Leita í fréttum mbl.is

ÞÓTT FYRR HEFÐI VERIÐ?

1

Nú vill ríkisstjórn Bandaríkjanna loka pyntingarbúðunum í Guantánamo Flóa.  Þeir vilja fangana í fangelsi í sínum eigin löndum og vilja tam. hjálpa til við að byggja fangelsi í Afganistan.  Ég spyr eins og asni?  Hví fangelsi?  Hafa þessir menn verið dæmdir fyrir eitthvað? Það hefur amk. farið fram hjá mér.

Því fyrr sem þessum skelfilegu búðum verður lokað, því betra og ég held að Bandaríkjamenn ættu að láta heimalönd þessara manna um afdrif þeirra.  Þetta er orðið gott hjá þeim.


mbl.is Guantánamo fangar fari til síns heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

já segi það með þér. Þó fyrr hefði verið. Mannfyrirlitningin er alger,setja upp fangelsi á einskismannslandi til að geta sniðgengið öll alþjóðalög um fanga.

Ragnheiður , 22.6.2007 kl. 20:41

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Innlitsknús

Heiða Þórðar, 22.6.2007 kl. 21:20

3 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Almáttugur. Konu hreinlega fallast hendur yfir allri vitleysunni sem viðgengst í þessum heimi. Svo sammála þér.

Laufey Ólafsdóttir, 22.6.2007 kl. 22:01

4 identicon

Það sorglega við þessa ákvörðun er að skaðinn er löngu skeður með þessa menn sem vistaðir hafa verið þarna, það er meira og minna búið að eyðileggja líf þeirra og ekki ósennilegt að menn sem jafnvel báru ekki snefil af hatri til BNA séu núna uppfullir af hatri til viðbótar við allar aðrir skemmdir sem þeir hafa orðið fyrir bæði á sál og líkama.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 22.6.2007 kl. 22:11

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Close it and blow it up.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.6.2007 kl. 22:34

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Tilvist þessara ógnarbúða hafa fyllt mig magnleysi. Vonandi eru betri tímar framundan ... en ár í viðbót og nokkrum mánuðum betur í runnunum (les með Bush við völd) það er engu að síður óbærileg tilhugsun.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 22.6.2007 kl. 23:07

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jebb. Löngu orðið gott hjá þeim.

Jóna Á. Gísladóttir, 22.6.2007 kl. 23:20

8 Smámynd: María Kristjánsdóttir

já, sammála ykkur öllum og eitt enn sem veldur mér áhyggjum er það hversu lítið eru ræddar aðrar aðfarir Bush og Blair að persónufrelsi og lýðræðinu í skjóli "hermdarverkarógnarinnar" - hvenær kemur að okkur?

María Kristjánsdóttir, 22.6.2007 kl. 23:42

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi Skúli í þessari færslu er verið að fjalla um Guantánamo búðirnar, ekki fangelsi í öðrum löndum.  Það fer svo innilega í taugarnar á mér þegar Bandaríkjamenn tala um Gitmo, eins og það sé gælunafn á góðum vini, og nú gerir þú það líka.  Þú getur réttlætt þessar hörmungarbúðir þar til þú verður blár í framan en það skilar engu, amk. ekki á þessum fjölmiðli.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.6.2007 kl. 10:47

10 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Heyr heyr Jenný Anna!

Laufey Ólafsdóttir, 23.6.2007 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.