Mánudagur, 7. apríl 2008
Stríðið í svefnherberginu
Ég er andstæðingur stríðs. Hef alltaf verið og mun alltaf verða. En sjálf stend ég í einu. Við minn heittelskaða og það sér ekki fyrir endann á því, síður en svo.
Við deilum svefnherbergi (ji, þvílíkur ólifnaður) og við erum með ólíkar skoðanir á hvernig manni líði best í viðkomandi herbergi. Ég vil hafa slökkt á ofni, hann ekki. Ég vil hafa galopinn glugga, hann vill hafa hann opinn upp á fjóra og hálfan millimetra. Ósættanlegur ágreiningur eins og berlega hefur komið í ljós.
Nú veit ég að stríð kallar það versta fram í mannfólkinu. Svo er um okkur. Þrátt fyrir að hér sé unnið í heiðarleikaprógrammi, sanngirni í samskiptum höfð að leiðarljósi í mannlegum samskiptum, þá hafa allir góðir eiginleikar fokið út í hafsauga í stríðinu um stöðu hita og andrúmsloft.
Við ljúgum eins og sprúttsalar hvert að öðru.
Hann læðist inn í svefnherbergið fláráður á svip og ég garga: "Ekki hækka á ofninum" og hann: "Nei, nei, ég er ekkert að því" og svo fer hann og kyndir eins og mófó.
Svo ég bíð. Hann sofnar og ég læðist inn. Klifra upp í fjandans gluggann (hef nokkrum sinnum slasað mig þó nokkuð í myrkrinu) og opna gluggann upp á gátt, svo skrúfa ég fyrir ofninn. Meðalhófið er löngu fokið út í hafsauga. Þetta er orðið do or die dæmi.
Hann vaknar. Hóst, hóst. Ásakandi segir hann: "Þú hefur slökkt á ofninum". Ég; "Nei, ég hef ekki snert hann".
Svo koma léttar ásakanir um hver hafi gert hvað. Svo knúsumst við og ég hugsa (og örugglega hann líka), "láttu þér ekki detta í hug að ég gefist upp". Og þannig höldum við áfram við þessa uppáhalds iðju okkar.
Munið þið eftir myndinni "War of the roses"? Við stefnum þangað. Ég er að segja ykkur það.
Svona eru svefnherbergisæfingarnar í Seljahverfinu á þessu herrans ári.
Farin að skrúfa hitastillirinn af ofninum. Ég ætla að henda honum.
Súmíhonní.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
HAHAA krúttilegt stríð. Annars heyrði ég að best væri fyrir alla að sofa í sér herbergi, engar árur að flækjast og rifrildi um hitastig. Fara svo í heimsókn öðru hvoru En svo tímir maður því auðvitað ekki.
M, 7.4.2008 kl. 10:47
hahahaha ég sé Einar fyrir mér með úfinn glókollinn, fláráðan á svip, læðast eins og ræningjarnir í Kardó. Hann er í rauðum og grænum sokkum með gat á stóru tá. Veit ekki afhverju en þetta er það sem ég sé fyrir mér.
War of the roses flaug í gegnum hugann á mér, brotabroti úr sekúndu áður en ég las það. Hvað varstu að segja um tvibba í gær? Getur verið að við séum síams?
Jóna Á. Gísladóttir, 7.4.2008 kl. 11:00
Jónsí mín: Við erum heví andlega skyldar amk. Og hvenær í andskotanum ætlarðu að koma að reykja með mér? Það er að verða hver síðastur. Lágmark að hittast tvisvar yfir nikótíni áður en við hittumst yfir súrefni. Flýta sér.
Hörður og M: Þið eruð frábær.
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.4.2008 kl. 11:07
Þetta er bara fyndið stríð, ég sá ykkur alveg fyrir mér þegar að ég las þetta, eða þig..... þar sem að ég veit ekki hvernig maðurinn þinn lítur út. En á meðan það eru engar blóðúthellingar þá er þetta stríð bara krúttlegt.
Linda litla, 7.4.2008 kl. 11:12
Kannast við svona styrjaldir. Mitt gekk út á að ég vildi lesa þegar karl vildi sofna og hann kvartaði undan ljósinu. Keypti bara á hann svefngleraugu og málið leyst.
Helga Magnúsdóttir, 7.4.2008 kl. 11:15
I feel your pain woman, þessi sama styrjöld er háð á mínu heimili. Minn heittelskaði er endalaust að reyna að steikja mig.
Sigrún Ósk Arnardóttir, 7.4.2008 kl. 11:31
Nauðsynlegar þessar skiptu skoðanir á status hjónaherbergis, alltaf eitthvað að tala um sem endar svo í keleríi. Hafðu það gott hjartað mitt og ekki láta þér verða of heitt
Ásdís Sigurðardóttir, 7.4.2008 kl. 11:33
hvad er med thessa tippalinga, tharf ad sjóda á theim yfir nóttina?? sama problem hér...ég opna...hann lokar...en ekki ordid stríd ennthá STATTU Á THÍNU...
María Guðmundsdóttir, 7.4.2008 kl. 12:24
Ég stend á mínu. Það er á hreinu. Maður verður að hafa eitthvað til að halda blóðinu á hreyfingu. Muahahahaha
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.4.2008 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.