Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

ROKKAÐ TIL VINSTRI

22

Nú er bara að hvetja alla tónlistarunnendur að drífa sig á Grandrokk annað kvöld þar sem Ung Vinstri-Græn bjóða upp á dúndurmúsík.  Það kostar ekki inn og mér finnst tilvalið að fólk komi og hiti sig upp fyrir sumarið í góðum félagsskap.

Góða skemmtun


Í BLÁUM SKUGGA

22

Jæja þá er það komið á hreint.  Jakob Frímann verður í 1. sæti á lista Íslandshreyfingarinnar í Suðurkjördæmi.  Ég á kannski ekki að vera hissa yfir því að Jakob skuli finna sér farveg hjá hægri flokki en það kom mér á óvart að þessi eðalkrati færi yfir til Ómars og co. Mér hefur fundist eins og það væri einhver þingmannsörvænting að hrjá Jakob.  Eins og hann gæti ekki unað sér þar sem hann væri ekki í öruggu sæti.  Auðvitað vilja allir hafa áhrif en það er hægt að hafa þau án þess að sitja á þingi.  Nú stendur Jakob, pólitískt  í bláum skugga Íslandshreyfingar.  Verði honum að góðu.

036

Íslandshreyfingin hefur á sér einhvern kverúlantablæ og ég get ekki alveg sett fingur á hvað það er sem gerir þá að svona ótrúverðugum valkost að mínu mati.  Samt er margt ágætis fólk þarna innan um og saman við.


ZERO LANDSFUNDUR EN FYLGIÐ EYKST

12

Kona hoppar nú bara hæð sína úr gleði.  Ný skoðanakönnun um fylgi flokkanna í Suðurkjördæmi sýnir að VG bæta við sig mestu fylgi frá síðustu kosningum.  VG fengi tvo þingmenn en við fengum engan í síðustu kosningum.

Ég hélt að það kæmi einhver niðursveifla næstu dagana eftir landsfundi Sf og Sjálfstæðisflokks. Það virðist ekki vera fyrir utan þessa skoðanakönnun sem birt var um helgina.  Ég óska sjálfri mér og öðrum kjósendum VG innilega til hamingju og er viss um að við verðum stóru sigurvegararnir í vor.

Jíbbískibbí


mbl.is VG og Sjálfstæðiflokkur auka fylgi sitt í Suðurkjördæmi á kostnað Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRÁ ÖÐRUM SJÓNARHÓL

22

Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera hefur sent út á ensku nú í hálft ár og náð miklu áhorfi í Evrópu, hluta Asíu, Ástralíu og jafnvel í Ísrael.  Það er þó merkilegt að Bandaríkjamenn segja ekki markað fyrir sjónvarpsstöðina þar en forráðamenn stöðvarinnar segja að ástæðan sé af pólitískum orsökum.  Það er gott að það bætist í fjölmiðlaflóruna.  Það er ekki verra að geta séð hlutina frá fleiri en einum sjónarhól.  Flott framtak hjá Al-Jazeera.


mbl.is Mikið áhorf á Al-Jazeera í Evrópu og Asíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FATABRJÁLÆÐI

22

Mig dreymir um fataherbergi.  Án gríns.  Þrátt fyrir að vera algjörlega laus við löngun til að eignast hluti svona almennt, eins og einbýlishús, jeppa, sumarbústað, hús á Spáni, flatskjá, verðbréf  og skartgripi þá er ég haldin þeim "ljóta" galla að vera fatasjúk.  Þetta er fjölskyldusjúkdómur.  Mínar sex systur eru eins.  Við vorum ekki gamlar þegar við fórum að gera út á London.  Þá á ég við að einhverjar okkar fóru til London í vikudvöl eða svo og keyptum og keyptum og keyptum á okkur sjálfar og þær sem heima sátu.  Þrátt fyrir aukinn þroska á flestum sviðum (hm) þá situr þessi löstur eftir og dafnar eins og púkinn á fjósbitanum.  Fataskápurinn er að springa úr ofneyslu.  Þegar ég opna hann hrynja flíkurnar í fangið á mér, nær allar svartar. Jakkar, kjólar, peysur, bolir, skyrtur og pils, allt svart.  Maðurinn minn sér engan mun á fötunum mínum.  Hann sér ekki einu sinni mun á Prada og H&MW00t.

029

Einhver klæðagúrú sagði mér einhvertímann að hver einasta kona væri FATALAUS ætti hún ekki "þann litla svarta" þe svartan kjól sem hægt er að nota við flest fínni tækifæri.  Ég hef tekið manninn bókstaflega og þegar ég fór í gegnum fataskápinn minn um daginn komst ég að raun um að ég á sex brúklega "litla svarta".  tveimur hef ég ekki einu sinni haft tækifæri til að klæðast þar sem félagslífi mínu er viðbrugðið eftir að ég varð alsgáð.  Ég sé mig ekki spranga inn á AA-fundi íklædd sparikjól og háum hælum (hm) ekki þar fyrir að á slíkum samkomum er víðsýnin í hávegum höfð og enginn myndi kippa sér upp við það. 

 Dætur mínar þrjár hafa fengið fatasýkina með móðurmjólkinni.  Sýnu verst haldin er þó Maysan mín, miðbarnið sem býr í London og vinnur fyrir verslanirnar "The Arrogant Cat".  Hún keypti sér íbúð með fataherbergi!!  Það er ekki verið að láta sig dreyma neitt.  Bara framkvæmt.  Sóttin er sem sagt ekki í rénum þarna í heimsborginni og áður en hún flutti út seldi hún gestum og gangandi stóran hluta klæða sinna fyrir góða upphæð.  Hún er búin að endurnýja það allt fyrir lifandis löngu.

Helga mín var að koma frá Boston.  Hún keypti tvennar peysur handa móður sinni.  Hún veit sem er að ekkert gleður móðurhjartað meira en eitt eða tvö fataplögg þegar um veraldlega hluti er að ræða. Saran mín fer ekki út fyrir landsteinana án þess að kaupa eitthvað handa fataóðri móður sinni. Ég tek það fram að dætur mínar eru ferðaglaðar konur!!

  Það er náttúrulega skömm að því að vinstri konan og feministinn sé svona hégómagjörn.  Mytan er að við séum allar mussukerlingar í tréklossum, með svart-hvítt sjónvarp. Hehe.  Það leiðréttist hér með.


SUMARDAGURINN FYRSTI.

22

Svei mér þá,  það er að bresta á með Sumardeginum fyrsta.  Reyndar er staðsetning þessa dags á almanakinu alveg út úr kortinu en ég veit að sakvæmt dagatalinu munu vera jafndægur á vori þann dag.  Rökrétt væri þá að þessi dagur héti einfaldlega jafndægur að vori.  Hvern er verið að blekkja?    Ég man eftir sjálfri mér á upphlut, í sportsokkum og titrandi af kulda.  Samt var spennan algjör.  Þetta var æfing fyrir 17. júní sem var uppáhaldsdagurinn minn fyrir utan aðfangadag.  Á Sumardaginn fyrsta í bernsku minni voru sölutjöld í Lækjargötu þar sem mátti kaupa pylsur, popp og blöðrur.  Íslenski fáninn var þar líka í hávegum hafður.  Í minningunni var mér bókstaflega alltaf kallt.  Ef ekki var hríðarbylur eða frost þá forringdi svo að ég kom gegnvot heim. Við þræluðum okkur undantekningalaus í skrúðgönguna.  Amma mín var eins og björgunarsveit fyrir mig og mínar vinkonur og hafði heitt súkkulaði tilbúið þegar við hrísluðumst heim úr bæjarferðinni allar príma kanditatar fyrir blöðrubólgu.  Íslendingar eru bjartsýnir þegar beðið er eftir sumrinu.  Það veit náttúrulega hver maður að sumarið kemur í júní og stundum ef heppnin er með um miðjan maí.  Við búum á Íslandi og ekki við öðru að búast.  En við getum látið okkur hlakka til. 

Ég veit um eina konu sem fer ekki fet á Sumardaginn fyrsta sem verður nk. fimmtudag.  Hins vegar ætla ég að æða í bæinn þ. 1. júní nk. með flagg og blöðru og halda upp á sumarið þannig að eftir verið tekið.

029


BIRTIR UPP UM SÍÐIR

029

Það er yfirlýst stefna þessarar ritsjórnar að vera glöð í sinni þrátt fyrir oft neikvæðar fréttir og aðra óáran sem aftur og aftur skella á höfði þessarar ágætu stjórnar.  Sumir dagar eru erfiðari en aðrir.  Í raun eru flestir dagar góðir en einstaka, bara einstaka dagur má falla sem fyrst í gleymskunnar dá.  Ég vaknaði örg.  Bálill reyndar sem er fremur sjaldgæft í mínu tilfelli.  Nú orðið er ég alltaf svo glöð yfir nýjum degi.  En hvað um það í morgun var ég illa pirruð um leið og ég opnaði augun.  Ég veit enn þá ekki hvers vegna en það sem af er þessum degi hef ég haft allt á hornum mér.  Ég held hins vegar, að ein af ástæðunum sé að ég hékk fram á smátímana í stað þess að fara að sofa á eðlilega snemma.  Ég fór að hugsa um fortíðina, fólk og atburði og varð æst og pirruð.  Það leiddi til þess að ég gat ekki sofnað og var andvaka lengi nætur.  Svo vakna ég svona.  Ég hef hummað fram af mér eðlileg samskipti það sem af er degi, finnst ekki að maður eiga að bjóða upp á skemmtiatriði í formi fýlu og pirrings.  Ég hef legið yfir AA-fræðunum til að reyna að koma mér í jafnvægi.  Þetta er að skila sér svona smátt og smátt.

30

Það er að bresta á með sólskini núna bæði í geðslagi og fyrir utan gluggann minn.  Þvílíkur léttir. Ég er svo fegin að hafa ekki þurft að hringja í Skattinn, Orkuveituna, Ríkisútvarpið og Tryggingastofnun ríkissins.  Mér skilst að þar sé óliðlegasta fólkið í símsvörun.  Hm... ég er heppin kona.

AbanibiabonibaWhistling


ERUM VIÐ RASISTAR?

22

Ekki vinsælt orð rasismi geri ég mér grein fyrir.  Í umræðu almennt er hann yfirleitt klæddur í feguri búning.  Fólk hefur áhyggjur af velferð útlendinga í landinu og enn meiri áhyggjur af því hvort fólk af öðrum og oft framandi uppruna sé að taka vinnu frá innfæddum og síðast en ekki síst er fólk með áhyggjur af menningunni og móðurmáli viðkomandi landsW00t.

Ég verð að segja að þessi skoðanakönnun á "hertum reglum" um landvist útlendinga slær mig verulega illa svo ekki sé nú meira sagt. Rúmlega helmingur þjóðarinnar  eða 56,2% er hlynntur því að settar verði strangari reglur um heimildir útlendinga til að setjast að á Íslandi.  Um 70% þeirra eru kjósendur Framsóknarflokksins.  Í Framsóknarflokknum eru samkvæmt þessu margir, margir rasistar.

029

Ég spyr mig hvað fólk vill herða í sambandi við reglur um útlendinga?  Halda íslendingar að svona stórum hluta að hér séu frjálslyndar reglur í sambandi við flutninga erlends fólks hingað til lands?  Ef svo er þá eru við á villigötum. Við tökum ákaflega lítin þátt í að taka hér á móti flóttamönnum.  Höfum alltaf látið nágranna okkar um þau mál.  Hér má fólk koma til að vinna.  Vill fólk hertari reglur gegn því?  Hvað með verk eins og Kárahnjúka (svei), jarðgangnagerðir og fleiri atvinnugreinar sem tæpast hefðu getað skilað af sér væri ekki fyrir þetta "óæskilega" vinnuafl.  Hvað með allar konurnar sem halda þjónustustofnunum okkar gangandi (spítölum, elliheimilum, skólum ofl.).  Eigum við að herða reglur og hleypa bara hinum Norðurlandabúunum inn í landið og kannski "dashi" af Bretum? Hvernig væri að fólk færi nú að skilgreina upp á nýtt?  Útlendingahatur (ótti) er oft skefjalaus hræðsla þeirra óupplýstu í hverju samfélagi.  Rosalega finnst mér leiðinlegt að við skulum vera svona illa upplýst hér á Íslandi okkur sé fyrirmunað að sjá hið frjóa og skemmtilega við litríkt samfélag sem kippir sér ekki upp við að vera öðru vísi og er óhrætt við fjölbreytileikann.

Yfir helmingur þjóðarinn, takk fyrir, vill hertar reglur.  Eruð þið ekki að djóka í mér?

"If it walkes like a duck, acts like a duck.... it´s probably a duckPinch


mbl.is Meirihluti hlynntur hertum reglum um landvist útlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUNNUDAGSHEIMSÓKN

22

Ég fékk tvær kunningjakonur mínar í snögga kaffiheimsókn í kvöld.  Við ræddum ma kosningarnar, þe aðallega tvær okkar.  Hin hélt því fram sem oftar að hún væri ópólitísk.  Það er bláköld trúa mín að það sé ekki hægt að vera ópólitískur, hins vegar sé þessi röksemdafærsla notuð þegar fólk vill ekki og nennir ekki að taka afstöðu.  Þessi ópólitíska kunningjakona mín er hins vegar með skoðanir og heilmikið attitjúd í sambandi við þær.  Hún setur þær fram af ákveðni, með þóttasvip á milli samanbitinna tanna.  Hún er algjör andstæðingur feminisma, viðurkennir ekki tilvist glerþaksins og vill meina að konur komist áfram á eigin verðleikum ef þær bara nenni því sem sé nú ekki algengt.   Á hennar heimili hefur ríkt þjóðarsorg síðan setuliðið hvarf héðan.  Þau geta ekki á heilum sér tekið hún og eignmaðurinn.  Nú getur hvaða kommúnistaríki sem er hertekið landið!  Hún er sem sagt alls ekki pólitísk og hún er EKKI uppfærð í heimsmálunum á 15. mín. fresti (W00t).  Þessa kunningjakonu mína hef ég ekki séð í nokkuð mörg ár.  Hún kom vegna þess að hin vinkonan sem býr í Hollandi var í heimsókn og leiðir okkar þriggja lágu saman fyrir nokkuð mörgum árum vegna vinnu.  Sú frá Hollandi er mikil baráttukona.  Hún veit hvað hún vill og það sem meira er um vert: Hvað hún vill alls ekki.  Þær fóru að rífast meðan ég bætti á könnuna og voru bálillar á svip þegar ég (blásaklaus) birtis með skarpheitt kaffið handa þeim. 

029

Nú ég ætla ekki að tíunda það sem fram fór okkar á milli enda yrði mér þá hugsuð þegjandi þörfin.  Er nú þegar í ónáð hjá annari þeirra. En ég verð að segja ykkur frá því að sú ópólitíska ætlar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn (eins og svo margir "ópólitískir"gera) og ég spurði hana illkvittnislega hvort hún myndi  listabókstafinn þeirra.  Það var nefnilega sollis þegar við unnum saman þá hitti ég hana á kjörstað með eiginmanninum.  Þó fóru inn í sitthvorn kjörklefann og um leið og hún var horfin á bak við tjöldin gall í henni "Magnús hvort átti ég að setja X við D eða G?". Frk. ópólitísk.is varð ekki par glöð yfir þessari upprifjun minni, hafði skilið húmorinn eftir heima (eða hafði aldrei átt hann til) og rauk á dyr.  Eftir sátum við Holland og hlógum okkur máttlausar.  Þarna varð ég einni "vinkonu" fátækari og var rétt í þessu að þakka almættinu fyrir þá miklu gjöf.

Ég hef sankað að mér allskonar fólki í gegnum árin.  Þeir minna aðlaðandi hafa hrunið úr umgengi mínu eins og flugur, án þess að til einhverra uppgjöra kæmi.  Ein og ein skítabomba í fortíðardraugaformi fellur þó af og til að mér ásjáandi.  Annars er ég aöl svakalega heppin með vinkonur og óvini mína myndi ég ekki þekkja á götu þó líf mitt lægi við.Wink

Ég reikna með að ég hefði getað þagað, verið kurteis og ljúf og að fleira en kaffið hefði þá runnið ljúflega niður en eftir að mér rann þá nenni ég ekki lengur að "búllsjitta". Það tekur tíma, það er leiðinlegt og maður verður afskaplega ósáttur við sjálfa sig.

SíjúgæsHeart

 


SVONA GERUM VIÐ II

22

Ég get ekki látið hjá líða að birta hér nokkur gullkorn til viðbótar úr bók Helgu Sigurðardóttur "Bökun í heimahúsum" frá því Herrans ári 1934. Svona áður en hún fer í bókaskápinn aftur.  Er búin að grandskoða þessa litlu bók og er orðin margs fróðari.

Við förum aftur í kaflann "ýmsar leiðbeiningar".  Helga kann greinilega margt fyrir sér varðandi hina ólíklegustu hluti sem eiga sér stað í eldhúsi. Hún segir:

"Hjartarsalt: Hjartarsalt er hvítt duft og er mjög sterkur þefur af því.  Hentast er að geyma það í glasi með glerloki.  Það er mest notað í smákökur".

Það er rétt hjá Helgu þetta með hjartarsaltið og lyktina.  Ég varð beinlínis veik sem stelpa þegar amma mín lét mig þefa að því.  Og hvað með öll þessi ílát sem Helga er alltaf að nefna? Áttu íslenskar húsmæður allskyns blikk, járn- og glerdósir með varíerandi lokum á, á lager?  Maður spyr sig?  Áfram heldur eldhússérfræðingurinn:

"Að geyma eggjahvítur: Eggjahvíturnar eru geymdar á köldum stað og er örlitlu af salti stráð yfir þær eða köldu vatni helt yfir þær".

Þetta fer með mig.  Á maður að hella vatni yfir eggjahvíturnar bara sí svona?  Eyðileggjast þær ekki þegar vatnið blandast saman við??  Hef ég misst af einhverju í öllum þeim tímum í efnafræði sem ég skrópaði í? Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.  Og næst síðasta ráðleggingin kemur hér:

"Að hræra deig: Sama er til hvorrar handar deig er hrært.  En gæta skal þess, að hræra ekta sandköku ætíð til sömu handar.  Eftir að hveiti og lyftiduft er komið saman við má ekki hræra það meira en nauðsyn krefur.

Ég er svo forviða.  Þarna er komin skýringin á endemisfrægð minni sem floppari á bökunarsviðinu.  Ég hef ALLTAF hrært sandköku til beggja handa! Hehe ég skil varla orð af þessu fyrirkomulagi.  Skil orðin en bökunarheimurinn er mér framandi.  Og að lokum:

"Að smyrja brauð: Bezt er að smyrja brauð með eggi, sem hrært er saman við mjólk eða vatn.  Einnig má gera það með hræðri eggjahvítu.  Hentast er að gera það með pensli".

Hefur konan aldrei heyrt talað um smjör?? Var þetta viðbitið anno 1934?  Kona spyr sig.  Rosalega eru tímarnir breyttir. 

Konur hljóta að hafa verið að í húsmóðurdjobbinu 24/7.  Þetta hefur verið þrælahald.  Þarna er nánast allt gert frá grunni.  Konur búa meira að segja til sitt eigið lyftidúft, súkkat og fleira.  Nánast allt sýnist mér.

Nú legg ég þessa fróðlegu bók Helgu Sigurðardóttur aftur í bókaskápinn og er orðin mun upplýstari um aðstæður húsmæðra á þessum árum.  Það er svo margt hægt að lesa á milli línanna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.8.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 2988133

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband