Leita í fréttum mbl.is

Hvur sagði hvað við hvern, hvenær???

Er Bjarni að segja satt um fundinn heima hjá Villa Vill, þar sem fleiri klukkutímar fóru í að kynna  samning REI og OR til 20 ára?  Er Villi að segja satt um að muna ekki rass né rófu, og að ekkert hafi verið kynnt fyrir honum.?  Voru þeir að spila Trivial heima hjá honum strákarnir?  Er Haukur Leós, að kóa með Bjarna eða er hann að segja satt, svo hjálpi honum Guð almáttugur?

Ég hef oft lesið bækur, með brilljant fléttum, en enginn höfundur kemst með tærnar, þar sem ævintýri og örlög Vilhjálms, Binga, Bjarna og Hauks, hafa hælana.

Þessi spenna er ekki góð fyrir alka eins og mig.  Annaðhvort slekk ég á öllu upplýsingastreymi til mín, og það er mér ekki ljúft eða ég krefst þess einfaldlega að þetta lið segi sannleikann, í eitt skipti fyrir öll.

Ekki er allt þetta fólk að ljúga, ég trúi því ekki.

Villi, halló!

Súmíbítmíbætmí.


mbl.is Vilhjálmur Þ: „Nei, 20 ára ákvæðið var ekki kynnt fyrir mér "
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Er að horfa á Villa í Kastljósi...hann man ekki baun í bala...og Bjarni Ármanns er þarna líka ...mikið stuð.

Ragnheiður , 15.10.2007 kl. 19:47

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta er farið verða eins og gríngátlistinn minn

Marinó G. Njálsson, 15.10.2007 kl. 19:50

3 Smámynd: Mummi Guð

Þetta er orð gegn orði hjá þeim. Og hvorum ætti maður að trúa? hmmm.

Mummi Guð, 15.10.2007 kl. 19:55

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Enska er tungumál stórfyrirtækjanna og Villi greyið er bara slakur í henni. Látið ekki svona. "twentí jers unrísænabúl."  Hver skilur svona?

Jón Steinar Ragnarsson, 15.10.2007 kl. 19:58

5 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Þetta er bara orðið of flókið...! Ég er alveg hætt að botna í þessu máli!!

p.s. trivial er nú ansi skemmtilegt.....en mér finnst líklega að þeir hafi verið að spila "Viltu vinna milljón"...

Sunna Dóra Möller, 15.10.2007 kl. 20:17

6 identicon

Er að stækka á þeim nefið? Það gerði það á Gosa þegar hann laug. Og svo þykjast allir vera svo saklausir og Alfreð skellihlær að öllum enda búinn að nota þá sem hann þurfti.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband