Leita í fréttum mbl.is

Þetta er mín síða og ég pirrast ef mér svo sýnist!

 AimingGunAtComputer

Í dag hef ég verið bissí, bissí, upptekin og högst opptaget.

Ég hef sýslað margt, hugsað mikið og áorkað ýmsu.

Nema að lesa Netmoggann vegna téðra anna.

Þangað til núna og blasir ekki við mér þessi skelfilega frétt!

Marlyn Manson er með svínaflensu.

Látum vera að einhverjir nóboddís stráfalli vegna títtnefndrar flensu en að Marlyn skuli fá hana og jafnvel einhverjir fleiri valinkunnir menn - ómæfriggings god!

Þessu var ég nærri því búin að missa af vegna þess að ég var í öðrum hlutum og að því er mér fannst merkilegri en að liggja á netinu.

Klárlega mun ég gæta mín í framtíðinni.

En ég skil ekki eitt.  Af hverju fær fræga fólkið flensu?

Ég hélt að það væri aldrei veikt.

Það borðar nánast aldrei, drekkur bara kampavín og nartar í kransakökur í besta falli.

Pissar tæpast - hvernig stendur á þessu?

Svo mælist ég til þess við Moggann að hann vinni fréttirnar betur hér eftir.

Það stendur ekkert um hversu háan hita Marlyn er með.

Ekkert um hvort hann drekkur nóg af vatni og er búinn að kúka.

Já ég veit, þoli ekki svona "fréttir" sem mega svo gjörsamlega missa sig.

Ég get varla farið inn á visi.is vegna stöðugra heimskufrétta um "fræga" fólkið.

En í dag ætla ég að leyfa mér að að pirrast yfir þessu máli hérna og öðrum svipuðum.

Af hverju?

Jú af því þetta er mín síða og ég pirrast ef mér svo sýnist.

It´s my party and I cry if I want to - þið vitið.


mbl.is Marilyn Manson er með svínaflensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

já það er nú aldeilis frábært að vera updeitaður svona um fræga fólkið og svínflensuna.  En sem betur fer er hann vel haldinn, annað með Ron Wiesley  Óli bóndi fékk líka svínaflensu hann býr hér vestur á fjörðum.  Hann var lagður inn á sjúkrahúsið.  Það kom samt ekki í mogganum.  Hann er sennilega bara nóboddý og ekkert frægur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.9.2009 kl. 16:12

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Og hver er hún... eða kannski hann ? Æðislegt lag

Jónína Dúadóttir, 23.9.2009 kl. 17:01

3 identicon

Þarna eyddiru nokkrum mínútum í tilgangslaust tuð...

Fréttin var birt í dálknum "Fólkið"; dálkur sem er sérstaklega tileinkaður misgáfulegum fréttum af fræga fólkinu. Þetta tuð í þér væri skiljanlegt ef fréttin hefði birst í dálknum "Erlendar fréttir"... það eru engin lög sem segja til um það að netmiðlar megi bara birta fréttir um hámenningu, viðskipti eða stjórnmál. 

Það eru heldur ekki til nein lög sem neyða þig til þess að lesa um heilsufar fólks sem þú hefur lítinn áhuga á.

Nobody (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 17:46

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nobody: Ég má, ég má, ég má, ég áetta síðu.

Jamm.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.9.2009 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband