Mánudagur, 31. desember 2007
Gleðilegt ár og fleira smátt og gott
Mér líður eins og ég hafi orðið undir valtara, svei mér þá. Ég var sofnuð fyrir miðnætti í gærkvöldi og það hefur ekki gerst í árafjöld með örfáum undantekningum. Og ég sem tími ekki að sofa á kvöldin, þegar ég get haft það huggó við kertaljós, með bók í hönd. Jább, moi er byrjuð á Bíbí.
Afmælið hennar Jennýjar Unu var frábært, öll börnin voru skemmtileg og góð og Hrafn Óli svaf af sér partýið, enda er hann svo lítill. Myndir verða settar inn í dag.
Maysa mín, Robbinn og Oliver voru í mat og það var yndislegt. Oliver vildi bara að amma og Einar ættu að koma að leika. Hvað við og gerðum. Lásum bækur og lékum okkur mikið og skemmtilega. Verst að ég næ því ekki úr huganum á mér að hann er að fara aftur, rétt nýkominn en nú get ég huggað mig við að ég hitti hann í London þ. 18. n.k. Oliver er ótrúlegur. Hann er jafnvígur á ensku og íslensku. Hann hefur bætt við sig heilum helling í íslensku á þessum stutta tíma sem hann hefur verið hér núna, alveg eins og svampur drengurinn. Það er þó eitt sem er að vefjast fyrir honum og það er eftirfarandi: Hann heitir Oliver Einar, móðurafi hans heitir afi Einar, og skáafinn heitir líka Einar. Alleg eins, segir Oliver og er alveg hissa. Þó tók steininn úr í gær þegar við fórum í að lesa Einar Áskel. Ha???? sagði barnið, heitir líka Einar??? MANY ALLEG EINS!!! Er það nema von.
(Myndir frá ömmu-Brynju, önnur frá Þorláksmessumorgni og hin frá pakkaopnun á Aðfangadagskvöldi)
Hér verðum við hippahjónin tvö í kvöld. Það verður notalegt. Mun að sjálfsögðu elda eitthvað sem hæfir tilefni dagsins, en ég er eiginlega komin með nægju mína af steikum og ullabjökkum. Reyni samt, get ekki verið þekkt fyrir að vera með eitthvað pöpulskt í matinn. Ónei.
Annars langar mig að þakka ykkur öllum, sem lesið síðuna mína, fyrir gamla árið og allar skemmtilegu stundirnar. Bloggvinir mínir fá sérstakt knús, því þá er mér farið að þykja extra vænt um. Yndislegt fólk, bloggarar, amk. MÍNIR bloggarar og þið hafið öll auðgað líf mitt á einhvern máta. Með sumum hafa tekist nánari kynni, aðra þekkti ég fyrir og hver einasti einn sem ég les hjá á pláss í hjarta mínu, og þetta er hámark tilfinningaseminnar, þegar ég á hlut. Nú verð ég að væmnisjafna eftir hádegið.
Ég er líka viss um að edrúmennskan mín hefur gengið svona vel, m.a. vegna þess að ég hef bloggað um alkahólismann minn og þið hafið bakkað mig upp í baráttunni. Takk fyrir það.
Nú, Dúa vinkona mín, Búmmerangsdóttir, er byrjuð að blogga aftur. Hún segir reyndar að hún hafi byrjað að þessu sinni til þess að geta uppfyllt áramótaheit sitt um að hætta að blogga. Konan er bara svona. Ég hvet ykkur til að kíkja á hana og hvetja hana til bloggafreka á nýju ári. Bloggheimar eru fátækari án hennar.
Falalalalala og gleðilegt ár.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:11 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Þakka þér sömuleiðis kæra Jenný, fyrir skemmtileg, uppörvandi og oft á tíðum fræðandi blogg... Gangi þér vel í edrúmennskunni, hér eftir sem hingað til og með allt annað sem þú tekur þér fyrir hendur
Jónína Dúadóttir, 31.12.2007 kl. 09:11
Ég óska þér og þínum friðar og gleði á komandi ári. Gangi þér vel!!
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 31.12.2007 kl. 09:15
Þakka þér sömuleiðis Nenna mín fyrir skemmtilegheit og spörk. Hlakka til að fylgjast með þér áfram.
Hrönn Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 09:47
Gleðilegt ár Jenný og takk fyrir skemmtilega viðkynningu á árinu.
Marta B Helgadóttir, 31.12.2007 kl. 10:29
Gleðilegt ár elsku Jenný mín
Heiða Þórðar, 31.12.2007 kl. 10:35
Gleðilegt ár Jenný og takk fyrir skemmtileg viðkynni á árinu, hafðu það sem best um áramótin
Huld S. Ringsted, 31.12.2007 kl. 10:59
Gleðilegt ár :)
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 31.12.2007 kl. 11:22
Megi nýja árið færa þér blússandi hamingju og áframhaldandi kraft til snúrufimleika. Takk fyrir góða viðkynningu. Blessun til þín og þinna.
Hugarfluga, 31.12.2007 kl. 11:27
Knús á þig og þína eskan. gaman að sjá myndir af Óliver þínum og líka nýfæddum dóttursyni + Jenný Unu.
Edda Agnarsdóttir, 31.12.2007 kl. 11:56
þú addna... lovjú
Jóna Á. Gísladóttir, 31.12.2007 kl. 12:40
Elsku Jenný penný, Oliver getur nú sagt um ykkur nöfnurnar "both alveg eins" yndislegur pjakkur :):) Hafðu það sem allra best á nýju ári og takk fyrir að ver svona góð bloggvinkona, ætli ég breyti ekki til og strengi loksins áramótaheit, það verður að hitta sem flesta bloggvini mína á nýju ári.:):) Þú ert himnasending og stjarna í hópi okkar bloggara. Love Jú darling og milljón knús á þig.
Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2007 kl. 13:02
Gleðilegt ár, takk fyrir öll frábæru bloggin þín á þessu ári og ég hlakka til að halda áfram að lesa skrifin þín!
Sunna Dóra Möller, 31.12.2007 kl. 13:13
Gleðilegt ár, elsku bloggdrottning og takk fyrir allt! Sjáumst vonandi feis tú feis á nýja árinu. Hafið það rosalega gott í kvöld!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 31.12.2007 kl. 13:35
Kæra Jenný Anna, GLEÐILEGT NÝTT ÁR til þín og þinna og bestu þakkir fyrir bloggskrifin þín, sem hafa gefið mér ómælda ánægju síðustu mánuði.
þú ert frábær!
Áramótakveðja, Sigrún Jónsdóttir.
Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 13:46
Ég gæti nú sagt.."ég vissi það að kona myndi slá í gegn um leið og hún færi að munda pennann" en ég ætla ekkert að segja svoleiðis núna enda að komast í hátíðarskap og ég gæti eflaust slegið öll met í væmni ef ég nennti en ég segi bara gleðilegt ár og takk fyrir frábæra viðkynningu í gegnum árin. Lovjú og knús til þín og þinnar fallegu fjölskyldu.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.12.2007 kl. 14:33
Gleðilegt ár kæra Jenný Anna og takk fyrir allt gott á liðna árinu. Ég hlakka til bloggsamskiptanna við þig á því næsta. Knus og kram
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 31.12.2007 kl. 14:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.