Leita í fréttum mbl.is

Og pabbi minn er lögga og lemur asnann hann pabba þinn!!

Í framtíðinni má leiða líkum að því að þroskaðar umræður haldi áfram að þróast og sveigjast í eftirfarandi átt, á borgarstjórnarfundum.

Skammastín þú addna bjáninn þinn, hæstvirti borgarfulltrúi!

Þegiðu og hættu að ljúga fíflið þitt!

Auli, auli, auli og svínabest!

Þú lýgur meira en þú mígur, borgarfulltrúi!

Pabbi minn er lögga, pabbi og lemur asnan hann pabba þinn í spað ef þú verður ekki til friðs addna!

Og í heitum umræðum:

Farðu í rassgat, mig langar ekki neitt sko að vera með þér asnakjálki!

Þegiðu femínistabeljan þín!

Hm...

Ég hef grunur um að pallarnir í Ráðhúsinu verði vel sóttir í vetur.

Súmíbítmíbætmí!

Úje

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ef það verður svona mikið fjör, þá verð ég fastagestur og fresta útskrift fram yfir næstu sveitastjórnakosningar

Sunna Dóra Möller, 17.10.2007 kl. 11:26

2 Smámynd: Ragnheiður

Sá einmitt anga í þessa átt í gær og fékk kjánahroll...þar voru á ferð hæstvirtar sjálfstæðiskonur úr fráfarandi meirihluta. Mister Bing náði í hálft prik hjá mér (sem er í sjálfu sér óhugsandi) fyrir að sitja á sér og fara ekki í pontu. Kannski er hann í þjálfun hjá Alfredo ?

Bjakk bjakk...góðan dag mín kæra...

Ragnheiður , 17.10.2007 kl. 11:27

3 Smámynd: Ragnheiður

Takk fyrir kveðjuna og bið að heilsa herranum

Ragnheiður , 17.10.2007 kl. 11:33

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ha er fjör, ha er fjör ha er fjör á þjóðhátið í Vestmannaeyjum hehehehe.... Þetta gæti hleypt nýju fjöri í þátttöku í stjórnmálum.  Sandkassaleikir, koddaslagir og handalögmál jafnvel. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2007 kl. 12:10

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur, that´s my point vúman.  Nú verður fjör í Ráðhúsinu, en ég myndi vilja sjá borð og stóla niðurnjörvaða sem fyrst, in case að það hitni um of í kolunum.

Sjáumst á pöllunum stelpur. OMG

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.10.2007 kl. 12:14

6 Smámynd: Kolgrima

Þetta er með ólíkindum, maður er svoleiðis krossbit og gapandi gáttaður.

En ég hlustaði á glókollinn Gísla Martein, og það sem hann sagði, kom út á mér hárunum - þetta með að Björn Ingi hefði stuðlað að milljarðagróða fyrrum forystumanna framsóknarflokksins. Ef þetta er rétt, skil ég ekki hvernig Vinstri grænir, Samfylking og Margrét geta hugsað sér að láta bendla sig við manninn, hvað þá eiga hamingjuríkt samstarf við hann.

Þú hefur rétt fyrir þér, Jenný, borgin þarf kosningar! 

Kolgrima, 17.10.2007 kl. 12:32

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já og Kolgríma, ég er búin að vera að tékka á kosningalögunum en mér er gjörsamlega fyrirmunað að finna hvort það megi kjósa á miðju kjörtímabili í Reykjavík.  Mér finnst svo skrýtið að það skuli áhöld um það í lýðræðisríki.  Veist þú?

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.10.2007 kl. 12:35

8 Smámynd: krossgata

Mig minnir að það hafi komið fram í kvöldfréttum, daginn sem Bingi dansaði, að minnsta kosti annarrar sjónvarpsstöðvarinnar.... eða var það í síðdegisfréttatíma á Bylgjunni? ... alla vega að það sé ekki hægt að kjósa til sveitastjórna á miðju kjörtímabili.

krossgata, 17.10.2007 kl. 12:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já gerumst pallameyjar   Um þessi ummæli Gísla Marteins, þá hefur hann á engann hátt útskýrt hvað hann á við með þessum miljarðagróða sem hann talar um.  Ætti hann ekki að útskýra það fyrst áður en við förum að hlaupa upp til handa og fóta eftir svona fýlupokafullyrðingum. Þetta virðist í fljótu bragði vera smjörklípa, en mér sýnist líka að hann trúi á hana sjálfur, en hefur líklega ekki skoðað hana nánar frekar en samninga orkuveitunnar og green energi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2007 kl. 13:30

10 Smámynd: Kolgrima

Veit ekki, Jenný. Ég bíð líka eftir útskýringum, Ásthildur, þetta er ekkert smámál. Jafnt að segja svona ef það reynist svo ekki rétt, og að þetta sé rétt! Skilst þetta ekki alveg örugglega?!

Kolgrima, 17.10.2007 kl. 16:12

11 Smámynd: Kolgrima

ég var að lesa komment Péturs Þorleifssonar

Kolgrima, 17.10.2007 kl. 16:23

12 identicon

Verð til skiptis í pottinum og á pöllunum. Svipað gáfulegt. og þroskað.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.12.): 6
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 2987199

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.