Sunnudagur, 20. júlí 2008
...með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða
Þegar ég sá frétt um rafmagnsreikninga og að Belgi einn hafi borgað sinn með klinki þá brosti ég út í annað.
Á mínum eiginlegu blankárunum var ég jafnframt spennufíkill sem sá ekki ástæðu til að borga RÚV og rafmagn á gjalddaga (tekið fram að það er langt síðan hehemm), borgaði fyrst Visa og svona svo ég gæti haldið áfram að eyða og spenna.
Þess vegna var ég oft á síðasta snúning þegar Knold og Tott (tveir geðvondir vel miðaldra tvíburar, amk. mjög líkir) komu til að loka. Og þá fékk ég hland fyrir hjartað og hundskaðist til að borga. Helst ekki fyrr. Rosa kikk eða þannig.
Sama gilti með RÚV og ég get ekki sagt mér til málsbóta að ég hafi verið í réttindabaráttu vegna afnotagjaldanna, ónei, ég er með RÚV alla leið alveg hreint. Minni frestunaráráttu var um að kenna og ég gerðist mjög náinn kunningi lögfræðinganna sem innheimtu fyrir útvarpið, þeir voru farnir að senda mér jólakort og myndir af afkomendunum þarna í lokin. Eða hefðu gert ef þeim hefði dottið það í hug.
En..
Hafið þið pælt í því hversu óréttlátt það er að þeir skuldseigu meðal vor (ég þar lengi meðlimur) mæta miklu vanþakklæti þrátt fyrir þeir haldi uppi heilu fyrirtækjunum með því að borga ekki fyrr en allt er komið í hönk? Þá er ég að tala um fyrirtæki dúlludúskanna með löffaprófið. Sjaldan sá ég flottari skrifstofur og einmitt hjá þessum elskum.
Þegar ég hélt uppi nokkrum slíkum með stórum umsvifum í mínusdeildinni var mér aldrei þakkað. Það var hvæst á mig þegar ég hringdi og mér settir afarkostir. Algjört "uppmeðhendur" attitjúd hjá þessu liði. Mér leið eins og.. hvað skal segja.. skuldara.
Eitt jólakort með þökkum fyrir viðskiptin hefði verið nægt tilefni til að gleðja í mér gaddfreðið skuldahjartað.
Og á endanum sagði ég þeim upp störfum fyrir mína hönd og merkilegt nokk þá sakna ég þeirra ekki rassgat.
Enda allt vaðandi í lögfræðingum í kringum mig.
Súmígæs.
Borgaði rafmagnsreikninginn með einseyringum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Sjónvarp, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:56 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 9
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 78
- Frá upphafi: 2987159
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Maður reynir að borga fyrir eindaga þótt ekki sé nema til að halda þessu liði EKKI uppi og borga fyrir lífsstílinn. Það er ekkert smáræði sem smurt er á hjá þessum innheimtufyrirtækjum!
Annars hef ég aldrei skilið það fólk sem hefur geð í sér til að stunda þessa starfsemi.
Lára Hanna Einarsdóttir, 20.7.2008 kl. 20:57
Nú er bankinn bara í að borga á réttum tíma. Annars voru þetta hryllilegir tímar. Úff.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2008 kl. 21:02
Been there, done that. Allt annað líf síðan allt var sett í greiðsluþjónustu. Er hætt að kaupa silkiskyrtur á löffana.
Helga Magnúsdóttir, 20.7.2008 kl. 21:05
Góð! Hvað ég hef oft hugsað svona (ekki þetta með jólakortin að vísu, jólakort frá innheimtulögfræðingi myndi gera mig alveg tryllta, ég tala nú ekki um ef í því væri mynd).
En innheimtulögfræðingar eru svona nútímaútgáfa af púkanum á fjósbitanum.
Kolgrima, 20.7.2008 kl. 21:09
Ég man eitthvað svona líka.... með hryllingi
Jónína Dúadóttir, 20.7.2008 kl. 21:47
Eitt af því örfáa sem að ég viðurkenni í laumi hálfvegis upphátt um auma ríkisstjórnina er feluaðdáun mín á Samfylkíngar-viðskiptaráðherranum, vegna hans innslags í að vilja setja hömlur á gjaldskrá 'innheimtararukkaraskrílsins'. Náttúrlega stoppuðu 'Sjallarnir' það af í bili, enda man Samfylkíngin ekki fram á litlutá fram að næztu kosníngum.
Fílenzteinar & farízerar, afætur, hræætur & sjakalar, upp til hópa.
Steingrímur Helgason, 20.7.2008 kl. 22:01
Ég held því miður að það séu gósentímar framundan hjá innheimtufyrirtækjum
Sigrún Jónsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:19
Mér sýnist nú innheimtupúkarnir á fjósbitanum strax vera farnir að fitna, og belgjast út, - enda gósentíð í vændum hjá þeim.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:24
Ég held að það sé að koma hrina, vertíð hjá milliliðunum. Þeir eiga eftir að mala gull.
Takk fyrir innlegg.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.7.2008 kl. 23:34
ég er einmitt ein af þeim sem heldur þessu fólki uppi en ekki bara vegna þess að ég trassa það að borga reikningana mína heldur vegna þess að ég virðist ekki fá nema helminginn af póstinum mínum fólkið fyrir ofan mig fær stórann hluta af því sem vantar en ekki allt ég held að manneskjan sem er að bera út póstinn hjá mér sé að reyna að fokka eitthvað í mér með því að halda eftir póstinum mínum þangað til að ég fæ ítrekun eða intrum
en svo er ég líka svoddan trassari þannig að allt þetta innheimtupakk er að græða heilan helling á mér
Freyja, 21.7.2008 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.