Miðvikudagur, 16. júlí 2008
Já, fíflið þitt
Þegar verið er að gera rannsóknir á hjónaböndum, sérstaklega fleiri en einu hjá sama einstaklingi, skil ég ekki af hverju enginn hefur samband við mig. Ég er fokkings sérfræðingur í greininni og á bæði hjónabönd í fleirtölu og fjölmarga eiginmenn að baki. Þetta vita allir, því ég gusa úr reynslubrunni mínum yfir gesti þessarar síðu við öll möguleg og ómöguleg tækifæri.
Meiri kjánarnir að tala ekki við mig. Kristmann Guðmundsson er hjá Guði en hann var sérfræðingur sem sláttur var á.
Fyrsta hjónabandið endist best segja rannsakendurnir. Ekki nógu lengi þó til að viðkomandi hoppi ekki í annað, því ef svo væri, væri enginn samanburður inn í myndinni. Döh.
Mín reynsla er ekki svona. Ég reyndar man afskaplega lítið eftir fyrsta hjónabandinu mínu, það er í móðu, ekki vegna hugbreytandi efna heldur vegna þess að það er svo helvíti langt síðan að það átti sér stað. Nánar tiltekið þ. 22. apríl 1973.
Þetta hjónaband var nærri því óvart, fínn vinur minn þessi eiginmaður og pabbi flottasta frumburðar í heiminum, hennar Helgu Bjarkar. En auðvitað rauk vinskapurinn út um gluggann eftir að við fórum að deila beðju.
Einhvern tímann löngu seinna hlógum ég og þessi fyrrrrrrrrrrrrrrrverandi að því að við rifumst eins og hundur og köttur á leið í kirkjuna, vorum ekki á "speking terms" í athöfninni og jáin frussuðust illskulega út úr okkur og í huganum bætti ég við; "fíflið þitt". Svo héldum við áfram að rífast fram eftir degi. Dunduðum okkur alveg sæl við það, þessi krútt sem við vorum.
Ég man líka að ég fór í hárgreiðslu á brúðkaupsdaginn og hárgreiðslukonan spurði mig vingjarnlega í hvaða kirkju ég væri að fermast. Ég molnaði í spað. Hvílík grimmd.
En ég verð að halda áfram með hjónaböndin sem á eftir komu, málið er nefnilega að eftir því sem þeim fjölgar því betri verða þau. Alveg eins og vínið, þið sem eruð að sulla í áfengi ennþá og skiljið ekkert nema bragð og áfengisprósentur. Frusss
Merkilegt að enginn skuli hafa áhuga á að leita eftir sérfræðikunnáttu minni í hjónaböndum.
Ekki heldur hvernig á að ljúka þeim.
Ég er svo aldeilis hissa.
Úje.
Fyrsta hjónaband endist best | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:38 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 2986898
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Þetta er vitanlega ótrúlegur sauðsháttur þeirra sem svona rannsóknir framkvæma. Þú ættir bara að senda Félagsvísindastofnun Háskólans bréf og benda þeim á þessi slælegu vinnubrögð. Elizabeth Taylor hvað?
Helga Magnúsdóttir, 16.7.2008 kl. 22:02
Þú mátt vera viss um að ég leyta til þín fyrst af öllum ef ég þarf á sérfræðikunnáttu að halda.....! vona samt að mig reki ekki í vörðurnar þegar kemur að hjónabandsmálum, maður hefur svo sem litla þekkingu á þessu öllu þegar stokkið er út í þessa tilteknu laug, lærir bara eftir því sem líður......!
Sunna Dóra Möller, 16.7.2008 kl. 22:03
Þetta kannski gildir fyrir fjöldann. En svo eru þeir sem finnst þeir verða að giftast öllum sem þeir elska og þá veðrur erfitt að gera upp á milli hjónabandanna :)
Svanur Gísli Þorkelsson, 16.7.2008 kl. 22:25
Gott að vita af þér hérna Jenný. Þú verður sú fyrsta sem ég leita til ef...
Skil ekkert í þessu liði að tala ekki við aðalmanneskjuna.
Elísabet Sigurðardóttir, 16.7.2008 kl. 22:31
Hmm... ertu kannski ekki bara með svona rauðan kross í símaskránni?... það er nebbla bannað að hringja í svoleiðis fólk þegar það verið að rannsaka eitthvað... svo kannski that's why.
En það er gott að vita hvert maður á að leita þegar að þessu kemur öllu saman...
Signý, 16.7.2008 kl. 22:47
No. tvö hefur verið lengra hjá mér.
Ásdís Sigurðardóttir, 16.7.2008 kl. 23:08
En hvaðenhvað?
BAmma' að stoppa hérna þótt þú sért móðguð við einvherja vísindamenn, útekt á hinum 15 köllunum takk!
Fínt til framhalds eins og útvarpssagan.
Magnús Geir Guðmundsson, 16.7.2008 kl. 23:10
Þér drepið mig úr hlátri frú Jenný
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 00:12
Annar kostur við raðhjónabönd er að þeim fylgir fleiri brúðargjafir en aðeins ein gifting.
Jens Guð, 17.7.2008 kl. 00:17
úha...djøfull er mann vitlaus..engin athøfn..engar gjafir en getur mann thá ekki bara gifst theim sama aftur og aftur...? nenni ekki ad skipta....en veit hvert ég get leitad ef úti thad fer....
eigdu gódan dag
María Guðmundsdóttir, 17.7.2008 kl. 08:03
Þú ert bara snilld kona
Helga skjol, 17.7.2008 kl. 08:26
Heheheh engin reynsla í fjölkvæni hérna megin og nenni ekki að skipta eftir 33 ár!!!!
Knús inn í daginn Jenný mín.
Ía Jóhannsdóttir, 17.7.2008 kl. 08:36
Skemmtileg tilviljun að þú skulir eiga bæði "hjónabönd í fleirtölu og fjölmarga eiginmenn að baki"
Hrönn Sigurðardóttir, 17.7.2008 kl. 09:00
Hrönn: Veistu ekki aulinn þinn að sumir giftast sama aftur og aftur. Sjáðu Elísabetu Taylor. Fruss
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 09:01
MUUUHAAAAA elska þig addna kelling.
Jóna Á. Gísladóttir, 17.7.2008 kl. 09:39
Þú ert nú alveg með eindæmum skemmtileg
Lilja G. Bolladóttir, 17.7.2008 kl. 10:04
Hvar þú værir að fermast.
Óborganleg alveg.
Iss hefði vilað vera fluga þá vegg (utan þinnar silingar sko) við þetta tækifæri.
Miðbæjaríhaldið
í taka tvö mode
Bjarni Kjartansson, 17.7.2008 kl. 10:26
Eru brúðarkjólarnir jafnmargir og hjónaböndin? Fáum við myndir af dressunum?
spyr sú sem er einstakur aðdáandi brúðarkjóla þessa mánuðina.
Ólöf Anna , 17.7.2008 kl. 10:42
Sko Ólöf, látum okkur sjá. Fyrsti var silkiprjónaður og rándýr beislitaður úr versluninni Fanny. Flottur.
Næsti var bleikur bómullar með silkiborðum ógeðslega væminn.
Þriðji var svartur kínakjóll úr silki, afskaplega fallegur.
Það hjónaband heldur enn þannig að giftu þig í svörtu.
Bjarni. Hehe, ég er rétt að byrja.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.7.2008 kl. 10:55
Þú ættir náttúrulega að vera að stjórna rannsókninni, mér finnst það gefa auga leið. -
En svona okkar á milli : - Þú hefur vonandi ekki hent kjólunum?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 17.7.2008 kl. 15:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.