Sunnudagur, 29. júlí 2007
AÐ BREGÐAST VIÐ VONDUM FRÉTTUM
Það er misjafnt hvernig við bregðumst við válegum tíðindum. Þegar barnabarnið mitt lést fyrir 10 árum síðan sló ég frá mér í blindri reiði og hjálparleysi. Það var mín aðferð, þá.
Sumir skjóta sendiboðann.
Aðrir reyna að draga úr áhrifunum með því að tóna sig niður.
Sumir þegja og hugsa sitt.
Allt af þessu er leyfilegt. Illgirni er það hins vegar ekki.
Stundum er ég alveg fáránlega viðkvæm.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Stjórnmál og samfélag, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:28 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Nota bene
Áhugaverðir tenglar
www.myspace.com/noise1
Athugasemdir
Þröstur Unnar, 29.7.2007 kl. 20:59
Afi gekk út frá ömmu og skellti hurðum þegar sonur þeirra dó.
Þú ert yndisleg.
Jóna Á. Gísladóttir, 29.7.2007 kl. 21:02
Þið eruð yndislegir bloggvinir líka (búhú og ég meinaða)
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 21:06
Góð færsla hjá þér Jenný.
Ég lamast einhvernveginn í hnjánum og verð orðlaus við slæm tíðindi.
Marta B Helgadóttir, 29.7.2007 kl. 21:06
Já við bregðumst öll við hvert á okkar hátt. Það er þó skömminni skárra að bregðast við, einhvernveginn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 21:07
Ég fer og finn mér eitthvað nógu mikið að gera....
....verst hvað það dugir lítið!
Faðmlag til þín
Hrönn Sigurðardóttir, 29.7.2007 kl. 21:10
Ég er svo hysterísk að ég má varla heyra vondar fréttir. Fæ bara breakdown og vesen, er einmitt búin að vera alveg ómöguleg út af fréttum dagsins.
Maja Solla (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 21:11
Þetta er góð færsla hjá þér Jenný Anna - og sönn.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 29.7.2007 kl. 21:12
mæli með því að fólk finni sína leið út úr svona aðstæðum meðan þær særa ekki aðra um of, en alls ekki halda að þær bara hverfi án vinnu
Rebbý, 29.7.2007 kl. 21:17
Allt sorgarferli krefst ofboðslega mikillar vinnu. Sumir jafna sig aldrei á miklum missi. Öll eigum við okkar viðbrögð og aðferðir við slíka vinnu. En illgirni lýsir best þeim sem sýnir hana við þannig aðstæður! Þú átt samúð mína alla vegna barnabarnsins þíns Jenný, barnsmissir er eitthvað skelfilegasta sem hægt er að lenda í og ég viðurkenni að það er eitthvað sem ég óttast á hverjum degi og ég dáist að fólki sem að getur lifað með slíkum missi. Í mínum huga eru það hetjur einar sem að geta það! Kveðja!
Sunna Dóra Möller, 29.7.2007 kl. 21:22
Takk fyrir falleg orð. Hetjan í þessu máli er fyrst og fremst hún dóttir mín sem missti drenginn sinn. Æi lífið getur er svo margslungið.
Jenný Anna Baldursdóttir, 29.7.2007 kl. 21:27
þú átt mína samúð vegna barnabarnsins. Barnsmissir er að mínu mati eitt það erfiðasta sem hægt er að lenda í og þó að það séu liðin 23 ár hjá mér þá koma ennþá dagar sem ég syrgi eins og það hafi skeð í gær.
Huld S. Ringsted, 29.7.2007 kl. 21:59
Þú átt alla mína samúð elsku Jenný mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 29.7.2007 kl. 22:12
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 29.7.2007 kl. 22:16
Jenny, það að missa barn er líklegasta það versta sem maður upplifir. Og ég held að það skipti ekki máli hvort að það er barn eða barnabarn. Málið er að þegar við erum foreldrar og amma og afi, þá einhvernveginn erum við búin að sjá fyrir okkur að þau lifi okkur af. Við eigum samkvæmt lögmáli nátturunnar að deyja á undan þessum krílum. Við viljum gjarnan sjá fyrir okkur það að við fylgjumst með þeim vaxa og þroskast og svo sjáum við fyrir okkur hversu stolt við verðum af þeim.
Svo kemur eitthvað fyrir og veröldin eins og við þekkjum hana og vonumst til að hún verði hrynur. Það er sko ekkert sjálfsagt að fólk jafni sig á því.
Knús á þig Jenný mín og ykkur hinar sem þekkið þetta. Þið eruð hetjur.
Guð geymi litlu englana ykkar.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 22:26
Það er svo mikill sannleikur í því sem þú segir hér Jenný. Við bregðumst svo sannarlega misjafnlega við. Það er örugglega ekkert erfiðara í lífinu ef en það að missa barn og þegar barnið manns missir barn hlýtur að fylgja því ofboðslega mikil vanmáttarkennd því síst getur maður hugsað sér að eigin börn þurfi að fara í gegnum slíkt. Ég sjálf lærði margt og mikið um sorgina þegar mamma mín dó mjög snögglega úr kransæðastíflu. Hún var þá sextug og var hressari og sprækari en nokkur sem ég þekkti á hennar aldri og við vorum óvenjunánar mæðgur, eiginlega meira eins og bestu vinkonur. Ég brást við dauða hennar á þann hátt að hjálpa öllum öðrum að komast í gegnum sorgina. Ég tók pabba að mér og ég varð sálusorgar bróður míns en gleymdi að vinna með eigin sorg sem endaði náttúrulega með niðurbroti mörgum mánuðum seinna. Það er kannski þess vegna sem ég hef verið upptekin af því í dag að minna á hvað það er mikilvægt að aðstandendur þeirra sem dóu í þessum harmleik í dag fái alla nauðsynlega hjálp. Ég sé að við hugsum eins þar rétt eins og í svo mörgu öðru. Þú ert yndileg Jenny - smjúts til þín
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 22:37
Ps. Setti inn á mína síðu smá myndbrot af The Secret, ef þið hafið ekki séð hana. Hún er rosalegur áhrifavaldur á mann, sérstaklega ef manni líður ílla.
Guðrún B. (IP-tala skráð) 29.7.2007 kl. 22:37
Það að fólk bregst alltaf mismunandi við hinu ýmsu er svo satt, amma segir alltaf í því samhengi "það er fleiri en ein leið uppí Breiðholt". Allir eru að segja að það megi ekki blogga um þetta mál allt saman, ég segi að það hjálpar mér að vita hvernig öðrum líður, að lesa allar þessar góðu hugsanir og hvernig fólk getur staðið saman. T.d ég þekki þig ekki Jenný en þegar ég las þetta langaði mig að kíkja í kaffi til þín og knúsa þig. Tölum saman í staðin fyrir að þegja hver í sínu horni. Bloggum um tilfinningar okkar, hversu vitlausar sem þær eru, skoðanir hversu gamaldags þær geta verið og fyrst og fremst tölum um það sem liggur okkur á hjarta. Ég nenni ekki að lesa meira um "meðvirkni" eða að fólk ætti að skammast sín fyrir þetta og hitt. Og Jenný mér finnst þú ekki vera að endurtaka fréttir, þú ert umræðuvaldandi og ég elska þannig fólk. Aldrei hætta og ég sendi þér 4032 knús á þriggja sekúndna fresti, og ykkur öllum og Hananú
Garún, 29.7.2007 kl. 23:45
Ég held að það versta sem við gerum við sorgina er að þegja og fara inn í skel. Þá lokum við á hjálpina, og fáum ekki nauðsynlega útrás. Þegar við bregðumst þannig við, þá getum við ekki einu sinni grátið. Og það er sannað að það eru efni í tárum sem hleypa sorginni út, sem sagt læknandi útrás.
Við þurfum líka á samúð og hjálp að halda, og það er erfitt fyrir aðra að sýna slíkt ef við lokum á allt svoleiðis. Þannig að það er um að gera, að leyfa sorginni að fljóta og þiggja ástúð og knús. Þiggja það sem fólk vill gera fyrir mann. Vera upp á aðra kominn þann tíma sem það tekur okkur að ná áttum. Við erum félagsverur, og aldrei er meiri þörf á félagsskap en einmitt þegar okkur líður illa.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.7.2007 kl. 00:19
á þig mína kæra. Það er afar misjafnt hvernig fólk bregst við sorg, ég á enn í basli með mömmu (2002) og systur hennar sem fór núna í vor, ég er stundum full af asnalegri reiði út í allt og ekkert og vil hafa þær hérna hjá mér....
Knús á þig og dóttur þína, þetta er þungur kross að bera að missa barn.
Ragnheiður , 30.7.2007 kl. 00:53
Þið eruð svo yndislegar allar (þurfti að tékka á hvort það værum ekki bara við stelpurnar, ekki verra að eiga svona bloggvini.
Love u guys
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.7.2007 kl. 00:54
Ég skil þig svo innilega Jenný mín einhvernvegin fer maður samt í gegnum þessa hluti ..... sem betur fer!
Eva Þorsteinsdóttir, 30.7.2007 kl. 04:11
viltu koma i mat til min?
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, 30.7.2007 kl. 06:50
Góð færsla hjá þér og kommemtin við henni líka
Guðrún Þorleifs, 30.7.2007 kl. 08:33
Dúa ekki missa stjórn á þínu blæðandi hjarta. Þú kemur með mér í mat til Steinunnar Ólínu.
Takk öll fyrir kommentin.
Steinunn Ólína, ég gæti tekið þig á orðinu - hvað verður á borðinu?
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.7.2007 kl. 09:55
Ja hérna þetta er aldeilis lesning í morgunsárið héðan frá DK, en mikið er hún góð. Jenný, það er alveg einstakt hvað þú ert fær við að koma tilfinningum þínum í orð og ekki er það verra hvernig komment þú færð. Mikið er moggabloggið ríkt að hafa svona góðan bloggara.
Edda Agnarsdóttir, 30.7.2007 kl. 10:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.