Leita í fréttum mbl.is

THE EINARSDÓTTER´S ON THE ROAD

01102

Oliver að tjilla í flugvél með mömmsl       Mammsl og Oliver í bústað            Ég elska þig mamma mín

Nú er Maysan mín ásamt Robba og Oliver, fallegasta smádreng í heimi,  búin að tæma geymsluna á Bræðró en það gerðu þau um síðustu helgi þegar þau komu hingað í nokkra daga.  Úff nú er Bræðró bara eign einhvers fólks úti í bæ sem ég þekki ekki og mér kemur ekki einu sinni við.  Maysan mín er núna formlega flutt til London og það varð allt í einu svo raunverulegt.  Búhú (og þetta var alvörunni búhú).  Í gær fóru nokkrar stundir í að skoða gamlar myndir af stelpunum mínum þremur, allt frá vöggu og fram til dagsins í dag.  Tíminn hefur flogið áfram og allt í einu eru litlurnar mínar þrjár orðnar fullorðnar konur.  Granny-J saknar þess stundum af hafa ekki "the infamous three" til að kljást við.  Ef uppeldi hefur eitthvað að gera með útkomu á börnum þá spyr ég hvar eru VERÐLAUNIN fyrir að vera hin hm.. fullkomna mamma?

3068

Oliver fær að makkast hjá Ö-Brynju        The father "Chronic"           Bestuvinkonur Andrea-Maysan og Sóley

Nú er að leggjast í regluleg ferðalög til að hitta ömmubarnið hann Oliver og Amma-Brynja þessi elska sem er að fluffast,  getur þess vegna farið til þeirra mun oftar en ég,  heldur áfram að setja inn myndir á barnaland fyrir Granny-J og aðra áhugasama. (Elska þig Brynja mín).

Hér kemur fjölskyldugalleríið frá síðustu helgi en það tók nottla engin mynd af mér.  Er of sæt hreinlega eða eitthvaðWhistling

6077

Jenny og Oliver hjá Helgu frænks     Barnabörnin þrjú og Saran            Jökull, Oliver og Sara "på balkongen"

10

Úje kominn til London í sólina


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru greinilega heimsins yndislegustu börn og barnabörn. Það eru mín börn líka en ég á nánast allan barnabarnapakkann eftir (á eitt skáömmubarn) - bíð spennt eftir að taka á við það hlutverk - það er greinilega mikið hamingjulíf að vera amma - kona verður nánast græn af þú veist hverju  - annars

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 11:28

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þú ættir að fá glæsileg verðlaun fyrir þessa orma þína. Bíddu bara. 

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 4.6.2007 kl. 11:37

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta eru falleg börn og barnabörn. Þetta eru skemmtilegar myndir.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.6.2007 kl. 12:11

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Eru þetta ekki einmitt verðlaunin elsku Jenný! Ég græt yfir öllu í dag og líka þessu en það er af krúttukasti. Til hamingju!

Laufey Ólafsdóttir, 5.6.2007 kl. 00:11

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk elskurnar mínar.  Ég grét í allan gær.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2007 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.