Mánudagur, 26. janúar 2009
Jóhanna útgjaldaformælandi
Sjálfstæðismenn eru fúlir, ef fer sem horfir þá verða þeir í stjórnarandstöðu á komandi mánuðum og í fyrsta sinn í 17 ár.
Ég held að Sjálfstæðismenn geti ekki séð sig öðru vísi en við völd.
Ég er alveg viss um að þeir treysta engum við stjórn nema sjálfum sér, líka þegar þeir hafa misst algjörlega niður um sig eins og núna.
Svekkelsi íhaldsins hefur birst í fjölmörgum viðtölum við þá í dag og þeir fara hamförum gagnvart Samfylkingunni.
Geir reyndi þó að vera málefnalegur í Kastljósinu og tókst það bærilega á köflum.
En vafasamasta hrós sem ég hef heyrt lengi kom frá honum í kvöld þegar hann var spurður álits á Jóhönnu Sigurðardóttur.
Honum finnst hún mæt kona.
Hún er hins vegar "útgjaldaformælandi". Formælandi mikilla útgjalda og ekki niðurskurðarkona.
Ég held að þetta sé eins vafasamt og það getur orðið úr munni íhaldsmanns.
Jóhanna er sem sagt eyðsluseggur á opinbert fé.
Það hefur íhaldið verið líka.
Bara í vitlausum geira.
Geir minn, reyndu að hemja sárindin.
Kannski er betra að vera ekki að reyna að vera málefnalegur í umræðu um fólk sem maður er pirraður út í.
Það endar með hreinni formælingu.
Bíða aðeins með það bara.
Útgjaldaformælandi.
Ég dey.
Bauð Ingibjörgu að verða fjármálaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:30 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 2987152
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 70
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
úú já þetta var sko skondið viðtal. er ekki frá því að Geir hafi haft yfir sér landsföðurlegt yfirbragð: "ekki bruðla með peninga vinan" og forræðishyggjan í algleymingi. strax búinn að gleyma af hverju sjallarnir eru svona óvinsælir. tí hí hí - get ekki annað en brosað
, 26.1.2009 kl. 22:41
Athugaðu eitt, það verður ekki auðvelt verk að takast á við gerspillta embættismannakerfið sem sjálfstæðisflokkurinn er búinn að koma sér upp.
Það er ekki bara seðlabankinn sem þarf nýtt fólk, það þarf að hreinsa út út mörgum ráðuneytum og stofnunum hjá hinu opinbera.
Hver sem það er sem ætlar að taka við stjórninni , þá þarf hinn sami að vara siga á þessum sjálfstæðisgæðingum !
JR (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 22:42
Formælandi - mótmælandi.... þetta er allt skríll!
Ég var að koma af borgarfundi! Það er afar vægt til orða tekið að sjallar séu fúlir! Afar vægt.........
Hrönn Sigurðardóttir, 26.1.2009 kl. 22:46
Já forgangsröðun útgjalda á eftir að breytast, sem betur fer.....verst að Geir og Co. hafa ekki skilið eftir mikinn pening til útgjalda Ekki mikið kjöt í kötlunum núna.
En vonandi finnur Jóhanna einhverjar útgjaldaholur sem hægt er að moka yfir án þess að þjóðinni blæði.....sé t.d. fyrir mér að þegar bankastjórarnir 3 í Seðló hafa verið reknir, þá verði bara ráðinn 1 í staðinn fyrir þá.
Sigrún Jónsdóttir, 26.1.2009 kl. 22:49
mmmm síðast þegar Jóhanna var ráðherra þá bjó hún til kerfi sem hét félagslega húnsnæðiskerfið. Þar sat fólk fast inni, borgaði alltof mikið fyrir húsnæðið, kerfið algerlega misnotað og hún klikkaði út með því að segjast vera stolt af kerfinu.
Nei takk ekki Jóhönnu en sammála að þessi orð Geirs voru ekki viðeigandi einfaldlega vegna þess að félagsmálaráðuneytið verður alltaf "útgjaldaformælandi" miðað við hvernig á að reka ráðuneytið.
Rúnar Már Bragason, 26.1.2009 kl. 23:00
Aldrei hef ég nú séð Jóku Djóku formæla ríkizútgjöldum ?
Steingrímur Helgason, 26.1.2009 kl. 23:15
En... tókuð þið eftir orðalaginu hjá Geirharði þegar hann var spurður hvort það kæmi til greina að sjálfstæðisflokkurinn tæki þátt í þjóðstjórn?
"Við skorumst auðvitað ekki undan slíku, við erum tilbúnir að vera með , og Í FORYSTU" (leturbreyting mín).
Það var algjörlega augljóst hjá honum, og þetta hef ég raunar heyrt frá fleira D fólki, að það er algjörlega óhugsandi fyrir það fólk (D fólkið) að einhverjir aðrir en það ráði!
Einar Indriðason, 27.1.2009 kl. 00:09
Það sem Geir átti við að er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti það sem eitt af skilyrðum fyrir lánveitingu til Íslands að farið yrði í hundruð milljarða niðurskurð í heilbrigðis, félags og menntakerfi.
Hvernig ætlar Jóhanna að framkvæma það?
Helga Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 00:36
Helga ríkisstjórnin fullyrti að AGS hefði engin skilyrði sett sem væru of sársaukafull!!
Hólmdís Hjartardóttir, 27.1.2009 kl. 01:53
..engin áðgengileg skilyrði
Hólmdís Hjartardóttir, 27.1.2009 kl. 01:54
almáttugur....óaðgengileg
Hólmdís Hjartardóttir, 27.1.2009 kl. 01:55
Jamlfó, ég sé þig ítrekað skrifa "Ég dey"
...ertu búin að fletta vinkonu okkar með leiða-baklandið upp í íslendingabók.
Ef þú ert einn af ná-nustu ættingjum hennar þá er þetta líklega rétt hjá þér.
Vignir (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 02:21
Útgjaldaformælandi....
Jónína Dúadóttir, 27.1.2009 kl. 06:28
Það er rosalega vont að vera útgjaldafíkin(n) á annarra kostnað, t.d. skrifa upp á innistæðulausa víxla fyrir fjárglæframenn í útlöndum -og láta þá svo falla á heila, svona frekar fámenna þjóð.
Myndi Jóhanna gera það ?
Hildur Helga Sigurðardóttir, 27.1.2009 kl. 07:49
knús og kveðjur já og góðan daginn.....
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.1.2009 kl. 07:59
Vignir: Hún var með stíft bakland konan, ekki leitt.
Ég er búin að týna aðgangsorðinu inn á bókina en þú misskilur dauðakallið hjá mér.
Ég sakna ömmu.
Múha.
HH: Segðu og nei ég held að Jóhanna sé ekki týpan með ávísanaheftið fyrir útrásarhetjurnar.
Kristbjörg: Sparaðu þér stóru orðin. Ég er fullkomlega meðvituð um að þetta er hundraða daga stjórn. En hundrað dagar geta skipt sköpum eins og berlega hefur komið í ljós.
Hefur andskotann ekkert með persónudýrkun að gera.
Takk öll fyrir þátttökuna.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2009 kl. 09:05
Þetta voru ótrúleg ummæli.
Nei það er ekki sama í hverju almannafé er eytt, eða öllu heldur í hvað það er notað. Jóhanna er víst ábyggilega tilbúin til að NOTA það í almannaþágu, - í stað þess að EYÐA því í vitleysu, eins og gróðærismenn gerðu.
Laufey B Waage, 27.1.2009 kl. 09:05
Jóhanna er sú minnst bruðlandi ráðherra sem Ísland hefur alið (berið saman hvað ólympíuferð Þorgerðar Katrínar var miðað við ferð Jóhönnu á ólympíuleika fatlaðra). Hún ver félagslega kerfið en er á engan hátt talsmaður neinna órökstuddra útgjalda. Ég held því að hún sé fyrirmyndarmanneskja til að leiða þá forgangsröðun sem þarf að fara í í ríkisrekstrinum. Ég treysti henni til að byrja á bruðlinu og verja félagslega kerfið í lengstu lög.
Héðinn Björnsson, 27.1.2009 kl. 13:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.