Leita í fréttum mbl.is

"Meira af henni en minna af mér"

feit. 

Á sumum menningarsvæðum þykja holdugar konur fallegar.

Merki um velmegun og það er logískt finnst mér.

En við vestrænar konur viljum helst hverfa af yfirborði jarðar ef þess er nokkur kostur.

Þessi mynd vakti hjá mér viðbrögð sem mig langar ekkert að kannast við.

Fyrst hugsaði ég ég með mér hversu falleg þessi kona væri, að hún geislaði af heilbrigði.

Svo festist ég í lærunum. 

Alveg: Eru þau ekki af einhverjum öðrum, mömmu hennar eða jafnvel eiginmanni?  Þau eru hjúmongus.

Mér fannst þau alveg dekka heilt búningsherbergi, að það væri hægt að byggja á þeim heilt úthverfi nánast.

Ég skammast mín fyrir hversu móttækileg ég hef verið fyrir heilaþvotti tísku- og útlitsómenningarinnar.

Samt vinn ég í því á fullu að losa mig við þetta fáránlega mat á kvenlegum formum sem er búið til af fatahönnuðum og snyrtivöruframleiðendum og hefur orðið mörgum konum og stúlkum að aldurtila vegna átröskunarsjúkdóma.

"Meira af henni en minna af mér" var auglýsing sem gekk ljósum logum á markaði fyrir þetta 15 árum eða svo.

Kona vel í holdum horfði á spegilmynd sína sem var svo horuð að hún gaf sveltandi börnum í Afríku ekkert eftir í holdleysi.

En hvað um það, Lizzie Miller er falleg.

Það er heilaþvottastöðin sem er að trufla sjónina í mér og fleirum og það ætti að vera verkefni okkar allra að útrýma stöðluðum markaðshugmyndum um hvernig við eigum að líta út.

Gínukonan er ekki til nema í heimi tískunnar þar sem örlítil prósenta kvenna gengur um deyjandi úr hor og átröskunarsjúkdómum og gefa tóninn.

Út með gínukonuna og inn með hina venjulegu konu sem er alls konar í laginu og nánast aldrei eins og gína.

Nú eða barbídúkka sem samkvæmt nákvæmum útreikningum gæti ekki gengið upprétt eins og hún er í laginu.

Algjörlega flott kona hún Lizzie Miller, læri og allt - og ekki orð um það meir.

Sjá hér.

 


mbl.is Þrýstnar línur vekja fögnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dúa

Og mér finnst hún mjó en ekki þrýstin! Venjuleg kona í grennri kantinum og allir fara á límingunum yfir því að feit kona sitji fyrir

Dúa, 4.9.2009 kl. 10:25

2 Smámynd: Hugarfluga

Sammála. Mér finnst hún alls ekki feit. Bara ekki mjó!  

Hugarfluga, 4.9.2009 kl. 11:19

3 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

það sem ekki er hægt að velta sér upp úr - ekki feit, mjó ekki þrýstinn, venjuleg kona í grennri kantinum aðrir að fara á límingunum þið eruð bara flottar

Jón Snæbjörnsson, 4.9.2009 kl. 13:15

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þið eruð krútt. Já djöfull erum við orðin raunveruleikafirrt af því að glápa úr okkur augun á glanstímaritin og ammmmrísku bíómyndirnar (sjálf lá ég inn á visir.is að lesa (glápa á) fólk í fréttum fyrir örfáum mínútum síðan.  Fyrirsagnir eins og: í þyngri kantinum, þreytuleg á rauða dreglinum, lafandi brjóst Lohan o.fl. o.fl. blasa við manni og ég les þetta allt saman, þegar lítið er að gera í vinnunni hjá mér. Við eeeelskum að lesa/sjá að fína, fallega, fræga og umfram allt horaða fólkið getur líka verið ljótt og fitnað og þreytulegt og allt það).

Tekur engin eftir því að konan á þessari mynd er ekki með neitt cellulite!!!! Rennislétt, falleg og heilbrigð húð. Ekki mikið sukk og svínarí að gerast inn í þessari konu.

Jóna Á. Gísladóttir, 4.9.2009 kl. 14:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985731

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband