Leita í fréttum mbl.is

Það er sitt hvað glæpur og glæpur!

Það er sitt hvað grunur um ölvun og grunur um nauðgun.

Þvagleggslöggan telur ekki ástæðu til að setja grunaðan nauðgara í gæsluvarðhald.

Þeim skorti ekki áræðið þegar þeir neyddu þvaglegginn upp í konuna á dögunum.

Vonandi verður hann ekki horfinn í sumarfrí til útlanda þegar kemur að því að standa fyrir máli sínu.

Ójá.

P.s. Enga þvagleggsbrandara takk fyrir.  Þetta er ekki svoleiðis færsla.

 

 


mbl.is Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem var handtekinn vegna nauðgunarkæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Já það er tvískynningsháttur í þessu kerfi...

Skyldu þeir gera sér greyn fyrir því sjálfir ?  

Brynjar Jóhannsson, 23.9.2007 kl. 21:33

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hún hefur enda, ábyggilega verið þannig klædd!!!

Hvað er að í þessu kerfi? Hvað er sýslumaður að spá? Skrifa sýslumaður með litlum staf, enda við hæfi.....

Hrönn Sigurðardóttir, 23.9.2007 kl. 21:37

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Jenný, djö....  ertu góð !

Marta B Helgadóttir, 23.9.2007 kl. 21:42

4 identicon

Þetta var frænka mín - engin á þetta skilið og ef kerfið bregst henni þá er það önnur nauðgun.

M (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 21:50

5 Smámynd: Kristjánsson

Málið er í rannsókn.

Saklaus uns sekt er sönnuð.

Þarf að segja eitthvað meira ? 

Kristjánsson, 23.9.2007 kl. 21:52

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kristjánsson, sagði ég að maðurinn væri sekur?  Ég held ekki.  Ég er bara hissa á að hann skuli ekki vera settur í gæsluvarðhald.  Í staðinn á að halda áfram á morgun.  Kva.. grunur um nauðgun!  Kökubiti í Þvagleggnum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.9.2007 kl. 22:39

7 identicon

Það þarf að rannsaka vinnubrögð (ó)lögreglunnar og sýslumannsins á Selfossi, það er eitthvað meira en lítið að hjá þessu embætti.  Þeir elta ökumann grunaðann um ölvun sem bíður bana í eltingaleiknum.  Kona er pyntuð og niðurlægð á viðurstyggilegan hátt í fangaklefa hjá þeim. 

Allt þetta á eftir að verða þessu embætti og þeim sem framkvæmdu þetta, fjötur um fót í langan tíma.  Verði þeir dæmdir sekir hjá Mannréttindadómstólnum, eiga þeira t.d. á hættu að verða handteknir til fullnustu refsingar, hvenær sem er og hvar sem er, þegar þeir ferðast til Evrópu, líka sýsli. 

Sofandaháttur og yfirhylming yfirvalda (við rannsókn á sjálfum sér) er með eindæmum þannig að borgararnir geta ekki treyst þeim lengur.   Allar gerðir lögreglunnar eru ævinlega blástimplaðar, hversu offari sem hún fer.  Þetta er mjög hættulegt og getur á endanum leitt til sjálftöku borgaranna. 

Óttar Pálsson (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 22:44

8 identicon

Hmm.. í þetta skiptið er ég algjörlega 100 % sammála þér Jenný mín. Afhverju ert þú ekki í einhverskonar stjórnunarstöðu ? Það veitti ekki af kjarnorkukvendi eins og þér til að taka til í þessu kerfi okkur. 

Á þing með þig kona.

Smjúts.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 23:25

9 Smámynd: Fríða Eyland

Þannig er þetta nú bara stelpur mínar í lögum hann er grunaður og ekkert sannað, þannig verður það að vera.

Það sem verra er að sönnunarbyrðin er öll hjá fórnarlambinu sennilega fjórar fimm yfirheyrslur þar sem hún verður að segja það sama aftur og aftur.

Aftur á móti verður ekki þjarmað eins að honum (kannski ekki rétt hann er útlendingur á fertugsaldri) yfirleitt nóg að neita, ljúga að hún hafi viljað þetta.

Síðast en ekki síst á hann eftir að nota ljót orð um hana og hafa eftir henni sóðakjaft sem allt er hluti af spunanum hjá þessum  ..rrum

Ég er mjög sammála M  

Fríða Eyland, 23.9.2007 kl. 23:25

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fríða, þetta hefur ekkert að gera með sekt eða sýknu á þessu stigi máls.  En rannsókninni er ekki lokið.  Hann á að mæta aftur á morgun.  Hann hefði fengið fastari rasskell hefði hann stolið hangikjötslæri.

Á þing Gurðún mín B?  Róleg, sniðug hugmyndeinkum með tilliti til þess að ég flýg á veggi reglulega vegna óþolinmæði.  Fæ dramaköst með jöfnu millibili þegar réttlætiskennd minni er misboðið.  Nebb, held áfram að blogga.  Maður getur þá falið færslurnar ef farið er yfir strikið

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.9.2007 kl. 23:32

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verð að viðurkenna að mín prívat og persónulega skoðun á hr. sýslumlanni ÓHK er slík, að það á að fara yfir embættirfærslur hans og virkilega skoða í alvöru hvort þessi maður er fær um að hafa þetta embætti með höndum.  Ég fullyrði að aldrei hefði  minn sonur komist upp úr sínum vesældómi eins og raunin er í dag, þrátt fyrir allt, ef þessi maður hefði ekki flutt sig í annað amt. Segi og skrifa.  'Eg skal standa við það hvar og hvenær sem er. 

Maðurinn er að mínu mati óhæfur í embætti.  Svo súméifjúvont.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2007 kl. 23:44

12 Smámynd: ViceRoy

Fyrirlít nauðganir að öllu leyti, en í nauðgunarmálum er því miður einflaldlega "Orð gegn orði".  Hver sem er getur sagt að hver sem er hafi nauðgað sér því miður.  Yfirleitt er fólk ekki sett í gæsluvarðhald nema það séu einhverjar haldbærar sannanir á hendur fólki, því annars væri allt á öðrum endanum og þá væru sömu aðilar og eru að rífast yfir þessu, að rífast yfir því hvað þessar "helvítis" löggur geti sent hvern sem er í gæsluvarðhald, bara fyrir það að einhver segi eitthvað um einhvern.

Þetta minnir mig svolítið á miðaldir þegar krakkar áttu það til að segja bæjarbúum að kona væri norn því hún hefði gert sér eitthvað, og það trúðu allir orðum barnsins og konan umsvifalaust brennd á báli... Ekki vildi ég sjá það hér, nema þá er nornin auðvitað orðinn "væntanlegur glæpamaður", og akkúrat hér á þessu bloggi er nánast verið að heimta að nornin sé "brennd" án þess að vitað sé að hún sé norn.

Ef löggan hefði DNA í höndunum, gaurinn engar fjarvistasannanir, þá væri hann mjög líklega í gæsluvarðhaldi... En hvað ætli það yrðu annars miklar ákærur á lögguna ef hún gæti gert það sem þið eruð að biðja um?

ViceRoy, 23.9.2007 kl. 23:56

13 Smámynd: Drífa Þórarinsdóttir

Ég ætla nú ekki að segja mörg orð um þessa frétt þó svo mig langi til að ausa úr mér en varlega skal fara í umræður um viðkvæm mál sem þessi á veraldarvefnum. Ég var hissa þegar ég frétti að maðurinn gengur frjáls um götur Selfoss (ef hann hefur þá ekki skroppið eitthvað annað svona af því hann fékk tækifæri til). Maður sem er eltur yfir sjó og land sökum ákæru ætti að mínu mati að sitja í varðhaldi þar til búið er að fá út úr rannsóknum en ég veit að maður er saklaus þar til sekt er sönnuð. Ég óska þess heitt og innilega að hægt verði að sanna sekt mannsins sem glæpinn framdi þó ég viti að það eitt og sér sé ekki nægilega stór plástur á sár konunnar og að þau muni seint ef aldrei gróa að fullu. Maður er greinilega hvergi óhultur

Drífa Þórarinsdóttir, 24.9.2007 kl. 01:10

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

Fáránlegt kerfi.

Heiða Þórðar, 24.9.2007 kl. 05:49

15 identicon

Einhv. annar að nota M, en þetta er ekki frænka mín.  En mikið rétt sem þú segir Jenný, glæpur ekki það sama og glæpur.  Sýnir sig hvernig þessir menn, já menn í kerfinu hugsa.

 Kv. M

M (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 08:24

16 identicon

er bara til skammar...

Eygló (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 13:25

17 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

segi það sama hérna og ég sagði á blogginu hjá Soley

það er ekki sami sýslumaður sem að fer með þetta mál og þvagleggsmálið.

lágmark að hafa svona grunnatriði á hreinu áður en það er farið að hrauna yfir mann og annan. 

Árni Sigurður Pétursson, 25.9.2007 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 2986901

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband