Leita í fréttum mbl.is

KÆRLEIKSHEIMILIÐ VIÐ LAUGAVEGINN

1

Vegna mikillar umfjöllunar um næturlæti, ölvun, ofsaakstur og fleira skemmtilegt, birti ég ein af mína fyrstu færslum á blogginu í tilefni þess.  Ég veit svo innilega hvernig fólki (eins og henni Önnu, bloggvinkonu www.anno.blog.is líður).

Fyrir ekki svo mörgum árum síðan tókum ég og húsbandið þá ákvörðun að við vildum búa í miðbænum.  Ég vann á Laugaveginum og við þóttumst hafa himni höndum tekið þegar við komust yfir íbúð í sömu götu.  Kva nú myndi ég ganga til vinnu og það gerði ég vissulega í þessi ár sem við héldum út þar.

Við vorum ekki með börn á skólaaldri og fannst æðislegt að geta búið og starfað í hringiðunni.  Stutt að fara í alla skapaða hluti.  Mikið rétt það gekk eftir.  Íbúðin okkar var heljarstór "herrskapslägenhet",  hátt til lofts með gegnheilu parketti á gólfum, rósettum og hvað það heitir allt saman.  Það þurfti hins vegar að gera heilmikið fyrir íbúðina.  Við komum okkur fyrir. Gamlir hippar og bóhemar voru alsæl með hýbýlin.  Svo gaman hjá okkur. Liggaliggalá. Það átti eftir að breytast.  Við fengum að kynnast einu og öðru miður skemmtilegu í húsinu.  T.d.

..að fleiri en við sóttumst eftir að búa á Laugaveginum en áðstæðurnar fyrir því voru ekki alveg þær sömu, og okkar.  Fyrstu árin var djammað stöðugt bæði á efri og neðri hæð hússins.  Lögreglan hefði þurft að hafa lykil.  Til að gera langa sögu stutta lagaðist ástandið á neðri hæð eftir ár eða tvö, stuðboltarnir í efra héldu uppteknum hætti en nú "bara" frá fimmtudögum til sunnudags.

..að pípulagnir og allskonar rör og rennur geta virst vera í lagi inni í íbúð hjá þér en þurfa alls ekki að vera það í öllu húsinu.  Fyrsta Þorláksmessudag í herrskapsíbúðinni var ég að þvo gólf og skutlaði mér eftir eina sígópásu til að ná í gólftuskuna ofan í fötuna og skipta um vatn.  Ómægodd! Það var rottuungi í fötunni.  Ég brjálaðist alla leið. Það var hringt á meindýrabanann (viðkomandi rotta hafði þó þegar verið úrskurðuð látin) og hann hóf tryllta leit að fjölskyldu ógeðismeindýrsins.  Fjöslkylda kvikindisins lýsti með fjarveru sinni.  Gat fannst á bak við þvottavél og alla Þorláksmessunótt var steypt uppí gert og græjað.  Ég svaf nánast ekkert í mánuð á eftir.Sick

..að það getur beinlínis verið lífshættulegt að gleyma að loka útidyrahurðinni svo ég tali nú ekki um hurðinni að íbúðinni.  Lærðum af biturri reynslu að menn með hnífa og önnur morðtæki og tól eiga ótrúlega oft erindi um Laugaveg að nóttu til og vilja komast inn í hlýjuna.. með góðu eða illu.

Eitt og annað gekk á í sjálfu húsinu sem á mælikvarða þess sem á undan er talið var tómur kökubiti (lesist peace of cake).  Stíflaðir vaskar, stífluð sturta (einstaklega gleðilegt skemmtiatriði) vatn úr lofti frá íbúð í efra og fleira sollis smotterí.

Nú en það var voðalega gaman að búa við Laugaveginn um jólin, svakalega jólalegt fannst mér fyrstu tvær helgarnar í desember, fyrsta árið.  Það var stemmari á Laugaveginum fyrir jólin, alveg sérstaklega um helgar.  Lúðrasveitir, kórar, jólasveinar og allskyns atriði sem hafa eflaust hlýjað fólki í jólainnkaupum um hjartaræturnar þegar það átti leið fram hjá.  Átti leið fram hjá skrifa ég. En þegar þú hefur atriðin beint undir glugganum þínum allan liðlangan daginn, föstudag, laugardag og sunnudag og á hverjum degi eftir að nær dregur jólum þá er maður orðin svona létt pirraður (orðinn morðóður brjálæðingur) arg.

Nú veit ég að íslenska þjóðarsálin er í kór.  Ég veit það vegna þess að undir glugganum mínum voru blandaðir kórar um helgar, drukknir og metnaðarfullir söngvarar sungu fullum hálsi.  Á sumrin og í góðum veðrum var tónleikahald líflegt frá mánudegi til sunnudags.  Standby listahátið bara.

Ég varð sambands sérfræðingur.  Fólk; ekki ræða út um málin fyrir utan "verkamannsins kofa" eða þannig! Ég var nauðug  sett inn í ástarmál stórs hluta þeirra Reykvíkinga sem una glaðir úti um nætur.  Brothljóð og skellir voru hluti af proppsinu þarna við Laugaveginn og elsku gangstéttin mín stundi yfir öllum ælulögunum sem höfðu komið sér fyrir beint fyrir utan útidyrnar hjá mér og görguðu á mig í öllum sínum dásamlega margbreytileika fleirihundruðogfimmtíu magainnihalda þegar ég kom út um morgna.

Ég ætla ekki að vera neikvæð (jeræt) en er bara að deila með mér reynslu minni af því að vera miðbæjarrotta (jæks).  Auðvitað voru góðar hliðar á þessari búsetu.  Stutt í allt og maður með í lífinu í orðins örgustu.  En það er sniðugra að eiga heima annarsstaðar og kíkja í miðbæinn í heimsókn. 

Eftir fjögur ár í sælunni játuðum við okkur sigruð og horfðumst í augu við það að við værum ekki bóhemar og hippar lengur heldur kvartgjarnir smáborgarar.  Við fluttum upp fyrir snjólínu í Reykjavík og búum þar við fuglasöng og náttúru.  Við köllum það happyhome. Hinsvegar má segja að heimsóknartíðnin hafi lækkað tölurvert og það þurfi að hafa meira fyrir öllum útréttingum. En svona er lífið alltaf verið að velja og hafna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Virkilega skemmtileg lýsing hjá þér, það er nefnilega ekki það sama að búa í miðbænum og miðbænum. En þ´hefur væntanlega upplýst kaupendur íbúðarinar um eitthvað af þessu

Tómas Þóroddsson, 12.3.2007 kl. 01:59

2 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Tómas Þóroddsson, 12.3.2007 kl. 01:59

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Minnist þess ekki að hafa haldið yfir þeim neinn rosalegan fyrirlestur.  Held að flestir vita á hverju þeir eiga von þegar þeir flytja í alfaraleið

Takk annars.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.3.2007 kl. 02:10

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Takk fyrir að minna á þetta. Maður vill sjá rómantíkina við miðbæinn, kaffihúsin og sólskinið ... en gleymir alveg þessum hliðum á honum. Ég gladdist enn meira við að vera flutt á Skagann við þessa færslu þína! Elska þó miðbæinn en nýt hans nú án þess að búa fast upp við hann lengur!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.3.2007 kl. 09:18

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ég ætla að mæta með Dúu og syngja. Læt einn brandara flakka hér með í tilefni jólanna

Gates of Heaven at Xmas

3 blokes at the gates of heaven.

St. Peter says that in order to come they must find a Christmas theme out of what is in there pockets.

1st bloke goes into his pockets and pulls out a lighter and says it represents a candle. Very good St. Peter says in you go.

2nd bloke checks his pocket and finds some keys, jangling them he says there you go St. Peter the keys represent bells. Very good he says in you go.

3rd bloke checks his pockets looking for something and pulls out a pair of women's knickers. St. Peter cries what in Gods name have they got to do with Christmas............wait for it.

The bloke replies there carols.

Hrönn Sigurðardóttir, 12.3.2007 kl. 09:49

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Híhí

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.3.2007 kl. 09:52

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég bý í miðbænum og ELSKA það! Myndi reynda ekki hvarfla að mér að búa við Laugaveginn... en er rétt ofan við hann og verð ekki fyrir neinum truflunum þar. 

Heiða B. Heiðars, 12.3.2007 kl. 11:26

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skemmtileg frásögn, þó hún sé ekkert skemmtileg til upplifunar.  Hehehe... En alveg get ég imyndað mér allt sem þú varst að lýsa þarna.  Góð  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.3.2007 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband