Leita í fréttum mbl.is

Atli Húnakonungur nútímans

 attila_the_hun

Ég hef sagt það áður og segi það enn að kreppan hefur gert manni hluti.

Bæði góða og slæma.

Jón Daníelsson var í Silfrinu og var nokkuð bjartsýnn á að nú færi ástandið hér að lagast.

Ég hlustaði og ég skildi en trúði ekki.

Það er nefnilega það vonda sem kreppan hefur gert mér að ég gef lítið fyrir alls kyns yfirlýsingar sérfræðinga.

Tek öllu með gífurlega miklum fyrirvara.

Þetta á einkum við sérfræðinga eins og þá sem kenna sig við hagfræði vegna þess að skoðanir þeirra á hvað beri að gera og hvernig mál standa, skarast eilíflega.

Það er vont að treysta engu(m)...

Nú eða fáu(m).

Illugi Gunnarsson er að ég held ágætis maður og í betri kantinum miðað við þann flokk sem hann tilheyrir.

En sorrí Illugi, ég fæ beisíklí óbragð í munninn þegar þið Sjálfstæðismenn byrjið að gagnrýna stjórnvöld af því mér finnst að þið hafið hreinlega ekki efni á því.

Þið eruð svo bullandi sekir maður minn.

Allir aðrir (ókei, ekki Framsókn) geta gagnrýnt sig bláa í framan og ég skal hlusta.

En ekki sjálfur hrunflokkurinn.

Samt má Illugi eiga það að hann er málefnalegur í sínum málflutningi oftast nær.

En að missa traust á öllu og öllum er vont fyrir sálina.

Það getum við þakkað bévuðum stjórnvöldum sem hönnuðu umhverfið fyrir banka og útrásir ásamt útrásardólgunum sem gáfu Atla Húnakonungi ekkert eftir í yfirferð sinni um akurinn, só tú spík.

Súmítúðekor.


mbl.is Jón Daníelsson: Bjartsýnni en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú talar um "hagfræðinga".  Ég kalla þá hagræðinga, enda hef ég aldrei heyrt þá gera annað en hagræða sannlaeikanum, í samræmi við óskir þeirra, sem borga þeim launin.  Auðvitað eru til hagfræðingar.  En þeir eru sárafáir og mér vitanlega er enginn þéirra Íslendingur.

Pjetur Hafstein Lárusson (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 15:49

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Bídddu við:  "Allir aðrir (ókei, ekki Framsókn) geta gagnrýnt sig bláa í framan og ég skal hlusta."

Hvað með Samfylkinguna - er hún saklaus - flokkurinn sem hefur mært útrásarvíkingana og forsetann  ??

Hugsaðu lengra Jenný !!

Sigurður Sigurðsson, 6.9.2009 kl. 18:32

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sisi: DJÓK.

Pjetur: Góður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.9.2009 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2985716

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband