Leita í fréttum mbl.is

Með töluverðri virðingu fyrir lögreglunni..

..en róið ykkur á dramatísku tilburðunum.

Þeir láta eins og það eigi að afhjúpa eitthvað stórkostlegt listaverk.

Dópið er hulið pappírsrenningi og var "afhjúpað" kl. 10.

Hvað kostaði inn?

Ef konur létu svona, hvað ætli það yrði kallað?

Móðursýki?  Fyrirtíðaspenna?  Tunglsýki?  Dramakast?

Kannski allt þetta og meira til.

Á að blóðmjólka þenna fíkniefnafund til síðasta dropa?

Give me a farging break here!


mbl.is Lögreglan sýnir fíkniefnin sem fundust í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli það væri ekki bara kallað stjórnsemi og frekja.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 10:36

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Þetta er það hallærislegasta sem ég hef séð

Heiða B. Heiðars, 21.9.2007 kl. 10:40

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Úúúú, spennandi!! LOL, meiri vitleysan.

Bjarndís Helena Mitchell, 21.9.2007 kl. 10:43

4 Smámynd: Guðný GG

persónulega er nóg fyrir mig að þeir náðu þessum fíkniefnum .Ég þarf ekki að sjá þau 

Guðný GG, 21.9.2007 kl. 10:45

5 Smámynd: Gunnsteinn Þórisson

Stelpur, stelpur.... Þetta er fyrir okkur strákana sko ;)

Gunnsteinn Þórisson, 21.9.2007 kl. 10:51

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, við stelpurnar erum ekki SVONA athyglissjúkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2007 kl. 11:04

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ætli forsetinn hafi verið viðstaddur "afhjúpunina"?

Huld S. Ringsted, 21.9.2007 kl. 11:23

8 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Mér fannst líka mjög miklum tíma eytt í það á blaðamannafundinum í gær (Haraldur) að tala um það hvað lögreglan væri frábær og æðisleg. Eins og við vissum það ekki fyrir!!!  Er ekki búin að sjá afhjúpunina og nenni því ekki .... greinilega að verða svolítið kvenlegri með árunum.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 21.9.2007 kl. 11:36

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Við værum kallaðar alt þetta sem þú nefnir.

Kristín Katla Árnadóttir, 21.9.2007 kl. 12:01

10 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Já, skrýtinn blaðamannafundur - sagt það sem áður var búið að segja, boðið upp á spurningar en fæstum þeirra svarað

Ingi Geir Hreinsson, 21.9.2007 kl. 12:26

11 Smámynd: Blómið

Þeir fá svo fá tækifæri til að hreykja sér blessaðir   En heldur finnst mér nú DV vera fljótt að birta nöfn.  Finnst þetta frekar dapur þó ekki sé nema vegna aðstandenda sem eru örugglega mikið brotnir í dag

Blómið, 21.9.2007 kl. 13:27

12 Smámynd: Jens Guð

  Mikið assgoti fengu karlarnir gott "kikk" út úr því að fá tækifæri til að viðra sig með allt þetta glingur,  strípur og borða.  Þetta eiga þeir eftir að gera aftur og aftur. 

  Sérstaklega var fyndið að þegar þeir opnuðu fyrir spurningar þar sem að þeir gátu svarað:  "Við getum ekki greint frá því á þessu stigi málsins."

Jens Guð, 21.9.2007 kl. 13:49

13 Smámynd: josira

'Eg fyrir mína parta er alsæl að öll þessi fíkniefni fundust. Lögreglan vann sitt verk vel. Kominn er tími til að velgengi þeirra á þessum sviðum haldi áfram. Þeir máttu alveg gefa sér rós í hnappagatið núna. Megi þeim vegna sem allra best i stöðvun eiturlyfjaflæðissins til landsins í komandi framtíð...

josira, 21.9.2007 kl. 14:27

14 identicon

Þegar saman kemur hópur athyglissjúkra úr tveimur áttum, annar til að fá klapp á bakið (löggan) hinn til að vinna kapphlaupið um mest djúsí stöffið (fjölmiðlar) er ekki von á góðu. Ég segi eins og Jón Arnar. Þetta hjaðnar, sem betur fer. Aðalmálið fyrir okkur finnst mér vera að þetta fór ekki í dreifingu og svo það að þessi fundur segir mikið um stöðuna í fíkniefnamálum hér á skerinu.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 14:50

15 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Mynnir óneitanlega svolítið á hurðarhúninn í Höfða hér um árið, en gott að þetta fannst. Vonandi tekst að kafa alla leið við lausnina.

Halldór Egill Guðnason, 21.9.2007 kl. 15:57

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Auðvitað er bara stórkostlegt að efnin fundust.  Það er sjálfsmæringin og leikrænu tilburðirnir í fullum herklæðum sem urðu mér tilefni til færslunnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2007 kl. 16:19

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm sammála ykkur hér.  Rosashow um litla mús. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2007 kl. 16:27

18 identicon

 menn í búningum hehehehehehehe.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 19:34

19 identicon

Hvernig er þetta afhverju heldur þú að konur hafi gert þetta eitthvað öðruvísi, er ekki alltí lagi! Og hvað óskaplega fer fyrir brjóstið á mörgum hvað lögreglan er að sýna, er það ekki það sem við viljum, fylgjast með og hvað þá fjölmiðlarnir...

Ásdís Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.12.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 2987163

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.