Mánudagur, 22. desember 2008
Allir edrú í boðinu
Þetta er skömm og svívirða. Jólabjórinn hefur hækkað um helming á milli ára.
Hvernig á maður að halda heimili búandi við þetta okurverð á þessari mjög svo nauðsynlegu neysluvöru?
Ha?
Við tökum þennan aftur.
Mikið rosalega er ég glöð að vera ekki í bjór- og vínkaupunum.
Þegar ég drakk sem mest um árið, sko fyrir meðferð þannig að það fari ekkert á milli mála, þá var ansi erfitt að láta líta út fyrir að ég væri hófdrykkjumanneskja farandi alltaf í sama útibú ÁTVR.
Þess vegna fór ég í dragtina, setti hnút í hárið. Málaði mig eins og motherfucker og fór á hælana.
Svo hríslaðist ég um ríkið og týndi í körfu.
Ég var viss um að það stæði utan á mér að ég væri bjórþambandi gardínubytta sem ætti ekki annars úrkosta en að ná mér í mitt stass sjálf þrátt fyrir að vera skjálfandi á beinunum.
Þess vegna átti ég það til að gera mig upptekna og ábyrgðarfulla í framan, dingla leðurhanskanum léttilega framan í fésið á kassanum og segja frosinni égvinnífjármálageiranumogsýnduértilhlýðilegavirðinguröddu: Ætlarðu svo að gefa mér nótu -vinur.
Sko, kjarni máls er sá að ölkum er held ég nokkuð sama hvað efnið kostar, að minnsta kosti minnist ég þess ekki að hafa velt mér upp úr því. Það eina sem truflar þá er að verða mögulega uppiskroppa.
Þau sem drekka í hófi mega alveg verða pirruð yfir þessu, ég skil þá, en það er samt ekki endir og upphaf alls hvort sem er hjá þeim.
Niðurstaða: Ég er edrú, ég kaupi ekki áfengi og þeir sem ég þekki gera það í svo litlum mæli að það skiptir ekki höfuðmáli. Mér gæti því ekki staðið meira á sama.
Ekki frekar en að ég skenkti því þanka hvað bjór og rauðvín kostaði á meðan ég drakk. Kommon þetta var nauðsynjavara í mínum augum.
Mér er hins vegar ekki sama um drápsverðið á matvöru og mér finnst eins og allt hafi hækkað um MEIRA en helming í þeirri deild frá því í fyrra.
Allir edrú í boðinu.
Fyrir jól, fyrir jól, fyrir jól.
Jólabjórinn hækkaði um allt að helming | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Jólafár, Matur og drykkur, Viðskipti og fjármál | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 4
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 73
- Frá upphafi: 2987154
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Mér er líka persónulega sama um hækkun á áfengi ... en mér er ekki sama um að hækkunin skuli hafa áhrif á húsnæðislánið mitt til hækkunar! Bara bjánalegt þetta kerfi.
Annars bara jólaknús í bæinn!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.12.2008 kl. 16:21
Ekki hef ég nú áhyggjur af því hversu dýr dropinn er orðinn. Meiri áhyggjur af matnum enda með marga munna að metta.
Keypti Special K morgunkorn í gær (reyndar setti Ibbi það í körfuna, án þess að kíkja á verðið) og það kostaði um 800 krónur. Já sæll! Ekki langt síðan maður var að borga svona 360 kall fyrir svona pakka.
Ibba Sig. (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 16:24
þess vegna er um að gera að brugga sem mest sjálfur. eingöngu til að halda aftur af verðbólgunni, sjáiði
Brjánn Guðjónsson, 22.12.2008 kl. 16:26
Ein regla á mínu heimili: Jól og áramót eru tími allra í fjölskyldunni og þá sérstaklega yndislegu barna okkar, því er vín ekki á boðstólnum á þessum tíma á mínu heimili.
Kveðja á þig Jenný mín! Bara sæt í Moggadruslunni um helgina!
Himmalingur, 22.12.2008 kl. 16:40
Ég held persónulega að flestir líti þessa hækkun neikvæðum augum. Því eins og Fullur bendir réttilega á þá hækkar þessi hækkun húsnæðislánin okkar alveg burtséð hvort maður drekkur eða ei. En ég veit allavega um einn þjóðfélagshóp sem núna sér fram á gósentíð og fagnar þessari hækkun. Það eru landasalar að sjálfsögðu. Nú hætta unglingarnir að hafa efni á áfenginu í ríkinu og versla fremur við landasalana. Það er nefnilega regin misskilningur að með hækkun áfengisverðs sé hægt að draga úr áfengisneyslu þeirra sem ekki er æskilegt að drekki. Staðreyndin er sú að þeir aðilar munu ávalt verða sér út um áfengi með einum eða öðrum hætti. Hækkun á áfengisverði gerir því ríkið aðeins óálitlegri kost.
Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 22.12.2008 kl. 16:53
Neysla á ólöglegum vímugjöfum mun líka aukast - sem og smygl á bæði áfengi og þessum efnum. Tek undir að hækkunin hefur engin áhrif á drykkjuna.
Björgvin R. Leifsson, 22.12.2008 kl. 17:09
Skemmtilegur pistill hjá þér, stalla... Mér er ekki sama um allar þessar hækkanir, en hverjum er ekki sama um það?
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.12.2008 kl. 22:29
Verð að taka undir með Gurrí og fleirum, er hjartanlega sama um hækkun eða lækkun áfengis en er LANGT frá því sama um húsnæðislánið mitt! Mér finnst þetta alveg ótrúlega heimskuleg hækkun á þessum tímapunkti, rétt á meðan verðbólgan er að svíða í burtu eignir heimilanna á fullu. Með það í huga er þetta algerlega óréttlætanleg hækkun. Ekkert flóknara en það.
Hólmfríður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 00:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.