Leita í fréttum mbl.is

Ljótur leikur

Það er ábyggilega ekki auðvelt að vera stjórnmálamaður á tímum internetsins þar sem nafnleysingjar geta stundað rógburð óáreittir.

Ég hef reyndar ekkert á móti því að fólk taki þátt í umræðu án nafns, þ.e. þegar það er innan eðlilegra velsæmismarka.

Auðvitað er gagnrýnin grimm á stjórnmálamenn í þessu ástandi sem nú ríkir en þeir sem skrifa undir fullu nafni stíga auðvitað varlegar til jarðar en þeir sem fela sig í hugleysi við tölvurnar sínar bak við byrgða glugga.

Ég hef algjöra samúð með Björgvini G. Sigurðssyni sem nú er verið að vega að úr launsátri.

Nafnlausir rógberar segja að Björgvin sé á fylleríi á skemmtistöðum og á kvennafari.

Maðurinn er í sambúð.  Halló ógeðin ykkar sem svona gerið.

Hvað er eiginlega að fólki sem fær út úr svona ljótum leik?

Ég veit ekki betur en við sem erum með bloggsíður á Mogganum séum ábyrg fyrir þeim athugasemdum sem koma við færslurnar okkar.

En er það nóg?

Þarf sá sem hýsir bloggin ekki að taka hina endanlegu ábyrgð?

Mér finnst þetta dálítið brennandi spurning í deginum.

Það eru nefnilega allir að fara á límingunum í þessu þjóðfélagi.

Fjandinn hreinlega laus.

Hvar setjum við mörkin krakkar?


mbl.is Björgvin G.: „Ný vídd í nafnlausu níði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að fólki segi til sín. Þar með ber það ábyrgð á sinni meiningu.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 16:50

2 identicon

Ég ætla ekki að dæma um hvað maðurinn er sekur um og hvað ekki. Ég set þetta undir sama hatt og málningarsletturnar hjá öðrum mönnum. Bak við allt þetta fólk standa aðstandendur: makar, börn, foreldrar osfrv og ENGINN á skilið að láta koma svona fram við sig!

Aumingjans fólkið á rétt á sínu einkalífi burtséð frá því hvað það gerði og gerði ekki í vinnunni í fyrra!

Guðný Drífa (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 16:51

3 Smámynd: Dúa

Málið snýst um að það sé hægt að setja svona óhróður á netið og komast upp með það. Ekki hvort að einhver sé sekur eða saklaus.

Dúa, 6.9.2009 kl. 16:59

4 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég held að allt þetta mál sé ekki einfalt. Menn hafa auðvitað samúð með hverjum þeim sem verður fyrir rógburði. En það er margt fleira í þessu, Björgvin boðar að hann muni beita sér fyrir lagastningu í fljótheitum. Almenningur ætti einmitt að gjalda varhuga við því þegar stjórnmálamaður sem hefur persónulegra harma að hefna vill setja lög með hraði. Það má alveg búast við því að þetta vandamál - nafnlaus rógur á netinu - verði notað til að þrengja að ritfrelsi og   tjánignarfrelsi. Reiður maður á ekki að setja lög. Það er einmitt háttur stjórnmálamanna að nota eitthvað svona til að reyna að takmarka tjáningarfrelsi. Reyndar pistill Björgvins mjög óskýr, hann talar t.d. um að verði að skýra lögin um meiðyrði þegar hann á  í raun og veru við að sett verði ný lög. Það sem hann segir um eigin reynslu er auðvitað gott og gilt en hvernig hann útfærir hana upp á þjóðfélagið er ekki vel rökstutt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.9.2009 kl. 17:55

5 Smámynd: Karl Tómasson

Já Jenný Anna, mín kæra bloggvinkona.

Þetta er ömurlegt og vart er hægt að leggjast lægra.

Bestu kveðjur úr Mosó frá Kalla Tomm

Karl Tómasson, 6.9.2009 kl. 17:56

6 Smámynd: hilmar  jónsson

Sigurður: Hjartanlega sammála..

Hvenær mun annars Björgvin sæta ábyrgð fyrir lygi, aðgerðarleysi og vanhæfni í kjölfar bankahrunsins ?

hilmar jónsson, 6.9.2009 kl. 18:08

7 Smámynd: hilmar  jónsson

P.s. Maðurinn situr enn á þingi og allt bara í fína ?

hilmar jónsson, 6.9.2009 kl. 18:16

8 identicon

Sammála Dúu,

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 18:16

9 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Auðvitað er þetta ljótur leikur. Ekki spurning um það. En ég hef tilhneigingu til þess að halda með Sigurði Þór um að það er vafasamt og varasamt að rjúka til og setja ný lög með hraði.

Við höfum okkar meiðyrðalög sem gilda um það sem skrifað er opinberlega. Það sem skrifað er á netið eru opinber skrif. Það er auðvelt að rekja það (IP-tala) hver skrifar eða í það minnsta er ábyrgur fyrir þeirri nettengingu sem notuð er. Þetta finnst mér alveg nægja.

Jón Bragi Sigurðsson, 6.9.2009 kl. 18:17

10 Smámynd: Garún

Ég var einmitt að hugsa um það um daginn þegar ung frænka mín var að fara að skrifa ritgerð um ljóstillífun eða hvað sem það heitir og "googlaði" orðið.  Þar fann hún fullt af upplýsingum frá hinum og þessum og skrifaði þau niður samviskusamlega.  Kennarinn hennar kallaði hana til sín og spurði hana hvaðan hún fengi þessar upplýsingar um ljóstillífun, hún svaraði á neti og kom þá í ljós að þetta var allt bandvitlaust og sumt alveg útúr kú.  Sem sagt, þótt það sé á netinu þá er það ekki endilega satt!  Og stundum verður maður bara að kunna að leyta sér staðreynda ef svo ber undir og hafa vit til að greina á milli áræðanlegra heimilda og svo vitleysu.    Á heimasíðu systur minnar stendur t.d að hún sé hæðst okkar systkyna og ég sjálf sé 162 cm sem er svakaleg lygi og ótrúleg vitleysa.  Ég er 164 og hef ég það frá fyrstu hendi og niður á gólf með málbandi! 

Garún, 6.9.2009 kl. 20:53

11 Smámynd: Dúa

Frá hendi og niður á gólf 164 cm?

Dúa, 6.9.2009 kl. 21:13

12 identicon

Það er bara grunsamlegt hvernig hver spilari hrunsins á fætur öðrum grefur upp einhverjar meintar kjaftasögur um sjálfan sig frá einhverjum nafnlausum illmennum.

Líkast til hefði enginn heyrt meintar kjaftasögur ef Bjöggi sjálfur hefði ekki komið þeim vel á framfæri.

Allir þessir aðilar hafa farið fram á hertar reglur á netinu... spúkí

Það verður gaman að sjá hver kemur næst og hvaða sárleiki verður í gangi.

Annars er ég algerlega að missa af öllum þessum vondu nafleysingjum sem eru að ata elítu og embættismenn óverðskulduðum skít.

DoctorE (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 21:36

13 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef ég man rétt bar Björgvin sig líka afar illa fljótlega eftir bankahrun yfir illviljuðu fólki sem ekki var ánægt með störf hans þá, og bloggaði um það.

hilmar jónsson, 6.9.2009 kl. 21:53

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hilmar: Málið snýst ekki um Björgvin sem stjórnmálamann, hann á ekki upp á pallborðið hjá mér svo mikið er víst.

En ef þetta er rétt sem hann segir þá er það ljótur leikur sem fólk stundar í skjóli nafnleyndar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.9.2009 kl. 09:59

15 Smámynd: hilmar  jónsson

Björgvin er ekki sá fyrsti sem verður fyrir barðinu á þessum persónuníðs geðröskunum. En það að hann er stjórnmálamaður setur málið að því best verður séð, í mikilvægara vægi, þannig að væntanlega snýst málið að einhverju leyti um það.

En að heyra Björgvin kalla eftir að fólk sé dregið til ábyrgðar, það er bara eitthvað svo .......................

hilmar jónsson, 7.9.2009 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband