Fimmtudagur, 12. júlí 2007
AF FRÆGU FÓLKI OG ...
...ég hef fengið staðfest að það var ekki óráð í mér þegar ég stóð nánast augliti til auglitis við Jodie Foster í fyrradag eins og ég bloggaði um. Í Blaðinu í dag stendur að hún sé stödd hér á landi með tveimur börnum sínum og maka. Eldri konan sem ég minntist á er sem sagt konan hennar.
Ekki misskilja mig, ég er ekki svona tryllingslega æst í að hitta frægt fólk en það er svo geðveik upplifun að vera að tjilla niðri í bæ, hér úti á ballarhafi og sjá svo eina af uppáhaldsleikkonunum glápa beint framan í mann. Það er algjört flipp-fyrirkomulag.
Húsbandið leysir stundum af á leigubílastöð. Hann hefur keyrt marga "fræga" og síðast TOTO. Hann kippir sér ekki upp við það þannig að það trufli merkjanlega stóiska ró hans. Sá eftirminnlilegasti er þó Tarantino sem var vægast sagt áhugaverður karakter (þið lesið um það í æfisögu húsbandsins) en hann gengur aldrei undir öðru nafni hér á heimilinu en "the passanger", eða "farþeginn". Skrautlegur náungi. Svo mikið er víst.
Þegar Inga-Lill vinkona mín var hér í síðasta mánuði, hitti hún norska vinkonu sína sem hún hafði ekki séð í nokkuð mörg ár, og hefur engin tengsl við Ísland, niðri í bæ á labbinu bara. Þær þurftu báðar áfallahjálp. Á dauða sínum á maður von. Kannski eru tímarnir svo breyttir að nú geti maður sagt með sanni: "Allar leiðir liggja til Íslands".
Ég panta næst hitta glæsilegasta mannflak í heimi, eða Keith Richards, þegar og ef ég þarf nauðsynlega að ganga fram á frægt fólk.
Það er aldrei nokkur andskotans friður fyrir þessu liði.
Góður Guð ekki láta Parísi Hilton detta í hug að skella sér í helgarferð til Reykjavíkur.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Ferðalög, kvikindiskapur og illt umtal, Lífstíll, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bláar eyllýar
- Bloggar
- Bækur
- danskar kjötbollur með sósu
- Dómar
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Femínistablogg
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Halloki
- Hamfarablogg
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hneyksli
- Íþróttir
- Jólafár
- Kjaramál
- kvikindiskapur og illt umtal
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Lúkas
- lygasögur
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfsdýrkun
- Sjónvarp
- Snúra
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Synt til sigurs
- Synt yfir sundið
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Þvagleggur
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Tenglar
Tónlist
Vinir og fjölskylda
Vinkonur
Ég les alltaf
Netmiðlar
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- draumur
- jonaa
- hronnsig
- larahanna
- skessa
- eddaagn
- amman
- annabjo
- annambragadottir
- annaragna
- asthildurcesil
- kolgrima
- birnan
- bjarnihardar
- brjann
- brylli
- christinemarie
- danjensen
- lillagud
- disadora
- einari
- einarorneinars
- emm
- estro
- evabenz
- fifudalur
- garun
- gelgjan
- gunnarggg
- halkatla
- halo
- hildurhelgas
- heidah
- helgamagg
- hildigunnurr
- iaprag
- hlynurh
- hugarfluga
- hugsadu
- ibbasig
- katrinsnaeholm
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jara
- jensgud
- katlaa
- krummasnill
- krissa1
- lehamzdr
- ktomm
- laufeywaage
- lauola
- lindalinnet
- madamhex
- maggij
- majaogco
- mariakr
- markusth
- meistarinn
- motta
- nimbus
- olinathorv
- pollyanna
- ragnarfreyr
- ragnhildur
- ringarinn
- rosa
- roslin
- saedis
- sailor
- salkaforlag
- skordalsbrynja
- skrifa
- snar
- soley
- steingerdur
- steinnhaf
- steinunnolina
- stinajohanns
- sunnadora
- svetlana
- thuridurbjorg
- tibet
- tigercopper
- toshiki
- unns
- valgerdurhalldorsdottir
- wonderwoman
- vefritid
- vest1
- bidda
- zeriaph
- killjoker
- sisvet
- gudrununa
- dora61
- possi
- gelin
- silfri
- jyderupdrottningin
- gretaulfs
- sibba
- baldvinj
- stjaniloga
- bokakaffid
- kreppukallinn
- jonerr
- gerdurpalma112
- adhdblogg
- astafeb
- snjolfur
- haddih
- brell
- reisubokkristinar
- little-miss-silly
- baldis
- olofdebont
- kikka
- jarnar
- thorolfursfinnsson
- birnast
- vrkristinn
- leifur
- astroblog
- bjarkey
- manisvans
- siggisig
- nordurljos1
- gunnaraxel
- ragnar73
- sij
- kreppu
- runirokk
- gotusmidjan
- dorje
- slembra
- skari60
- must
- fhg
- aevark
- fridaeyland
- hedinnb
- cakedecoideas
- taraji
- audurproppe
- kollakvaran
- finni
- arnaringvarsson
- samstada
- drum
- gretarogoskar
- tbs
- vistarband
- valdivest
- fingurbjorg
- gustichef
- skulablogg
- andreskrist
- fasteignir
- rognvaldurthor
- helgatho
- gullfoss
- bailey
- jennystefania
- gattin
- annaandulka
- ansy
- gumson
- berg65
- bjarnimax
- brahim
- elin
- gudlaugbjork
- dramb
- gudrunkatrin
- hvilberg
- himmalingur
- ingaragna
- naflaskodun
- kiddirokk
- sigurborgkrhannesdottir
- joklamus
- stjornlagathing
- saemi7
- unnurgkr
Athugasemdir
Ó mæ god, eyjan okkar er bara algjörlega "in" þessa dagana.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.7.2007 kl. 14:51
Þú kemur mér í gott skap elsku Jenný.
Kristín Katla Árnadóttir, 12.7.2007 kl. 15:36
Frú Jenný!
Skil nú ekkert í þér að vaða ekki í Ms. Foster, taka smá spjall og selja svo aðstoðarritstýru Vikunnar það á svona hálfa millu!?
En hvað ætlarðu svo að gera við Keith ef þú hittir hann? FAra með hann til SElfoss að hitta "Stærsta litla sýslumann heims" ´Laf Helga, eða vísa honum á elliheimilið Grund!?
Magnús Geir Guðmundsson, 12.7.2007 kl. 16:34
Keith Richard hefði bara gott af vænu lagi af kremi úr Bláa Lóninu, óþynntu!
Haukur Nikulásson, 12.7.2007 kl. 16:55
Magnús Geir ef ég geng fram á Richards þá mun ég að sjálfsögðu reyna að lífga hann við með því að gefa honum hjartahnoð. Hehe
Fer adrei með gull og gersemar til sýslumanns, ekki heldur þess með húfuna.
Ég reyni eimitt að vera rosa kúl á svona mómentum eins og þegar ég sá Foster, fæ aumingjahroll vegna fólks sem flaðrar upp um þá sem eru "þekktir". Gat því ómögulega farið að taka viðtal við hana. Geriða næst
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 16:57
Ég held að jafnvel að lækning í hinu magnaða bláa lóni sé of seint, of seint fyrir karlinn. Sá nýlega mynd af honum með mömmu sinni og hann lítur mun verr út en meðal lík viku eftir greftrun um sumartímann.
Já Haukur minn það er mörg mannanna raunin.
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 16:59
Mannurinn minn er að fara á tónleika mep Keith og félögum í Patken 5. ágúst.
Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 19:02
Gott hjá honum, ég nenni hinsvegar ekki að sjá þá á breiðtjaldi úti við sjóndeildarhringinn. Ég vil sjá þá álengdar úti á götu. Híhí. Af hverju ferðu ekki með?
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 19:03
Ég og systir mín vorum að storma upp Klapparstíg dag einn fyrir nokkrum árum og sáum að stórum jeppa hafði verið lagt upp á gangstétt. Eitthver hópir af köllum (3) og ein lítil kona lokuðu gangstéttinni milli búðar og bíls. Við sem erum Íslenskar breddur létum vaða inn í hópinn og ég ruddi köllunum úr vegi en systir mín stjakaði við konunni. Okkur fannst þau dónar og frekjur. þetta reyndist vera Pink og fylgdarlið sem við ruddum í burtu af gangstéttinni. Og urðum ekkert lítið hissa.Það er alveg spurning hver var frekjan og dóninn þarna.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 09:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.