Leita í fréttum mbl.is

I MADE HIM AN OFFER HE COULDN´T REFUSE

Norska útlendingastofan ákvað nú síðdegis að skipta sér ekki af komu hóps rúmenskra ferðamanna til landsins frá Íslandi. 

Norðmenn vilja meina að fólkið hafi komið til landsins með lögmætum hætti inn á Schengensvæðið og geti dvalið í þrjá mánuði í landinu sem ferðamenn.

Ég skammast mín fyrir að vera íslendingur.  Löggan segir reyndar að rúmenunum hafi ekki verið vísað úr landi heldur boðin aðstoð við að fara.  Munið þið eftir myndinni um Guðföðurinn?  Þegar þeir gerðu fólki tilboð "sem þeir gátu ekki hafnað"?  Erum við rasistar við íslendingar?


mbl.is Norðmenn skipta sér ekki af komu Rúmena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ansi stutt í rasisma hjá sumu fólki.  En sá rasismi beinist líka gagnvart öðrum íslendingum, ef þeir til dæmis segja eitthvað sem ekki fittar inn í viðtekna venju.  Eða vilja vekja athygli á ákveðnum hættum í þjóðfélaginu.  Við mættum stundum hugsa aðeins áður en við fellum dóma.  Bæði í þessu máli og mörgum öðrum Jenný mín.  Og ég er ekki að beina þessu til þín elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2007 kl. 17:41

2 Smámynd: Anna

Lögreglan hafði, að mér skilst, afskipti af þessu fólki vegna þess að til þess að mega spila á götum úti á Íslandi þarf leyfi frá viðkomandi lögregluyfirvöldum sem þetta fólk hafði ekki.  Svo veit maður náttúrulega ekki meira um samskipti lögreglunnar við þau, hvort þau hafi ákveðið sjálf að fara eða hvort það hafi verið einhver þrýstingur.  En þeim var ekki vísað úr landi í eiginlegri merkingu.

Æ mér finnst þetta frekar sorglegt allt saman, helst vegna þess að mér finnst sorglegt að fólk skuli vera í þeirri aðstöðu að þurfa að betla til að lifa, sama hvaðan það er eða hvar það er.

Anna, 9.5.2007 kl. 18:13

3 identicon

Ég hef hins vegar sjaldan verið eins stoltur að vera íslendingur.  Þessu fólki er þröngvað til að koma hingað, betla sér til viðurværis til að glæpahringir fái aurinn þeirra. 
Margir hafa verið að benda á að þetta séu ágætustu "tónlistarmenn", ég vil meina að það eitt að halda á harmóniku og misþyrma úr henni eitt stef tímunum saman geri þig ekki að tónlistarmanni.   Og eins og bent hefur verið á þá þarf leyfi til að koma fram sem götulistamaður og þá þarf einnig atvinnuleyfi, þessi hópur sóttist eftir hvorugu, enda ekki að hugsa sér þetta sem löglega vinnu.
Ég tel það ekki rasisma að vilja sporna við frjálsu flæði inní landið og jafnvel velja úr hverja maður vill hafa hér.  Það er ekkert að því að hafa harðduglegt fólk sem kemur til að vinna, þeir sem koma til að betla hafa hér ekkert að gera.  Ég var hins vegar alls ekki stoltur af því að vera íslendingur þegar letingjar héðan flyktust til danmerkur og svíþjóðar til þess eins að fara á sósjalinn þar.

Letingjar eru hvergi vel séðir...

Örvar (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 21:27

4 Smámynd: halkatla

þarna misstum við mjög svala gesti úr landi

megi þeim ganga betur næst og bara í framtíðinni almennt. 

halkatla, 9.5.2007 kl. 22:16

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Örvar minn mikið rosalega þarf lítið til að gera þig stoltan af að vera íslendingur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.5.2007 kl. 00:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 11
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 2987161

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 78
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband