sigurðardóttir, 7.4.2007 kl. 20:24

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að það sé í mannanna höndum að taka á svona málum og ég trúi ekki á fordæmingu út í hin ystu myrkur.  Það er rétt að "what goes around, comes around" en auðvitað eigum við nútímamanneskjur engu að eira fyrr en öll þessi hroðalega meðferð á konum og börnum heyrir sögunni til.  Fínt er að byrja hérna heima.  Við sjáum nú hversu erfitt það er með alla kveinstafina sem vaða uppi ef einhver minnist á að banna tam. klám.  Ibba það er svo rétt hjá þér að þarna myndu margir telja að 40 hamingjusamar hórur hefðu verið uppgötvaðar. Sjitt

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 20:29

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

ð..ef það er það sem við viljum. Punktur.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 23:37

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þarna fór góð færsla fyrir lítið.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 23:38

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það sem ég vildi segja í sem styttstum orðum er.......það sem þú leggur áherslu á magnast...það sem er gott verður oft útundan og þessvegna hefur það minna gildi. Vöndum það sem við komum á framfæri...og gerum meira úr þvi sem gott er. Það hefur mun meira gildi þegar upp er staðið en hitt. Punktur.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 23:40

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Katrín veistu ég botna ekki í hvað þú ert að meina.  Eigum við ekki að tala um það sem miður fer af því að þá muni það magnast?  Kannske er kommentakerfið eitthvað bilað.  Þú kannske svarar ef þú sérð þetta?

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 23:43

13 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ég sé þetta og svara.

Ef maður vill alltaf vekja athygli á því sem miður er og fer...er maður að beina orku fólks í þá átt..óttinn tekur völd og óhugnaður og ýtir undir það sem maður vill ekki. Fólk fer meira að einbeita sér að því öllu. Þess vegna tel ég betra að ýta undir það sem er að fara vel og beina orku fólks í þá átt ef að er það sem fólk vill. Svo verður bara hver að velja fyrir sig hvað hann vill hafa mest hugfast..og í hvaða átt hann vill setja sínar hugsýnir í. Og orku. Ég hef bara Þá trú að það geri engan greinarmun að eltast við það sem fer miður..ég trúi á að það vrikist betur sem maður hugsar um að jákvæðni og í þá átt sem maður setur orku í. Þessvegna trúi ég svo mikið á góðar fréttir og að við einblínum á bestur útkomuna. Og fréttirnar eru vondar vegna Þess að þær beina huganum alltaf í vonlausustu áttina. Sem gerir okkur vonlausari. Það eru trilljón jákvæðir hlutir að gerast í henni veröld...sprottnir af góðum hug og vilja....og fá meiri orku ef við getum séð þá líka. Spurning hverju maður stendur með. Fréttirnar eiga það hinsvegar til að hundsa þá.....það þýðir samt ekki að þeir séu ekki líka að gerast. Alltaf spurning um hvað fær fylgi hverju sinni og hvaðan.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.4.2007 kl. 23:55

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú hikar samt ekki að vera sjálfskipaður gagnrýnandi á minni síðu og þér að það velkomið.  Gleðilega páska og látum þessu nú lokið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.4.2007 kl. 00:27

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Hey þú baðst um ústkýringu og svar og ég er ekkert að vera sjálfskipuð neitt....bara að útskýra hvað ég meinti í framhaldi af þinni beiðni?

Katrín veistu ég botna ekki í hvað þú ert að meina.  Eigum við ekki að tala um það sem miður fer af því að þá muni það magnast?  Kannske er kommentakerfið eitthvað bilað.  Þú kannske svarar ef þú sérð þetta? 

Sorry ef ég misskildi þessa beiðni eitthvað. Fannst það bara kurteisi að verða við henni.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.4.2007 kl. 00:39

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Katrín ok þá skiljum við hver aðra þú verður í jákvæðninni ég verð í því að gera heiminn neikvæðan og vondan. Við erum svona þessir feministar. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.4.2007 kl. 00:56

17 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér finnst þetta nú vera frekar asnalegt svar Jenný mín.....Þú biður um útskýringu sem þú færð en kýst að lesa eitthvað mjög neikvætt úr því. Eina sem ég var að reyna að leggja áherslu á er að það er gott að vekja jákvæða athygli á því sem er  gott að gerast. Og spyrja spurninga um hversu gott það geti verið að beina athyglinni að því neikvæða. Thats all!!!!Ekki lesa eitthvað annað út úr því.

Hélt þú hefðir horft á myndina og skilið um hvað hún væri. Hvernig neikvætt dregur að sér neikvætt. Og hvers vegna gott væri að einblína á það sem maður vill. Ef ég er eitthvað að misskilja illilega...þá bara biðst ég innilega afsökunar....

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 8.4.2007 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2985798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband