Miðvikudagur, 25. febrúar 2009
Úr landi með helvítið
Þegar ég týndi síðustu krónuna upp úr buddunni í gær í búðinni þá hugsaði ég einmitt; nú hlýtur verðbólgan að vera þetta 17,6%.
Jeræt.
Ekki að ég finni ekki fyrir verðbólgunni, matarverðinu og klárum erfiðleikum í listinni við að ná endum saman.
Og kann ég auðmönnum, fyrrverandi ríkisstjórn, Seðlabanka og öðrum ábyrgum aðilum engar sérstakar þakkir fyrir.
Ég er að Davíðsjafna hérna.
Ég ætla að blogga um þennan Steve Cosser nörd.
Hvern fjandann er þessi hrokagikkur að vilja upp á dekk og kaupa okkur Íslendinga á brunaútsölu?
Þegar ég horfði á hann í fréttunum í gærkvöldi leið mér eins og ég hafi dottið inn í mafíumynd af B-tegund.
Hann var að leita að uppruna orðrómsins um að hann gengi erinda auðmanna.
Svo ætlar hann að grípa til aðgerða gagnvart þeim.
Ætli að hann geri þeim tilboð sem þeir geta ekki hafnað?
Hann sem á íbúð í London sem kostar meira en allir sukkbarónar Íslands saman lagt.
Er ekki dásamlegt að fá svona fólk til að kaupa Ísland?
Er ekki hægt að henda þessu viðrini úr landi?
Og læsa kyrfilega á eftir honum.
En fjandans verðbólgan er 17,6% eins og ég fann á mér.
Djöfull sem ég er mögnuð.
Verðbólga mælist 17,6% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 16
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 79
- Frá upphafi: 2987147
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 78
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Hef ekki heyrt um þennan gæja, hvað vill hann upp á dekk hér? Nei Jenný ég vil ekki fá fleiri útrásargaura, hvorki erlenda né íslenska, við höfum alveg nóg með þá sem þegar eru fyrir hendi hér. Fyrst þurfum við að tukta þá til, áður en við tökum að okkur fleiri skíthæla.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2009 kl. 11:47
Þetta er ekki útrásargaur, þetta er innrásargaur. Nú verður það nýtt trend á Íslandi.
Tómas Örn (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 11:55
Það þarf að rannsaka þennan gaur. Hvernig hann auðgaðist. Hverjir eru hans "umboðsmenn" hér á landi o.sv.frv..
Mér fannst hann ekki trúverðugur og hef það á tilfinningunni að hann sé útsendari "hrægamma", sem ráðast á lönd í fjárhagskröggum.
Sigrún Jónsdóttir, 25.2.2009 kl. 12:09
já, bönnum þá sem þér eru ekki þóknanlegir. Þú ert sjálf-yfirlýstur kommi, þú hlýtur þá að eiga við að hérna skuli ríkja sama stefna og í gamla Sovét; þeir sem ekki eru yfirvaldinu þóknanlegir (og yfirvaldið skal vera kommúnistaflokkurinn sem er sjálfskipaður fulltrúi alþýðunnar) eru sendir úr landi eða í "endurmenntun".
"Er ekki hægt að henda þessu viðrini úr landi?" spyrð þú?
Jú, kannski að skaðræðisskepnurnar sem eru í stjórnarráðinu geri nákvæmlega það. Sjái til þess að hér verðum við einangruð og án samskipta við umheiminn, utan árlegs kaupfars sem kemur með brýnustu nauðsynjar til landsins.
Viltu ekki líka festa í lög að engir aðrir flokkar megi komast til valda nema VG? Svo að þjóðin slysist nú ekki til að kjósa yfir sig Sjálfstæðisflokkinn aftur? Af því að þú ert svo mikið fulltrúi alþýðunnar?
Hvað með að banna alla gagnrýni á VG? Því slíkt grefur undan samheldni í þjóðfélaginu og ýfir öldurnar, nokkuð sem er andstætt almannahagsmunum? Er það ekki?
Svona slefandi örvitar sem vilja banna útlendingum að fjárfesta á Íslandi, hundelta "útrásarvíkingana" og hirða af þeim það sem þeir eiga eftir og banna fólki almennt að hagnast í framtíðinni eiga ekkert erindi upp á dekk á Íslandi. Úrtölufólkið sem bankar upp á hverju einasta heimili til að ganga úr skugga um hvort örugglega séu ekki allir að vorkenna sjálfum sér alla daga. Liðleskjurnar sem eru að reyna að gera aumingjaskap að tískufyrirbæri. Iðjuleysingjarnir sem hafa ákveðið að fyrst þeir sjálfir hafa ekki dug til að leggja sín lóð á vogarskálarnar, þá skuli þeirra eigin aumingjaskapur verða "normið" í þjóðfélaginu. Mikið óskaplega þarf að ýta þessum væluskjóðum, þessum illa upplýstu smáborgurum, úr vegi svo hægt sé að byggja upp einhverja framtíð hér á landi. Því VG og strumparnir sem þar flækjast hver fyrir öðrum boða ekkert annað en efnahagslega eyðimörk. Eins og þú svo skemmtilega gefur okkur dæmi um.
Getum við ekki losnað við þessi viðrini úr landi? Gæti einhver spurt
Liberal, 25.2.2009 kl. 12:58
Liberal: Þegiðu og bloggaðu heima hjá þér. Ef þú gætir ekki orðbragðs þá loka ég á þig. Þú verður að fara að læra að slaka á.
Ég endurtek: Sendum Cosser heim.
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.2.2009 kl. 13:02
árni aðals (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 13:45
Já, sammála. Þessi lofthani á ekkert með að vera að hóta almannarómi hér. Getum við ekki búsáhaldað hann burt úr landinu?
ingibjörg magnúsdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 13:50
Hitler gat nú haldið rosalegar ræður og það langlokur, en hann var ekki svona rosalega heimskur eins og Liberal. Davíð Oddson getur kastað sprengjum út og suður, en hann er ekki svona heimskur eins og Liberal, sem er samflokksmönnum sínum í Sjálfstæðisflokknum til skammar. ,, liðleskjurnar sem eru að reyna að gera aumingjaskap að tískufyrirbæri ". Svona málflutningur hefur tæplega sést síðan í Þýskalandi Hitlers. Liberal, þú ert Sjálfstæðisflokknum og mömmu þinni til háborinnar skammar og ég held að þú sért að farast úr minnimáttarkend !!!
Stefán (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 14:14
Jenný mín
Atlso, að reka svona uglu úr partínu okkar.
Gaurinn ætti að blogga pínu ljúfar, svona eins og moi.
Annars er það svo, með gutta eins og þennann from down under, að menn vita ekkert hverjum húsbónda þeir eru að þjóna, mena auðvitað Græðginni í sjálfum sér.
Burt með fíflið og biðjum hann segja öðrum hrægömmum í GB að við tökum ,,vel" á móti þeim, berjum þá leiftursnöggt í hausinn með næstliggjandi bokku.
Luv is all around.
Mibbó
Bjarni Kjartansson, 25.2.2009 kl. 14:19
Það er bara að kaupa skyr og rúgbrauð í öll mál. Láta bara útlenska draslið vera. Er ekki verðbólgan komin upp í 20%. Einn auðmaðurinn enn, þetta er svo mikið mont að hálfa væri nú nóg. Er ekki öllum sama um þennan karl kjána. Og hvað er hann að kaupa. Hvessvegna er ekki buið frista og ég segi aftir frista eigur auðmanna.
Ég vil byðja almenning að senda tölvupóst til Jóhönnu sem fyrst sem finnst á Alþingis vefslóð. Hvern andskotans er verið að bíða eftir. Að kyrnar komi heim. Ég segji nú ekki bara annað.
Anna , 25.2.2009 kl. 14:24
Jenný, þér er frjálst að loka á mig - ritskoðun er jú aðalsmerki sannra vinstrimanna.
En fram að þeim tíma þá ætla ég að tjá mig þar sem ég vil, um það sem ég vil, þegar ég vil. Án svívirðinga (læt það vinstrimönnum eftir). Ef ég særi þig eða einhvern sem les, þá biðst ég velvirðingar á því. Ef ég móðga þig eða einhvern sem les, þá verður að hafa það.
Ef þér líkar illa að fá andstæðar skoðanir á síðuna þína, þá skaltu bara fara að dæmi margra annara bloggara (Stefán Fr. Stefánsson þar fremstur í flokki) og hefja stórtæka ritskoðun á síðunni þinni.
Einhver þarf að koma með andmæli við þessa botnlausu halelúja messu sem þú stendur fyrir á hverjum degi.
Far í friði :)
Liberal, 25.2.2009 kl. 18:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.