Færsluflokkur: Spil og leikir
Mánudagur, 25. júní 2007
FRÉTTIR ÁRSINS
Frétt árisins eða því sem næst, hlýtur að vera þessi sem hér er fyrir neðan og birtist í Mogganum í dag. Fimm villur á Flórída boðnar fyrir lágt verð.
Alveg var ég "clueless" yfir að heilar fimm villur í þessu "smáríki" sem Florída er skuli vera þar til sölu. Ég ríf upp kortið og kaupi eina. Hvar fæ ég upplýsingar? Ó tilviljun, íslensk fasteignasala, Garðatorg heitir hún. Sniðugt.
Segið svo að það sé gúrka!
![]() |
Fimm villur á Flórída boðnar fyrir lágt verð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 25. júní 2007
GERLABARIR
Ég elska grænmeti. Ferskt grænmeti og ég hef stóran hluta hverrar máltíðar með það að innihaldi. Fyrst eftir að salatbarirnir komu í stórmarkaðina var ég í himnaríki. Þar gat ég keypt mér sneiddan rauðlauk, sveppi, tómata og rifið kál og gulrætur og ég veit ekki hvað. Enn fæ ég vatn í munninn við tilhugsunina um gott salat með allskonar árstíðargrænmeti og bölvaðir gerlabarirnir eru þeir einu barir sem enn trekkja hvað mig varðar. Þegar ég er að því komin að taka þann beina breiða að grænmetinu, þe að þurfa ekki að sneiða, rífa, tæta og saxa sjálf, man ég eftir öllum sem með mis hreinar lúkur hafa látið vaða (hafiði ekki séð liðið sem nælir sér í smá, á þessum börum, snæðir í boði hússins eða þannig?) ofan í grænmetið og ég hörfa, alla leiðina aftur inn í grænmetisdeildina og læt mig dreyma um grænmetismann. Óje.. þetta datt mér nú svona í hug í þessari gúrkutíð.
Mánudagur, 25. júní 2007
AÐ LÆRA AÐ SITJA Á FÖTUNNI
Ég lærði mest og best að sitja á fötunni í Vinnuskólanum eða unglingavinnunni hér margt fyrir löngu. Við fótum með rútu upp í Heiðmörk með nesti og unnum við að bera skarna á plöntur. Réttara sagt áttum við stelpurnar að vinna við það en staðreynd málsins var sú að við fylltum fyrstu fötu morgunsins af skarna, bárum hana yfir næsta hól, í hvarf frá verkstjóra, settumst og reyktum, kjöftuðum og fífluðumst góða stund, náðum í aðra, hurfum á ný og svona gekk þetta hálft sumarið. Hinn helminginn þóttumst við vera að snyrta Laugardalinn en hurfum þar líka reglulega yfir daginn. Við vorum hysknir stafsmenn Reykjavíkurborgar, á skítalaunum og fengum vitnisburð í stíl við vinnuframlag. En mikið rosalega var gaman.
![]() |
Arfaplokk og fræðsla í Vinnuskólanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 25. júní 2007
GELGJUSKEIÐ HIÐ SÍÐARI
Þessa dagana er ég á "þungu" gelgjuskeiði númer tvö í lífi mínu. Ég hef ullað og grett mig framan í húsbandið, systur mínar, nágrannana og börnin mín, ef ekki hefur verið gengið samstundis að vilja mínum. Ég hef tuggið Pan-tyggjó (12 plötur í einu) blásið kúlur, málað neglurnar á mér svartar, grátið yfir bíómyndum Tarentinos (vegna angurværðar þeirra), skellt símanum á fólk oftar en ég kæri mig um að muna og borðað hamborgara í öll mál og þrátt fyrir það verið í stanslausri megrun (er að segja að ég sé feit).
Ok,ok,ok.. róleg ég er að ýkja en ég er á einhverskonar gelgju þessa dagana og það kemur fram í furðulegum svefnvenjum. Vakna eins og stálsleginn berklasjúklingur á morgnana, reyki, drekk sódavatn, hangi á blogginu og er heilbrigð með afbrigðum. Svo skellur á einhver þreyta, ég fer aftur í bólið og sef eins og saklaust barn fram yfir hádegi og missi af helling í heiminum á meðan og má hafa mig alla við að láta eins og ég hafi verið að allan morguninn. Sko við heimilisstörf krakkar mínir, lífið gengur ekki bara út á bloggheima (*ræskj*) ég á mér LÍF þessa dagana utan þeirra (jeræt).
Kannski er um að kenna þeirri leiðu staðreynd að ég er með hita, beinverki og arfamikinn hósta. Æi það er ekki eins dramatiskt og alls ekki efni í færslu.
Þetta verður flokkað undir "satt og logið".
Er sem sagt vöknuð, komin á vaktina og til í allskonar óknytti, enda unglingur á ferð.
Lofjúgæs!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 25. júní 2007
ORÐ
Ég elska orð. Sem er auðvitað borðliggjandi enda væri ég einskis nýt án þeirra, eins og flestir. Ég tala mikið og blogga mikið. Ég held samt að með árunum tali ég ívið minna en áður og hlusti pínulítið betur, ætla rétt að vona það.
Öll orð eiga rétt á sér því þau færa í búning einhverja reynslu, lýsingu á tilfinningu eða geðslagi, þess sem þau talar. Sum orð eru þannig í laginu samt, að mér finnst þau smá vond. Það verkjar pínu undan þeim, þau geta verið særandi eða misboðið manni á einhvern hátt.
Smá dæmi um orð og hugtök sem meiða mig, ýmist af tilfinninga- eða fagurfræðilegum ástæðum:
aumingi (vó hvað það er vont að vera kallaður aumingi)
mella og gleðikona (veit ekki hvort er verra)
vinan (gerir mig morðóða þegar "ungir" menn á óræðum aldri, sem ég þekki ekki, kalla mig því)
Gitmo (gælunafn á pyntingarbúðum Bandaríkjamanna á Kúbu. Talað um þennan viðbjóð eins og gamlan vin)
litli maðurinn, (litlir í samanburði við hvern? Stórmennin sem víkja huganum einstaka sinnum að hinum almenna manni, sjálfum sér til upphefðar?)
þeir sem minna mega sín (hef örugglega notað þennan sjálf, lýsing á hinum breiða massa sem er ekki á vildarlista bankanna og er stöðugt verið að taka í afturendann af stjórnvöldum)
íslenska útrásin (forðið ykkur, hver sem betur getur, með peningana úr landi og hæfileikana líka, að því gefnu að þeir séu fyrir hendi, að sjálfsögðu).
rétt handan við hornið (ofnotaðasti frasi í fjölmiðlum, fyrr og síðar. Sigmundur Ernir byrjaði á þessu í bríari og frasanum uxu vængir)
lágvöruverslun (halló, við erum á Íslandi þar sem matarinnkaup kosta hvítuna úr augunum á okkur. Köllum það ögnskáraverðsverslanir)
lúser (útlent og vont, notað til að niðurlægja fólk og stimpla það sem vonlaust)
kvóti (nauðsynlegt orð en er að eilífuamen komið með þýðinguna "óréttlæti dauðans" í mínum huga og það þrátt fyrir að ég hafi aldrei veitt svo mikið sem eitt kvikindi úr sjó eða vatni)
Læt þetta duga í bili. Ég er svo andlaus enda ferð í þvottahúsið framundan og algjör óvissa ríkjandi með status á dýralífi í neðra.
Síjúgæs!
Mánudagur, 25. júní 2007
FYRIRBÆRIÐ FARIÐ ÚT
Trú mín á mannkyninu hefur eflst þúsundfalt. Fyrirbærið sem trónað hefur í þriðja sæti vinsældarlista Moggans er horfið með öllu. Ég hef ekki minnst á þetta mál einu orði, finnst það svo ógeðfellt, en nú hefur ritstjórn Moggans tekið á málinu og það held ég að sé það eina rétta, eins og málum er komið.
Mér léttir stórlega.
Mánudagur, 25. júní 2007
KYNNI TIL SÖGUNNAR NOKKRAR BLOGGVINKONUR
..sem allar reyndar, eru eðalbloggarar. Ég les þær af mikilli áfergju og fæ alltaf mikið út úr lestrinum. Þær eru ólíkar, allar skemmtilegar, fræðandi og fyndnar. Ég vil að sjálfsögðu deila með mér af því sem er gott og bendi hér á nokkrar. Meira seinna því af nógu er að taka.
www.gurrihar.blog.is Gurrí er kattarkona, býr í Himnaríki og er blaðakona á milli þess sem hún bloggar. Hún er andstyggilega fyndin. Muhahahaha
www.anno.blog.is Anna bloggar um allt milli himins og jarðar. Hún er vel heima í mörgum málefnum, launfyndin og með meirapróf á músik og menntamál. Anna er ein af þeim sem manni finnst maður alltaf hafa þekkt.
www.asdisomar.blog.is Er jákvæður og yndislegur bloggari sem lætur sér fátt mannlegt óviðkomandi. Konan er megatöffari og með hjarta úr gulli. Missi aldrei úr færslu, hún bjargar deginum.
www.skessa.blog.is Er kona með ákveðnar skoðanir, hamhleypa og engann vegin skaplaus, sér skemmtilega vinkla á málefnum og er alltaf til í að endurskoða sjálfa sig. Svo fjandi flott.
www.asthildurcesil.blog.is Er fulltrúi Vestfirðinga. Hún bloggar um pólitík, daglegga lífið fyrir vestan og tekur myndir af heimabænum þannig að maður finnur lyktina þaðan.
www.evathor.blog.is Er húsmóðurtöffari með meirapróf á kaldhæðni. Hún er þrusu skemmtileg og nú um stundir er hún fulltrúi okkar í Amó.
www.jonaa.blog.is Er alhliða bloggari og verðandi rithöfundur. Hún er brjálæðislega fyndin, tilfinningarík og má skammast sín fyrir hvað hún kaus. Ég elska konuna.
www.lauola.blog.is Hörkutöffarinn Laufey sem er svo leikinn með pennann. Hún skrifar flottar færslur og ég er viss um að einn daginn á hún eftir að vera í forystu í pólitíkinni, vinstra megin að sjálfsögðu og taka á stærstu meinum samfélagsins.
www.hross.blog.is Er flottur bloggari sem bloggar um allskonar. Hún er líka persónuleg í sínum pistlum og ekki hrædd að vísa í hvunndaginn sinn. Ég passa vel upp á að missa ekki af henni, fremur en öllum hinum reyndar.
Jesús minn. Út í hvað er ég komin. Það er svo erfitt að velja úr. Ég tek fleiri næst. Það sem skiptir máli er að sem flestir fái að kynnast bloggvinkonum mínum. Ég er að gera ykkur greiða góðir gestir og gangandi, sko stóran GREIÐA.
Skiljið blómin eftir á leiðinni út.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Sunnudagur, 24. júní 2007
HÁLF MÁTTLAUST GLEÐIEFNI
..að einkadans skuli bannaður frá og með 1. júlí n.k. Auðvitað fagna ég því að það skuli ekki lengur leyfilegt að stunda vafasama gjörninga í hálf-lokuðu rými en alveg er ég viss um að eigendur nektardansstaða eru búnir að finna sér leið kringum þetta eins og áður hefur verið gert þegar reynt hefur verið að koma í veg fyrir vændi og misnotkun á þeim konum sem á þessum klúbbum starfa. Ég æti trúað að þessi forvinna hafi gengið undir vinnuheitinu "hvernig taka á löggjafann í afturendann" eða eitthvað í þeim dúr.
![]() |
Einkadansinn líður undir lok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 24. júní 2007
ENN Á NÝ..
.. leggur amma-Brynja land undir fót og fer til London til að passa hann Oliver okkar á meðan mamman og pabbinn fara til Spánar í brúðkaup Hebu og Toms. Með ömmu-Brynju fer Gunnur, stóra frænkan hans Olivers og saman ætlar þetta tríó að taka London með stormi.
Amma-Brynja er bjargvætturinn minn í myndamálum af krúttmolanum í London. Hún er búin að lofa mér að smella af í gríð og erg. Amma-Brynja þú ert bara flottust.
Granny-J
Sunnudagur, 24. júní 2007
ENN EIN FJÖLDAÁRÁSIN..
..um helgina og enn einn þolandinn liggur höfuðkúpubrotinn á gjörgæslu LHS. Árásin var gerð í íbúð við Hjaltabakka. Ég er reyndar orðlaus, það er enginn endir á djöfulganginum. Ríkir blóðugt stríð hérna í borginni?
![]() |
Sex í yfirheyrslu eftir fjöldaárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.8.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 2988120
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr