Miðvikudagur, 4. apríl 2007
"VINKONUHITTINGUR"
Ég var í Hagkaup í Smáralind áðan og verslaði frísklega fyrir páskana. Það er ekki í frásögur færandi en þegar ég kom út úr Hagkaup, hitti ég gamla vinkonu sem ég hef ekki séð lengi. Hún virtist glöð að sjá mig, og ég hana að sjálfsögðu og þetta leit á tímabili út fyrir að verða kærleiksfullur "hittingur". Eftir að hafa faðmast smá ýtti hún mér frá sér til að sjá mig betur og virti mig vel fyrir sér. Hún vinkonan (hér eftir kölluð kerlingin) sagði við mig, (hér eftir kölluð ég fíflið) eftirfarandi:
Kerl.: Mikið rosalega ertu mjó kona! Ertu veik, ég meina alvarlega veik (orðin frussuðust út úr henni og ég varð rennblaut í framan)
Ég fíflið: Já er búin að vera lasin og komin með sykursýki en ég er bara eins og ég á að mér að vera í holdum. Hef alltaf verið grönn. (Sagði henni ekki frá alkasögunni og bjórfitunni sem gerði mig eins og fíl í laginu. Hún hefði hnigið í ómegin).
Kerl.: Ég meina það Jenny, þú ert ÓGEÐSLEGA HORUÐ. Ertu með anorxiu? (þetta var sagt í stereo og skýr og gjallandi rödd hennar ómaði um Smáralindina). Fólk teygði fram álkuna til að bera viðrinið augum og heyra betur.
Ég fíflið: Ekki tala svona hátt kona, ég er bara eins og ég á að mér að vera og auðvitað er ég ekki í neinu sjálfsvelti. (Éf. orðin eldrauð í framan og farin að horfa álút til jarðar). Heyrðu ...... mín, er ekki allt gott að frétta af þér og þínum?
Kerl.: Jú, jú en hvar fékkstu þennan leðurjakka?
Ég fíflið: Ha leðurjakka jú Sara keypti hann í London handa mér. Finnst þér hann ekki flottur?
Kerl.: Flottur jú ef þú værir 16 ára konur á okkar aldri eiga ekki að klæða sig svona og svo ertu í gallabuxum til að kóróna gelgjustælana. (Nú er farin að safnast áhorfendahópur í kringum okkur og mig langar til að deyja). Hún áfram á innsoginu: Það eru komnir gráir geislar í hárið á þér Guð en krúttlegt! (Ji konan á það til að vera jákvæð. Ég sé áhorfendahópinn stækka er að hugsa um að flytja okkur yfir í Vetrargarðinn svo við fáum nóg pláss fyrir alla).
Ég fíflið (að niðurlotum komin) Nú verð ég að hraða mér, Einar bíður eftir mér.
Kerl.: Jiiiii (það hvín í helvítinu) ertu enn gift þeim lúser? Sumir ætla aldrei að læra.
Ég fíflið: Heyrðu ..... mikið djöfull ertu viðbjóðslega feit, ljót, leiðinleg, ófullnægð og bitur. Farðu þangað sem sólin ekki skín kerlingarálka (sagt ofurblíðlega nottla)
Hún þagnaði ég rauk í burtu og hafði tapað. Missti mig við þessa konu sem ég mundi allt í einu að mér hafði aldrei líkað við. Hún var hundleiðinleg í fallin spýtan og enn leiðinlegri í brennibolta. Algjör asni.
Ég heyrði áhorfendur klappa hressilega þegar ég gekk út úr bévítans verslunarmiðstöðinni.
Mín kæra "vinkona" vonandi ertu að hnusa á blogginu. Ég vinka þér héðan.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál, Ferðalög, Kvikmyndir, Lífstíll, Menning og listir, Sjónvarp, Tónlist, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:41 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
hahahahahahahahaha þetta er ótrúlega fyndið.
smjúts
Hrönn Sigurðardóttir, 4.4.2007 kl. 16:41
Hm gerðist þetta í alvörunni Hrönnsla eða ekki? Það er nú spurningin.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2007 kl. 17:37
Segðu mér gerðist þetta í alvöru??' 'Eg er sosem vön alskonar athugasemdum þar sem ég hjóla á mótórhjóli ,,,jamm kona á mínum aldri,er vön að seigja að það sé seinni gelgjan
Rannveig H, 4.4.2007 kl. 18:34
Sem betur fer fært í stílinn. Örlítið sannleikskorn þó.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2007 kl. 18:43
Vá, ég hef aldrei heyrt meiri dónaskap! Þetta er örugglega ein af þessum konum sem notar orðið HREINSKILNI óspart til að afsaka ruddaganginn í sér. Svei mér ef blóðþrýstingurinn hækkaði ekki í mér fyrir þína hönd. Maður heldur sko með bloggvinunum sínum. Var þetta kannski 4. apríl-gabb hjá þér?
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 4.4.2007 kl. 18:43
Eins og að ofan segir og ég skrifaði um leið og þú varst að skrifa þína athugasemd, þá tek ég mér að sjálfsögðu skáldaleyfi en samt er þó sannleikur í frásögninni. Úr fleiri en einni átt. Ég átti svona vinkonu.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2007 kl. 18:45
humpr var ber að ofan.. nei segi sonna
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2007 kl. 21:19
HaHaHa, þetta er ótrúlega flott skrifað hjá þér, versta er að við eigum örugglega allar svona "vinkonur" er það ekki ? og langar alltaf til að koma svona flott út úr hittingnum... ég ætla að hafa þetta í huga næst þegar ég rekst á "vinkonuna mína"
bara Maja..., 4.4.2007 kl. 21:41
Stórsniðugt. Kvitt fyrir mig.
Ragnar Bjarnason, 4.4.2007 kl. 21:52
hahahaa
Ólafur fannberg, 4.4.2007 kl. 22:10
vá ég var gapandi allan tímann
halkatla, 4.4.2007 kl. 23:04
Haha..frábært hvernig þú tæklaðir þetta . Skemmtileg lesning ,sérstaklega síðari hlutinn .
Ester Júlía, 4.4.2007 kl. 23:16
Mér finnst þú hafa sýnt þessaari Bel#$%#"$ alltof mikið af þolinmæði, þú átt hrós skilið fyrir það. ekki hefði ég enst allt þetta raus í kerlingarálftinni.
Sigfús Sigurþórsson., 5.4.2007 kl. 00:57
Þú hlýtur hreinlega að hafa litið rosalega vel út, ég heyri þarna voðalegan abbóhljóm. Svona þegar fólk ræður ekki við sig, er óánægt með sjálft sig, og á erfitt með að sætta sig við að aðrir séu ekki þannig. Svo ............................... hehehehe en þetta er skemmtilega sett í stílinn Jenný mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2007 kl. 08:50
Djö, djö... af hverju þurftir þú að segja frá skáldaleyfinu? Ég var alveg farin að lifa mig inn í þetta, trúði hverju orði og sá þig fyrir mér tággranna í veeeeery low cut gallabuxum með g-strenginn uppúr og með hip og kúl húsbandið á arminum.
Svo er þetta bara meira og minna lygi?
Skammastu þín kona að fara svona með mann.
Ibba Sig., 5.4.2007 kl. 12:40
Var reyndar í jakkanum og buxunum sem voru ekki neitt rosalega "lowcut" reyndar og með hipp og kúl manninn í kallfæri en það er nottla of hversdaglegt að skrifa bara um sollis hversdagsleika. Þannig að ég ýkti smá þessa vinkonu mína. Hitti hana reyndar og hún var svona líka rosalega "jákvæð".
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.4.2007 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.