Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
ÚLLEN DÚLLEN DOFF
Nú hafa Danir áttað sig á því að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir nærri helminginn af þeim morðum sem framin hafa verið af afbrýðisömum eiginmönnum og kærustum þar í landi hefði lögregla haft sérfræðinga með þjálfun í því að greina á milli innhaldslausra og raunverulegra hótana. Þetta er staðhæfting öryggiráðgjafans Henrik Bramsborg hjá PSF. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Ég veit satt að segja ekki hvort ég á að hlægja eða gráta. Er vitneskjan um heimilisofbeldi ekki meiri en þetta? Eftir áratuga langa fræðslustarfsemi kvennasamtaka á Norðurlöndunum erum við þá ekki komin lengra? Hvernig væri fyrir dönsku lögguna að byrja að hlusta? Það er talað um að þekkja "innhaldslausar" hótanir frá þeim raunverulegu! Hótun er hótun og hlýtur alltaf að takast alvarlega. Ég hélt það alla vega. Það má vera að einhverjir sérfræðingar geti greint þarna á milli og þeir geti þá samkvæmt þessu fullyrt um hvaða hótunum beri að taka mark á og hverjum ekki. Guð hjálpi þeim ef það klikkar og enn ein konan fellur í valinn. Er það ekki svo ef við verðum fyrir líflátshótunum ókunnugra, að þeim sé ætíð tekið alvarlega? Ég ælta nú rétt að reikna með því. Það sama á að gilda um hótanir eiginmanna og kærasta. Það hefur sýnt sig vera banvænt að gera það ekki.
Henrik Bramsborg segir: "Verði þetta gert af snjöllum einstaklingi með reynslu af slíkum málum, tel ég að það megi koma í veg fyrir 25% eða allt að helmingi morða þar sem fyrrum maki á í hlut". Svo mörg voru þau orð.
Það ber að fagna því, að sjálfsögðu þegar yfirvöld vakna til meðvitundar um heimilisofbeldi. En ég hélt að það væri almenn vitneskja nú orðið að svona hótanir verður alltaf að taka alvarlega en ekki nota eitthvað úllendúllendoff-kerfi við hverju skuli brugðist og hverju ekki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
ROKKAÐ TIL VINSTRI
Nú er bara að hvetja alla tónlistarunnendur að drífa sig á Grandrokk annað kvöld þar sem Ung Vinstri-Græn bjóða upp á dúndurmúsík. Það kostar ekki inn og mér finnst tilvalið að fólk komi og hiti sig upp fyrir sumarið í góðum félagsskap.
Góða skemmtun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
Í BLÁUM SKUGGA
Jæja þá er það komið á hreint. Jakob Frímann verður í 1. sæti á lista Íslandshreyfingarinnar í Suðurkjördæmi. Ég á kannski ekki að vera hissa yfir því að Jakob skuli finna sér farveg hjá hægri flokki en það kom mér á óvart að þessi eðalkrati færi yfir til Ómars og co. Mér hefur fundist eins og það væri einhver þingmannsörvænting að hrjá Jakob. Eins og hann gæti ekki unað sér þar sem hann væri ekki í öruggu sæti. Auðvitað vilja allir hafa áhrif en það er hægt að hafa þau án þess að sitja á þingi. Nú stendur Jakob, pólitískt í bláum skugga Íslandshreyfingar. Verði honum að góðu.
Íslandshreyfingin hefur á sér einhvern kverúlantablæ og ég get ekki alveg sett fingur á hvað það er sem gerir þá að svona ótrúverðugum valkost að mínu mati. Samt er margt ágætis fólk þarna innan um og saman við.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
ZERO LANDSFUNDUR EN FYLGIÐ EYKST
Kona hoppar nú bara hæð sína úr gleði. Ný skoðanakönnun um fylgi flokkanna í Suðurkjördæmi sýnir að VG bæta við sig mestu fylgi frá síðustu kosningum. VG fengi tvo þingmenn en við fengum engan í síðustu kosningum.
Ég hélt að það kæmi einhver niðursveifla næstu dagana eftir landsfundi Sf og Sjálfstæðisflokks. Það virðist ekki vera fyrir utan þessa skoðanakönnun sem birt var um helgina. Ég óska sjálfri mér og öðrum kjósendum VG innilega til hamingju og er viss um að við verðum stóru sigurvegararnir í vor.
Jíbbískibbí
![]() |
VG og Sjálfstæðiflokkur auka fylgi sitt í Suðurkjördæmi á kostnað Framsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
FRÁ ÖÐRUM SJÓNARHÓL
Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera hefur sent út á ensku nú í hálft ár og náð miklu áhorfi í Evrópu, hluta Asíu, Ástralíu og jafnvel í Ísrael. Það er þó merkilegt að Bandaríkjamenn segja ekki markað fyrir sjónvarpsstöðina þar en forráðamenn stöðvarinnar segja að ástæðan sé af pólitískum orsökum. Það er gott að það bætist í fjölmiðlaflóruna. Það er ekki verra að geta séð hlutina frá fleiri en einum sjónarhól. Flott framtak hjá Al-Jazeera.
![]() |
Mikið áhorf á Al-Jazeera í Evrópu og Asíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
FATABRJÁLÆÐI
Mig dreymir um fataherbergi. Án gríns. Þrátt fyrir að vera algjörlega laus við löngun til að eignast hluti svona almennt, eins og einbýlishús, jeppa, sumarbústað, hús á Spáni, flatskjá, verðbréf og skartgripi þá er ég haldin þeim "ljóta" galla að vera fatasjúk. Þetta er fjölskyldusjúkdómur. Mínar sex systur eru eins. Við vorum ekki gamlar þegar við fórum að gera út á London. Þá á ég við að einhverjar okkar fóru til London í vikudvöl eða svo og keyptum og keyptum og keyptum á okkur sjálfar og þær sem heima sátu. Þrátt fyrir aukinn þroska á flestum sviðum (hm) þá situr þessi löstur eftir og dafnar eins og púkinn á fjósbitanum. Fataskápurinn er að springa úr ofneyslu. Þegar ég opna hann hrynja flíkurnar í fangið á mér, nær allar svartar. Jakkar, kjólar, peysur, bolir, skyrtur og pils, allt svart. Maðurinn minn sér engan mun á fötunum mínum. Hann sér ekki einu sinni mun á Prada og H&M.
Einhver klæðagúrú sagði mér einhvertímann að hver einasta kona væri FATALAUS ætti hún ekki "þann litla svarta" þe svartan kjól sem hægt er að nota við flest fínni tækifæri. Ég hef tekið manninn bókstaflega og þegar ég fór í gegnum fataskápinn minn um daginn komst ég að raun um að ég á sex brúklega "litla svarta". tveimur hef ég ekki einu sinni haft tækifæri til að klæðast þar sem félagslífi mínu er viðbrugðið eftir að ég varð alsgáð. Ég sé mig ekki spranga inn á AA-fundi íklædd sparikjól og háum hælum (hm) ekki þar fyrir að á slíkum samkomum er víðsýnin í hávegum höfð og enginn myndi kippa sér upp við það.
Dætur mínar þrjár hafa fengið fatasýkina með móðurmjólkinni. Sýnu verst haldin er þó Maysan mín, miðbarnið sem býr í London og vinnur fyrir verslanirnar "The Arrogant Cat". Hún keypti sér íbúð með fataherbergi!! Það er ekki verið að láta sig dreyma neitt. Bara framkvæmt. Sóttin er sem sagt ekki í rénum þarna í heimsborginni og áður en hún flutti út seldi hún gestum og gangandi stóran hluta klæða sinna fyrir góða upphæð. Hún er búin að endurnýja það allt fyrir lifandis löngu.
Helga mín var að koma frá Boston. Hún keypti tvennar peysur handa móður sinni. Hún veit sem er að ekkert gleður móðurhjartað meira en eitt eða tvö fataplögg þegar um veraldlega hluti er að ræða. Saran mín fer ekki út fyrir landsteinana án þess að kaupa eitthvað handa fataóðri móður sinni. Ég tek það fram að dætur mínar eru ferðaglaðar konur!!
Það er náttúrulega skömm að því að vinstri konan og feministinn sé svona hégómagjörn. Mytan er að við séum allar mussukerlingar í tréklossum, með svart-hvítt sjónvarp. Hehe. Það leiðréttist hér með.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
ÁVÍSUN Á BLÓÐBAÐ
Það hlýtur að vera kominn tími á að Bandaríkjamenn fari að endurskoða lög um skotvopnaeign. Í Virginiu þar sem blóðbaðið í skólanum var í gær eru ein vægugstu lögin í Bandaríkjunum. Þó ekki þau vægustu. Virginíubúar sem orðnir eru 18 ára og eru ekki á lista yfir skráða afbrotamenn geta keypt sér skotvopn. Til að kaupa byssu þarf ekki byssuleyfi en á slíks leyfis er BARA hægt að kaupa eina byssu á mánuði.
Byssueign í USA er löngu orðið gífulegt vandamál og óheyrilegur fjöldi fólks, þar með talin börn, deyja eða slasast alvarlega á hverju ári af völdum þeirra. Það hlýtur að vera komið mál að linni. Þessi aftaka í skólanum í gær er sú stærsta í sögu Bandaríkjanna og hreint ótrúlegt að byssumaðurinn hafi haft tóm til að myrða allt þetta fólk.
Byssur ættu hvergi að vera aðgengilegar fyrir borgarana. Hvorki í USA né annars staðar. Verst er að heyra um börnin sem komast í skotvopn foreldra sinna, verða fyrir voðaskotum eða verða félögum sínum að bana í eintómum barnaskap.
Vonandi verður hert á þessum lögunum núna eftir þennan hroðalega atburð.
![]() |
Lög um skotvopnaeign í Virginíu ein þau vægustu í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
SUMARDAGURINN FYRSTI.
Svei mér þá, það er að bresta á með Sumardeginum fyrsta. Reyndar er staðsetning þessa dags á almanakinu alveg út úr kortinu en ég veit að sakvæmt dagatalinu munu vera jafndægur á vori þann dag. Rökrétt væri þá að þessi dagur héti einfaldlega jafndægur að vori. Hvern er verið að blekkja? Ég man eftir sjálfri mér á upphlut, í sportsokkum og titrandi af kulda. Samt var spennan algjör. Þetta var æfing fyrir 17. júní sem var uppáhaldsdagurinn minn fyrir utan aðfangadag. Á Sumardaginn fyrsta í bernsku minni voru sölutjöld í Lækjargötu þar sem mátti kaupa pylsur, popp og blöðrur. Íslenski fáninn var þar líka í hávegum hafður. Í minningunni var mér bókstaflega alltaf kallt. Ef ekki var hríðarbylur eða frost þá forringdi svo að ég kom gegnvot heim. Við þræluðum okkur undantekningalaus í skrúðgönguna. Amma mín var eins og björgunarsveit fyrir mig og mínar vinkonur og hafði heitt súkkulaði tilbúið þegar við hrísluðumst heim úr bæjarferðinni allar príma kanditatar fyrir blöðrubólgu. Íslendingar eru bjartsýnir þegar beðið er eftir sumrinu. Það veit náttúrulega hver maður að sumarið kemur í júní og stundum ef heppnin er með um miðjan maí. Við búum á Íslandi og ekki við öðru að búast. En við getum látið okkur hlakka til.
Ég veit um eina konu sem fer ekki fet á Sumardaginn fyrsta sem verður nk. fimmtudag. Hins vegar ætla ég að æða í bæinn þ. 1. júní nk. með flagg og blöðru og halda upp á sumarið þannig að eftir verið tekið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 16. apríl 2007
AÐ HAFA BARA NAMMI Í MATINN
Hefur einhver sem heimsækir þessa síðu orðið var við að matur hafi lækkað eftir 1. mars? Verðlagseftirlit ASÍ hefur fylgst með því undanfarið hvernig lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum skila sér út í verðlag til neytanda. Þarna er greinilega ekki feitan gölt að flá fyrir okkur. Ég verð ekki vör við neina hækkun. Alveg sama tómahljóðið í buddunni eftir matarinnkaupin.
Kannski væri sniðugt að fara að ráðum spaugstofunnar og hafa sælgæti í hvert mál.
![]() |
Lækkun á matvælaverði skilar sér misjafnlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Mánudagur, 16. apríl 2007
BIRTIR UPP UM SÍÐIR
Það er yfirlýst stefna þessarar ritsjórnar að vera glöð í sinni þrátt fyrir oft neikvæðar fréttir og aðra óáran sem aftur og aftur skella á höfði þessarar ágætu stjórnar. Sumir dagar eru erfiðari en aðrir. Í raun eru flestir dagar góðir en einstaka, bara einstaka dagur má falla sem fyrst í gleymskunnar dá. Ég vaknaði örg. Bálill reyndar sem er fremur sjaldgæft í mínu tilfelli. Nú orðið er ég alltaf svo glöð yfir nýjum degi. En hvað um það í morgun var ég illa pirruð um leið og ég opnaði augun. Ég veit enn þá ekki hvers vegna en það sem af er þessum degi hef ég haft allt á hornum mér. Ég held hins vegar, að ein af ástæðunum sé að ég hékk fram á smátímana í stað þess að fara að sofa á eðlilega snemma. Ég fór að hugsa um fortíðina, fólk og atburði og varð æst og pirruð. Það leiddi til þess að ég gat ekki sofnað og var andvaka lengi nætur. Svo vakna ég svona. Ég hef hummað fram af mér eðlileg samskipti það sem af er degi, finnst ekki að maður eiga að bjóða upp á skemmtiatriði í formi fýlu og pirrings. Ég hef legið yfir AA-fræðunum til að reyna að koma mér í jafnvægi. Þetta er að skila sér svona smátt og smátt.
Það er að bresta á með sólskini núna bæði í geðslagi og fyrir utan gluggann minn. Þvílíkur léttir. Ég er svo fegin að hafa ekki þurft að hringja í Skattinn, Orkuveituna, Ríkisútvarpið og Tryggingastofnun ríkissins. Mér skilst að þar sé óliðlegasta fólkið í símsvörun. Hm... ég er heppin kona.
Abanibiaboniba
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
draumur
-
jonaa
-
hronnsig
-
larahanna
-
skessa
-
eddaagn
-
amman
-
annabjo
-
annambragadottir
-
annaragna
-
asthildurcesil
-
kolgrima
-
birnan
-
bjarnihardar
-
brjann
-
brylli
-
christinemarie
-
danjensen
-
lillagud
-
disadora
-
einari
-
einarorneinars
-
emm
-
estro
-
evabenz
-
fifudalur
-
garun
-
gelgjan
-
gunnarggg
-
halkatla
-
halo
-
hildurhelgas
-
heidah
-
helgamagg
-
hildigunnurr
-
iaprag
-
hlynurh
-
hugarfluga
-
hugsadu
-
ibbasig
-
katrinsnaeholm
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jara
-
jensgud
-
katlaa
-
krummasnill
-
krissa1
-
lehamzdr
-
ktomm
-
laufeywaage
-
lauola
-
lindalinnet
-
madamhex
-
maggij
-
majaogco
-
mariakr
-
markusth
-
meistarinn
-
motta
-
nimbus
-
olinathorv
-
pollyanna
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ringarinn
-
rosa
-
roslin
-
saedis
-
sailor
-
salkaforlag
-
skordalsbrynja
-
skrifa
-
snar
-
soley
-
steingerdur
-
steinnhaf
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sunnadora
-
svetlana
-
thuridurbjorg
-
tibet
-
tigercopper
-
toshiki
-
unns
-
valgerdurhalldorsdottir
-
wonderwoman
-
vefritid
-
vest1
-
bidda
-
zeriaph
-
killjoker
-
sisvet
-
gudrununa
-
dora61
-
possi
-
gelin
-
silfri
-
jyderupdrottningin
-
gretaulfs
-
sibba
-
baldvinj
-
stjaniloga
-
bokakaffid
-
kreppukallinn
-
jonerr
-
gerdurpalma112
-
adhdblogg
-
astafeb
-
snjolfur
-
haddih
-
brell
-
reisubokkristinar
-
little-miss-silly
-
baldis
-
olofdebont
-
kikka
-
jarnar
-
thorolfursfinnsson
-
birnast
-
vrkristinn
-
leifur
-
astroblog
-
bjarkey
-
manisvans
-
siggisig
-
nordurljos1
-
gunnaraxel
-
ragnar73
-
sij
-
kreppu
-
runirokk
-
gotusmidjan
-
dorje
-
slembra
-
skari60
-
must
-
fhg
-
aevark
-
fridaeyland
-
hedinnb
-
cakedecoideas
-
taraji
-
audurproppe
-
kollakvaran
-
finni
-
arnaringvarsson
-
samstada
-
drum
-
gretarogoskar
-
tbs
-
vistarband
-
valdivest
-
fingurbjorg
-
gustichef
-
skulablogg
-
andreskrist
-
fasteignir
-
rognvaldurthor
-
helgatho
-
gullfoss
-
bailey
-
jennystefania
-
gattin
-
annaandulka
-
ansy
-
gumson
-
berg65
-
bjarnimax
-
brahim
-
elin
-
gudlaugbjork
-
dramb
-
gudrunkatrin
-
hvilberg
-
himmalingur
-
ingaragna
-
naflaskodun
-
kiddirokk
-
sigurborgkrhannesdottir
-
joklamus
-
stjornlagathing
-
saemi7
-
unnurgkr