Leita í fréttum mbl.is

ER ÞETTA BARA LETI Í MANNINUM?

Það skyldi þó aldrei vera leti sem kemur í veg fyrir að Geir hafi áhuga á öðru stjórnarmynstri en því gamla?  Þessu er vísir.is að leiða líkum að þegar þeir skrifa um plottið á bak við endurnýjun á ríkisstjórninni. Þar stendur ma.

"Eftir því sem liðið hefur á daginn hafa líkurnar á að ríkisstjórnin sitji áfram verið að aukast. Margir sjálfstæðismenn hafa óbeit á Ingibjörgu Sólrúnu og vilja ekki vinna með henni Hugmyndin um stjórn með Vinstri grænum þykir nokkuð fjarstæðukennd. Steingrímur og Ögmundur hafa heldur ekki spilað hina pólitísku refskák sérlega vel eftir að úrslit kosninganna urðu kunn. Árásir þeirra á Framsóknarflokkinn eru mjög skrítnar. Minnihlutastjórnir ættu auðvitað að koma til greina hér eins og annars staðar - en tilboð þeirra til Framsóknar er ekki pólitískt klókt."

Merkilegt þetta með óbeitina.  Getur það virkilega verið að um persónulegt antipat sé að ræða í garð sumra kollegana í pólitík?  Hvernig á að vera hægt að bera virðingu fyrir þessu fólki?

PLOTTIÐ:
"Hvernig lítur þetta þá út? Plottið er einhvern veginn svona: Framsókn fer í stjórn, það er óvíst hvað hún tekur marga ráðherrastóla. Fyrir Jón Sigurðsson er þetta lífsnauðsyn. Annars er stuttum tíma hans í pólitík lokið.

Það er líka annað í myndinni - Siv Friðleifsdóttir. Hún styrkti stöðu sína með því að verða eini þingmaður flokksins á höfuðborgarsvæðinu. En flokkseigendafélag Framsóknar vill ekki að Siv fái meiri metorð. Ef Jón þarf að taka pokann sinn er eins líklegt að hún geri aftur tilkall til þess að verða formaður. Með því að fara í ríkisstjórn er hægt að gera Siv óskaðlega. 

Þingmenn Framsóknar eru ekki nema sjö. Það gæti verið praktískt erfitt fyrir flokkinn að starfa í ríkisstjórn. En á því er lausn. Ráðherrar flokksins munu ekki sitja á þingi, heldur verður kallað á varamenn. Þá geta fleiri framsóknarmenn komist að þótt þeir hafi ekki fengist kosningu - og þá hefur flokkurinn mannskap til að manna helstu þingnefndir."

KENNINGIN UM LETINA Í GEIR:

"Geir virðist helst kjósa að starfa áfram með Framsókn. Kannski er það bara leti í manninum. Hann vill ekki taka neina áhættu. En á það er auðvitað að líta að Sjálfstæðisflokknum hefur liðið afar vel í í stjórnarsamstarfinu. Framsókn hefur tekið brotsjóina og ábyrgð á stóru umdeildu málunum."

VANGAVELTUR UM AFDRIF FRAMSÓKNAR:

"Fyrir Framsóknarflokkinn er þetta algjört hættuspil. Þetta gæti hreint út sagt orðið banabiti flokksins. Kjósendur líta almennt svo á að flokkurinn hafi takmarkað umboð til að sitja áfram í ríkisstjórn - og þá alls ekki Jón Sigurðsson sem féll harkalega í kosningunum. Umfjöllun um flokkinn verður mjög neikvæð í kjölfar þessa, rétt eins og þegar Halldór Ásgrímsson var dubbaður upp sem forsætisráðherra.

Ráðherrar flokksins vilja þetta. Eftir yfirlýsingarnar fyrir kosningar og á kosninganóttina hafa frammámenn í Framsóknarflokknum verið í óða önn við að selja sjálfum sér þessa hugmynd. Kannski þurfa þeir ekki beita sig miklum fortölum.

Það er hins vegar spurning um almenna flokksmenn og grasrótina. Þar verður ábyggilega hart deilt um þessar fyrirætlanir sem kunna að varða sjálft líf flokksins."

Ef þessi greining blaðamanns er rétt þá er nú heldur betur meira í gangi á bak við tjöldin en fólk lætur sér almennt detta í hug.  Allt er þetta spurning um vald og ekkert annað en vald.  Það er eitthvað sem snýr í mér maganum þegar lýðræðið gerir flokki eins og Framsókn, sem galt mikið afhroð í kosningunum, kleyft að halda áfram að stjórna landinu.  Þeir virðast ekki þekkja sinn vitjunartíma, þurfa þá ekki að vera leikreglur til verndar lýðræðinu?



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi það með þér.  Ótrúlegt ef þankagangurinn er svona.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.5.2007 kl. 20:53

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég veit bara að Geir er ekki latur.  Annars bíð ég bara róleg þangað til sú feita er búin að syngja.  

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2007 kl. 21:06

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta er eina mynd lýðræðisins sem þessir menn þekkja.

Að þekkja sinn vitjunartíma er að nýta sér það semí boði er. Og það er heilmikið eftir af verðmætum í eigu þjóðarinnar sem íhaldsfyrirtækin og S hópurinn eiga eftir að koma í réttar hendur. Þessi ríkisstjórn situr þar til í haust að búið verður að afgreiða vatnalögin.

Árni Gunnarsson, 14.5.2007 kl. 21:21

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þú ert óxla klár! Ég vil helst stjórn þeirra sem sigruðu kosningarnar D og V! (þá rætist líka völvuspáin ... en hún minntist líka á Frjálslynda og Framsókn ... urrr)

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.5.2007 kl. 22:45

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kannski þú svampur (andlits og nafnlaus) getir gefið okkur eins og einn lýðræðiskúrs?

Já Gurrí ég er ógisla klár, verkjar hreinlega undan því.  Strokum út völvuspána, má ekki heyra á Framsókn minnst og er það ekki bara líklegt að Frjálslyndir hoppi með, Guðjón Arnar bauð Geir það í Kastljósinu í gær. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband