Leita í fréttum mbl.is

..og Mússólíní var mannvinur

Hlustuðuð þið á Sprengisand í morgun á Bylgjunni?

Ekki?

Þar misstuð þið af stórfrétt börnin mín södd og sæl.

Þór Saari vill leigja útlendingum auðlindirnar.

Láta þær til hæstbjóðenda.

Vá, að tala um úlf í sauðagæru.

Svo kannast hann ekki við að það séu átök í BH.

Æi, segir hann, einn þingmaður gekk úr þinghópnum.  Hva?  Kökubiti.

Jú svo eru einhverjir tólfmenningar að bjóða sig fram til stjórnar, iss, eiga sér ekki mikinn hljómgrunn innan hreyfingarinnar.  Asnalegt lið sem vill gera sjálfa Borgarahreyfinguna að stjórnmálaflokki.  Hneyksli.

Svo er hann eitthvað að tala um að fólk gangi úr stjórnmálahreyfingum á hverjum degi.

No big deal með það sko.

Svei mér þá að maður þarf ekki að vera forspár til að sjá fyrir sér að þingmaðurinn í lítillæti sínu vippi sér í Sjálfstæðisflokkinn svona miðað við þær skoðanir sem hann setur fram í þessum stórmerkilega þætti.

Og til að fullkomna syndaregistur þessa nýja þingmanns fólksins með pottana og sleifarnar (vó, hvað þetta er langt frá sannleikanum), þá lokar hann fyrir þær athugasemdir á blogginu sínu sem eru honum ekki þóknanlegar.

Borgarahreyfingin, hið nýja stjórnmálaafl sem segir klækjastjórnmálum stríð á hendur og vinnur í rótinni og algjörlega lýðræðislegan máta.

Jeræt og Mússolíni var mannvinur.

Þátturinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er gott að búið sé að bera kennsl á flugumanninn í hreyfingunni. Það gerir uppbygginguna auðveldari.

Útaf með manninn. Ævilangt bann!

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:03

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Dona fer fyrir þezzum 'Treehuggíng Whalekizzerz' ...

Steingrímur Helgason, 8.9.2009 kl. 00:05

3 identicon

Jepp, ævilangt bann!

Lissy (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 00:07

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Kúvendingin er grunsamlega snörp. Ætli hann sé búinn að fá nóg og sé að undirbyggja tilefni til að fara eða láta henda sér út. Hann getur nefnilega ekki gengið út sí svona án formála. Þá væri hann rúinn öllu trausti.

Mér finnst þetta hljóma eins og paródía hjá honum, satt best að segja. Svona eins og þegar ráðamenn taka það upp hjá sér að verða fatlaðir einn dag til að vinna góðu málefni brautargengi.

"Þór Saari tók á sig það þrekvirki málstaðnum til framdráttar að verða Jóhanna Sigurðardóttir í einn dag. Hann sagði í lok dags að honum hefði aldrei liðið jafn ílla og yrði að drífa sig heim í sturtu og svo í djúphreinsun og nudd.  "Þetta var ógeðslegt" sagði Saari. "Mér fannst eins og ég væri skriðdýr í hamskiptum. Þetta á eftir að færa mér martraðir langt fram í tímann" safði hann í gegnum grátviprurnar, greinilega nokku skekinn."

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:11

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

"Áhorfendur í Skjaldborgarleikhúsinu við Austurvöll sögðust vera miður sín eftir að hafa horft á túlkun Saari. Margir sögðust vart vita hvort þeir ættu að hlæja eða gráta.  "Það þarf gríðarlega ófyrirleitni og fífldirfsku til að ná fram svo áhrifaríkri túlkun, en Þór hefur sýnt það áður að hann hefur alltaf verið sprungnasta peran í seríunni, svo í raun kom þetta ekki mikið á óvart." sagði einn leikhússgesta að lokum."

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:24

6 Smámynd: Dúa

Kva? Hann segir að það sé allt í gúddí þarna í BH fyrir utan einhverja 12 með leiðindi og svo einn þingmann sem fór. Hversu lengi tekur það fólk að múra sig inni í fílabeinsturni? Tja, eftir nokkra mánuði á alþingi t.d.

Dúa, 8.9.2009 kl. 00:24

7 Smámynd: Dúa

Ertu að semja eða vitna í eitthvað Jón Steinar?

Dúa, 8.9.2009 kl. 00:28

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er bein tilvitnun í árdegisfréttatíma Velgjunnar á fm 9fötin keisarans, úa mín.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:33

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Afsakið leiðrétting:

D...úa mín.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:34

10 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Líklega var þetta annars í súrdeigisfréttatímanum. Man það ekki alveg.

Það er þrennt sem að maður missir þegar maður eldist, en það er minnið og ...svo man ég ekki hva hitt tvennt var.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:36

11 Smámynd: Dúa

Ok

Dúa, 8.9.2009 kl. 00:38

12 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svoneriddabara. Life ist Life.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:44

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

& allir fóru til Hanz & háGrétu....

Steingrímur Helgason, 8.9.2009 kl. 00:49

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ach ja, Hansl und Gretl.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 00:54

15 Smámynd: Garún

Úff mig skortir bara orð varðandi Borgarahreyfinguna!  úff og mig skortir orð varðandi pólitík yfir höfuð.  Er núna að setja á mig hanska og á leiðinni útí garð að moka oní holuna!

Garún, 8.9.2009 kl. 10:22

16 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ef þú værir ekki svona góð vinkona Heiðu, sem nú prédikar sáttavilja og samstarf, þá væri þessi pistill bara svona eins og einn af þínum venjulegu. En þessi augljósi vinskapur ykkar gerir hann svolítið eymingjalegan. Þetta sýnir í raun sáttavilja sem eru álíka marktækur og stefna Vinstri grænna fyrir setu þeirra í stjórn.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.9.2009 kl. 10:27

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Lísa: Ef þú værir ekki eiginkona hans Gunna þá værir þú nærri því marktæk.

Svo er ég alveg hætt að nenna rausinu í þér.

Garún: Baráttukveðjur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.9.2009 kl. 10:36

18 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég bið svo fólk um að kynna sér orkumál og sölu orku Landsvirkjunnar frá því álverið í Straumsvík var byggt. Einnig hvar samkeppnisstofnun og samkeppnislög koma að þessu máli. Einnig vil ég benda á okkar helstu auðlind - fiskinn í sjónum - þar sem kvótinn er veðsettur í topp. Svo væri gott að fá málefnaleg rök fyrir því hvernig á að virkja auðlindir okkar til að fá nauðsynlegt fjármagnsstreymi inn í landið til að byggja upp atvinnulíf og auka samkeppnishæfni okkar á alþjóðamarkaði.

Síðan getið þið farið að tæta hausa og bylt landinu!

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.9.2009 kl. 10:36

19 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Já - ég er konan hans Gunna, stúdera meistaranám og er á kafi í þessum málefnum frá eigin hálfu. Tala því fyrir minn munn en ekki annarra. Eins trúi ég því að innherjadeilur séu ekki vænlegar til vinnings.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.9.2009 kl. 10:38

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá Lísa, ég dáist að þessum hæfileika þínum til að vera sammála alla leiðina sammála ef það kemur frá ákveðnum "höfuðstöðvum".  Talandi um kamelljón.

Varðandi vinskap minn við þennan eða hinn þá mættirðu kynna þér málið.

Hef ábyggilega verið jafn oft ósammála Heiðu og sammála.

Enda tel ég það þroskamerki.

Gæti sagt þér sögur af heitum deilum okkar á milli en nenni því ekki.

Svo er annað.

Áhugi minn á BH kemur til af fleiri en einni ástæðu.

En ég ætla ekki að fara út í að ræða þær við þig.

Ég get lofað þér því að sá áhugi er byggður á flestu öðru en vinskap mínum við Heiðu sem ég er þó ákaflega sátt við enda veit ég hvar ég hef hana sem er ansi fátítt í þessari BH sem snýr að mér.

Og hættu svo að vera þetta óþolandi búmmerang sem þú ert hérna inni hjá mér.

Bloggaðu heima hjá þér vúman.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.9.2009 kl. 10:42

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert prótótýpan af innherjadeilu sem er örugglega eitthvað fancy nafn yfir ágreining um málefni í öðrum flokkum.

ARG.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.9.2009 kl. 10:44

22 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Jams - ég hef marga hæfileika. Kann líka að prjóna sokka afturábak.....

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.9.2009 kl. 10:55

23 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Tók eftir að mottóið á blogginu þínu er "Lífið er snilld."  Virði það að þú gangir ekki svo langt að kalla það "tæra snilld", en ég er þó viss um að meirihluti landaþinna er ekki alveg í þeim fíling núna.

Að lesa athugasemdir þínar er eins og að hlusta á símsvara í heilaþvottastöðinni Framtíðin burt.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 11:17

24 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sneiðina átti að sjálfsögðu hún Lísa í Undalandi.

Jón Steinar Ragnarsson, 8.9.2009 kl. 11:18

25 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Takk Jón Steinar. Þetta er örugglega fín sneið. Ég á bara svo erfitt með að skilja fólk sem nærist á heift og leiðindum að ég var ekki alveg að fatta hana - en takk samt.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.9.2009 kl. 11:25

26 Smámynd: Sigrún Haf

hmm heift og leiðindi, ég get ekki betur séð en að þú og maðurinn þinn stundi það grimmt þessa dagana ??

Og btw mér fannst það frekar fyndið þegar ég vissi að þið væruð hjón :D

Þið allavega passið mjög vel saman, það eitt er víst....

Sigrún Haf, 8.9.2009 kl. 12:53

27 Smámynd: Heiða B. Heiðars

.........og ég er ennþá bara í því að telja upp að tíu.

Heiða B. Heiðars, 8.9.2009 kl. 13:00

28 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Ég tel mig leiðrétta - en aðrir telja það leiðindi. Mat þess sem les.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.9.2009 kl. 13:12

29 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ef ég verð kjörin í stjórn Borgarahreyfingarinnar mun Lísa verða ofarlega á lista yfir þakkir til þeirra sem stuðluðu að því

Heiða B. Heiðars, 8.9.2009 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband