Leita í fréttum mbl.is

ÚBS - I DID IT AGAIN!

 

Skrifaði færlsu um mál, sem var eiginlega útrætt.  Æi um svanina í London sem fólk er að veiða sér til matar.  Búið að ræða ólöglegan veiðiskap hér í hörgul áður og sniðugt að snúa sér að skemmtilegri hlutum.  Í bili a.m.k.

Í dag ætla ég á bókasafnið og ná mér í Smásagnasafnið "Frá sunnudagskvöldi til mánudagsmorguns" og endurnýja kynni mín við samnefnda sögu ásamt Dýrasögunni en þessi bók er auðvitað bók Ástu Sigurðardóttur. Ég er hrifin af þessum sögum, þ.e. skrifstílnum og ætla að velta mér aðeins upp úr þessu í fræðilegum tilgangi.  Er ekki mikill Ástu fan þar fyrir utan.  En þessar eru magnaðar og vel þess virði að lesa.

Ég ælta í þvottahúsið.  Já krakkar mínir, hér eru haugar af óhreinum fötum vegna þess að ég hef hreinilega ekki þorað niður í dýranýlendurnar í sumar.  Nú verð ég að takast á við óttann.  Ójá.

Ég slæ botninn í þetta í bili en spyr af hreinum áhuga fyrir matarsmekk annara?

Borðið þið svani? 

Ædóntþeinksó.

Úje


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er bara gott mál að fara í bókasafnið og fá sér bók eða bækur til að lesa.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.8.2007 kl. 10:38

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hei... þarna komstu með hugmynd. Ég er í fríi. Afhverju ætti ég ekki að fara á bókasafnið. Annars held ég að fyrsta mál á dagskrá sé að þvo hundinn. Hann liggur hér við hliðina á mér og ég geri ekki annað en að fitja upp á nefið.

Innbakaður svanur með smjörsteitum gulrófum og vanilluís er með því betra.

Jóna Á. Gísladóttir, 8.8.2007 kl. 10:40

3 Smámynd: HAKMO

Geturðu tekið smá þvott fyrir mig í leiðinni . Fjallið orðið svo hátt að ég þori ekki að leggja í það

HAKMO, 8.8.2007 kl. 10:46

4 Smámynd: Daði Einarsson

Hef ekki smakkað svan enn sem komið er en væri alveg til í að prófa enda alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt.

Daði Einarsson, 8.8.2007 kl. 10:47

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hakmo ég geri hvað sem er fyrir bloggvini mína, jafnvel að syngja og þvo þvott.

Jóna, ég dey, girnileg uppskrift (alvegslefandiafáfergjukall).  Þvoðu hundinn og lestu svo.

Smjúts krakkar mínir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.8.2007 kl. 10:48

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góð blogg í dag að vanda. Ég borða ekki svani og mun aldrei gera það. Vona að dagurinn þinn verði jafnagóður ljúfan. Knús að austan.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.8.2007 kl. 11:46

7 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Komin heim og borða ekki svani en hef heyrt af fólki sem borðar þá, eða hefur prófað!

Edda Agnarsdóttir, 8.8.2007 kl. 12:02

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Ásdís.  Velkomin heim Edda mín, mig dreymdi þig í nótt.  Ekkert svakalega alvarlegt. Hehe.  Dem kona var að vona að þú gætir gefið mér uppskrift af svanasteik.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.8.2007 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.