Leita í fréttum mbl.is

ÞÚSUNDIR MANNA Í KÓPAVOG..

..til að mótmæla því að Goldfinger verði opinn áfram.  Mikill hugur er í fólki þar sem það streymir gegnum Fossvogsdalinn, með mótmælaspjöld, allir sameinaðir í markmiðinu, Íslendingar, útlendingar, konur og menn.  Loksins náðist samstaða.

Óviðeigandi tenging við frétt? Ó nei, þetta er óskalisti sem ég er að birta hérna í von um að samvinna náist á Stór-Reykjavíkursvæðinu að leggjast á eitt, gegn vændi, mansali og súludönsum.  Hvar sem þá er að finna.  Þá verður gott að búa í Kópavogi og Reykjavík (segi svona).

Annars verður mikið um dýrðir í Kópavoginum annað kvöld því þá fagnar Ungmennafélag Íslands 100 ára afmæli sínu með stærsta landsmóti sem haldið hefur verið hér á landi. 

Úje!


mbl.is Þúsundir manna á leið í Kópavoginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ógni M

Er enginn orðinn leiður á að setja út á listræna tjáningu?

Það eru einfaldlega ekki allir heppnir með að finna sér maka og aðrir sem einfaldlega gleyma því að það er til eitthvað sem heitir kjörþyngd. Eigum við ekki að leyfa þessum svitabollum að svala þörfinni við að stara á föngulega líkama og fylla upp í rúnkminnið???... svona kaup kaups og þær stúlkur fá eitthvað fyrir sinn snúð. Kannski sumar algerlega ófærar um að gera nokkuð annað en að kalda líkamanum í formi þar sem ekki er fyrir að fara heilasellum í annað?

Þetta er jú ein elsta atvinnugrein mannsins og ég hef.. satt að segja aldrei séð annað en aflagavaxið kvennfólk með úfið hár mótmæla þessari þjónustu. Kallast að snobba niður á við. Svona eins og listaspírur í listaháskólanum ganga í mislitum sokkum og skræpóttum fötum í flatbotna skóm.. þá snobba feministar niður á við með að vera ílla til hafðar í rauðum rúllukragabol xxxl gallabuxum, af einhverri gerð sem aðeins fæst á hagkaup vegna bossastærðar...

 En svona að öðru... helv gott veður úti samt...

Ógni M, 4.7.2007 kl. 17:47

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Skrýtið ég kannast ekkert við þessa lýsingu á feministum.  OMG og ég sem var að kaupa mér peysu á raðgreiðslum í KM.  Þú ert fordómafullur karlinn minn.  Leiðinlegt.

Veðrið er gott.  Vertu úti að leika.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.7.2007 kl. 17:50

3 Smámynd: svarta

Ég er feministi og virkjunarsinni. Velti því fyrir mér hvort ég sé aflagavaxin? Er reyndar ekki alltaf til höfð. Vissi bara ekki að stafaði af feminískum áhrifum. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

svarta, 4.7.2007 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 2986898

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30