Leita í fréttum mbl.is

Dómaravaktin

 

"Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir nauðgun, en maðurinn var talinn hafa notfært sér að kona, sem hann hafði samræði við, gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 800 þúsund krónur í bætur."

I rest my case.


mbl.is 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þá mundi líklega vera næst á dagskrá að standa við dóminn, ekki gefa neitt eftir.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.11.2007 kl. 14:14

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sitja menn ekki inni í sjö mánuði ef þeir fá fimmtán mánaða dóm? Ég held að það sé þannig.

Steingerður Steinarsdóttir, 22.11.2007 kl. 14:59

3 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Of lágt þetta er til skammar, þetta ætti að vera 15 ár lámark

Alexander Kristófer Gústafsson, 22.11.2007 kl. 15:02

4 identicon

það er yfir leitt þannig að fólk sitji af sér 2/3 af dómnum ef þeir haga sér vel, ekki helming...

Toggi (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 16:19

5 identicon

Furðulegur dómur.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 16:39

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hvernig "vel" þarf hann að haga sér ? Nauðga engri konu meðan hann situr inni ? Eða segja alltaf "takk fyrir matinn" ?

Jónína Dúadóttir, 22.11.2007 kl. 16:44

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þessir dómar eru hættir að koma mér á óvart og fylla mig bara vonleysi !

Sunna Dóra Möller, 22.11.2007 kl. 16:53

8 identicon

Dómar fyrir kynferðisbrot á Íslandi eru MJÖG ÞUNGIR miðað við t.d ofbeldisbrot. Menn eru sjaldnast dæmdir í fangelsi fyrir tilefnislausar árásir eins og þær sem gerast um hverja helgi í miðbæ Reykjavíkur (þá er ég að tala um þegar það er dæmt á annað borð í þeim málum) .  Afhverju talið þið ALDREI um þetta konur góðar, er það út af því að það er mest "hitt kynið" sem verður fyrir barðinu á ofbeldismönnun í miðbæ Reykjavíkur?  Ég vil ekki sjá þyngri dóma í kynferðisbrotum nema refsingum í öðrum brotaflokkum séu líka þyngdar. Lágmarksrefsing fyrir tilefnislausa árás á að vera sú sama og fyrir nauðgun. Þá verð ég sammála ykkur með hækkun refsinga.

Oddi Paddi (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 17:24

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Oddi: Hef ekki tölu á þeim bloggfærslum sem ég hef skrifað um ofbeldi, allar tegundir, og hef ekki legið á þeirri skoðun minni að refsing við því sé léttvæg.

Óskar: Hvaða kór, hvað sagði ég?  Hvað lestu út úr orðum mínum?

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.11.2007 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.12.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 2987177

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.