Miðvikudagur, 10. október 2007
Löggan í Þvagleggnum drepur mig úr hlátri..
..einhvern daginn. Þeir fengu "ábendingu" um að það væri verið að selja fínkornað neftóbak í söluturni á Selfossi (úff, ég blikna frammi fyrir einbeittum brotavilja íslenskra sjoppueiganda). Hugrakkir eins og þeir eru í Þvagleggsumdæminu, létu þeir sig ekki muna um að taka tollinn með sér í heimsókn til sjoppumannsins ógurlega og þeir leituðu í versluninni, við hættulegar aðstæður (hm). Við leitina fundust á ANNAN TUG tóbaksdósa, sem voru auðvitað gerðar upptækar að staðnum. Þó það nú væri.
Og þeir afrekuðu fleira í umdæminu. Einhver stórglæpamaður henti hálfétinni pylsu sinni ásamt BRÉFINU, já þið lásuð rétt, út um gluggann á bílnum sínum og hann neitaði sök, ódámurinn sáarna. Halló! Siðlaust þetta fólk sem verslar í sjoppum og kaupir pylsur, svo maður ekki tali um sjoppueigendurna sem selja viðbjóðinn. Kominn tími á að gera rassíu á ótýnda, samviskulausa glæpamenn, sem engu eira.
Hvað um það, þar sem pylsuætan neitaði sök, þá var tekinn á hann þvagleggur, nei, reyni aftur. Þar sem hann neitaði sök þá verður ákært í málinu.
"Jón Jónsson, pylsuæta hér í bæ, sýndi af sér einlægan og markvissan brotavilja er hann þrykkti hálfétinni pylsu sinni og bréfi utan af henni, út um gluggann á bifreið sinni. Hann mun sæta fangelsi allt að 3 árum og til frádráttar koma þeir 5 mánuðir sem sjoppufæðisætan sat í gæsluvarðhaldi, á meðan á rannsókn málsins stóð."
Þvagleggurinn er athyglissjúkur. Er hann á leiðinni í forsetaframboð jú þeink?
Eru engin stórvægilegri "brot" að kljást við?
Þeir fá sér ekki kaffibolla í Þvagleggslöggunni án þess að senda um það fréttatilkynningu á blöðin, svei mér þá..
Ójá.
Verslun á Selfossi seldi snuff" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Stjórnmál og samfélag, Þvagleggur | Breytt s.d. kl. 10:09 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 7
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 2986911
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Þeir eru svo rosalega samviskusamir þarna á Þvagleggsfossi. Gott að hafa svona fólk í vinnu tíhíhí Af hverju kláraði dúdinn ekki pulluna sína og henti bréfinu á bílgólfið? Það hefði verið ódýrara fyrir hann. Þetta er dýr pulla.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 10:05
Beta: Já það er það alvarlega við þetta mál, þetta var SS-pysla og eins og þú veist þá er þeirra faktóría í Þvagleggnum. Hefði þetta verið Goðaruslið að norðan, hefði bara verið ákært fyrir bréfið, ekki pylsuna.
Birna Dís: Það eru mannréttindi að missa sig stundum og skutla pylsunni út.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 10:10
Þetta er flott hjá þeim. Kominn tími til að taka á þessum sóðum. Það er allt of mikið um svona sóðaskap og aulahátt hjá þessum aumingjum, nei, reyni aftur, hjá þessum borgurum sem ekki nenna að koma ruslinu sínu í ruslatunnur.
Það má vel vera að þvagleggslöggan hafi farið hamförum undanfarið en þetta með pylsu-sóðann er BARA hið besta mál.
Best væri að gera bílinn upptækan þar sem hann var notaður við meint brot og helst að sú hendi sem henti pylsunni út verði sett í fatla í mánuð. Spurning um að gera kortið sem greitt var með einnig upptækt. :-)
Ólafur Örn (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 10:14
Jenný þú ert alveg frábær, hvernig þú lýsir þessu svo vel.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.10.2007 kl. 10:17
Já eða bara höggva af glæpahöndina við úlnlið eins og gert er í "siðmenntaðri" löndum Ólafur Örn. Hehe
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 10:17
Þú ert nú meiri asninn
Heiða B. Heiðars, 10.10.2007 kl. 10:38
hahahaha þú kannt sko svo sannarlega að koma orðum að hlutunum!
Huld S. Ringsted, 10.10.2007 kl. 11:17
En hvað ef kjöttægjurnar í smokknum voru óétandi og bréfið ljótt á litinn?? ÉG myndi handtaka sjoppueigandann..og setja hann í tvöfalt fangelsi. Fyrir vondar pulsur og snuffið. Þá verður allt miklu rólegra þarna fyrir austan og þarf ekki að hafa sérsveitina á vakt öllum stundum. Sparar líka pening.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 11:28
.....ég er svo glöð að það er verið að hafa hendur í hári storglpamanna á Íslandi í dag. Ég fyllist svo mikilli öryggistilfinningu og gleði !
Sunna Dóra Möller, 10.10.2007 kl. 11:40
Ó já! Við erum einbeitt hér í sveitinni!!!!!
Hrönn Sigurðardóttir, 10.10.2007 kl. 11:54
Ég hef margoft sagt það að fíkniefnastríð yfirvalda er ekkert annað en ein stór hræsni, þetta er gott dæmi um það.
Ég mæli með því að ríkið dragi sig úr fíkniefnabransanum og leyfi frjálsa sölu einkaaðila á þeim.
Geiri (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 11:59
shitt ég meika þetta ekki
halkatla, 10.10.2007 kl. 12:02
Glæpur er alltaf glæpur sama hversu smár hann er, haldiði kannski að lögreglan eigi bara að fást við stórglæpamenn. Þetta er bara hið besta mál.
Gummi (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 12:58
"Glæpur er alltaf glæpur sama hversu smár hann er, haldiði kannski að lögreglan eigi bara að fást við stórglæpamenn. Þetta er bara hið besta mál."
Auðvitað er sjálfsagt að lögreglan framfylgi lögum...
Vandamálið er ekki það að lögreglan sé að forgangsraða glæpum, heldur að Alþingi forgangsraði lagabreytingum og hafi ekki tíma til þess að breyta úreltum lögum vegna nýrra mála. Ótrúlegt að í mörgum málefnum er stór meirihluti fyrir breytingum á úreltum lögum en samt tekur oft mörg ár að koma því í gegn. Það þarf að lengja starfstíma Alþingis og gera auknar kröfur, jafnvel endurskoða allt kerfið okkar.
Geiri (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 14:12
Vil bæta smá við...
Góð leið til þess að tryggja reglulega endurskoðun á lögum er að öll landslög renni úr gildi (t.d. á 10 ára fresti), þá neyðist Alþingi til þess að endurskoða öll lög reglulega. Ef meirihlutinn er sáttur þá verður bara greitt atkvæði um að lengja tímasetninguna á lögunum, ef ekki þá verða gerðar breytingar á þeim.
Geiri (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 14:16
Þrymur: Leynist lítill Þvagleggur meðal starfsmanna Mbl.is.?
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.10.2007 kl. 15:47
Vá hvað það pirrar mig svakalega að lesa pistla eftir fólk sem veit ekkert um hvað það er að skrifa... þvagleggsfoss?? Rosalega þroskað! Endalaust tal um þetta þvagleggsmál ... Lögreglan í Árnessýslu stendur sig með mikilli prýði og til dæmis má ég þakka þeim að sonur minn sé á lífi í dag... Svo er bara mjög gott mál að það sé verið að taka á sölu á ólöglegum efnum...sama hversu hættuleg þau eru.... og ert þú kannski sú sem hendir út pyslubréfum og mengar umhverfið? Allt í lagi að sekta fyrir það!
Verið bara að afsaka... er mjög ósátt við leiðinlegt umtal um lögregluna í Árnessýslu.
Særún (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 16:08
Særún: Fíkniefnalöggjöfin hefur ekkert með skaðsemi að gera enda er ríkið sjálft að selja sterk og hættuleg fíkniefni.
Geiri (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 16:52
Ólafur Helgi er formaður í félagi athyglissjúkra, með honum í félaginu eru Halldór Jónsson fyrrum blaðamaður á BB og Matthildur Helgadóttir óbeisluð fegurð, ég hef lengi bankað á dyrnar til að komast inn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2007 kl. 18:19
mínus sýslumaðurinn þá er ég nú sammála því að löggan á Selfossi er að fá frekar ósanngjart umtal frá hinum ýmsu besservisserum/moggabloggurum svo, þó það sé kannski ekki vinsælt hérna inni, þá vil ég nú aðens taka upp hanskann fyrir kallagreyjin.
- Með þvaglegginn þá efa ég að þú vitir nokkurn skapaðan hlut um ástæður fyrir því að þessu úrræði var beitt...ekki frekar en ég
- varðandi snuffið þá fær löggan (því miður) ábendingu frá móðir.....átti hún ekki að athuga þetta??? (og það er ekki íslendingur sem á þennan söluturn, ekki að það skipti máli)
- og þetta með að sýsli hafi persónulega kært unga gutta fyrir að henda rusli er held ég bara gott mál og ég er hissa að sjá einhvern sem titlar sig sem v-græn gera grín af því!!! ;)
En ég er ekki að sjá það fyrir mér að ég myndi skutla sýsla upp á löggustöð til þess að hann gæti kært mig eins og þessir sem hann tók um daginn þurftu að gera.
- og fréttirnar eru fengnar úr dagbók lögreglunar geri ég ráð fyrir
takk fyrir ;)
p.s. já mér leiðist barnalegt og illa skrifað níð á Selfoss hjá vinsælum/ofvirkum moggabloggurum ;)
Einar Matthías Kristjánsson, 10.10.2007 kl. 20:03
Já, ég verð að segja að ég er sammála Einari, heyr heyr!
Anna Karlsdóttir (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 20:29
Og hana nú! Dreifbýlispakk. Ekki það að við verðum náttúrlega að taka það með í dæmið að það gerist ekkert merkilegra en þetta í svona litlum bæjarfélögum og til þess að halda sér á kortinu og sína fram á að allir eru að vinna fyrir laununum sínum verður að senda frá sér fréttatilkynningu reglulega til staðfestingar.
Er ekkert að gera lítið úr starfi lögrelgunar, en ég held að það vanti alltaf starfsfólk upp á Lansa. Þeir eru svo anskoti færir með þvaglegginn þarna fyrir austan.
Jenný (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 20:44
Þú ert vinstri græn og femínisti (skv. lýsingu) og kallar mig og alla utan af landi pakk!!!!! Það finnst mér sannarlega koma úr hörðustu átt!!! ; )
En ef ég held áfram að leika við þig í sandkassanum þá verð ég að spyrja..... hvað er svona mikið merkilegra við dagbók lögrelunnar í bænum?
- 25 handteknir fyrir að míga á djammminu (sérsveitin fengin í málið). - of margir fara út af börum til að reykja.......og taka glösin sín með út bölvaðir
- kælir í ÁTVR sem selur dósir í stykkjatali fjarlægður úr miðbænum
- o.s.frv
Ég gæti trúað því að fólk sem bloggar um hverja einustu færslu á mbl.is fari jafnvel meira í taugarnar á fólki heldur en fréttir af afrekum lögreglunar. Sem btw. eru pikkaðar upp af blaðamönnum í leit af nýjum fréttum til að moggabloggarar hafi einhvað til að hneykslast á....en ekki fengnar út í fréttatilkynningu frá lögreglunni.
p.s. ég veit ekki hvort Jenný sem á síðasta komment og síðueigandi séu ein og sama manneskjan en ef ekki þá afsaka ég þetta komment í upphafi með vinstri græna og femínista, ekkert perónulegt, er bara AFAR LÍTILL aðdáandi beggja hópa.
Einar Matthías Kristjánsson, 10.10.2007 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.