Leita í fréttum mbl.is

Heimurinn vs þeir!

Ég hef aldrei skrifað eitt orð um Lýð Guðmundsson og skrifa ávallt undir nafni þannig að ég tek ekki til mín rausið í manninum í Kastljósinu í kvöld.

Bloggheimar eru ömurlegir - búhú, fjölmiðlar líka - búhú - skilanefndirnar vilja koma fyrirtækinu í þrot - búhúhúhú.

Rosalega er heimurinn vondur við Existu.  Þetta er lögreglumál.

Ég get ekki tekið fleiri svona viðtölum eins og við Lýð í kvöld og svo við Hreiðar Má fyrr í vikunni geðheilsu minnar vegna.

Það hreinlega drepur í mér trúna á manneskjuna að horfa á þessa menn kenna öðrum um eigið klúður.

Þeir koma í Armanigallanum í sjónvarpið og eru með friggings attitjúd.  Fólk kann ekki að meta þá, enginn skilur að þeir hafa ekkert gert af sér.

Heimurinn vs þeir. 

Þetta eru menn í svo litlum tengslum við íslenskan raunveruleika að ég efast um að þeir nái nokkurn tímann að sjá fyrir sér afleiðingarnar af öllu bankasukkinu.

En ég gat ekki annað en hlegið geðveikislega (spurning um það eða skella í mig arsenikki) þegar ég sá í fréttum í kvöld að stjórn Exista hafi verið endurkjörin og varamaður var sjálfkjörinn en hann er Róbert Tjengis.

Hver þarf leikhús eða bíómyndir?

Við lifum í ógeðslega súrrealísku leikriti sem ætlar engan enda að taka.

Robert Tjengis, eruð þið ekki að fokking kidda mig?

Eru ekki fleiri stórþjófar á lausu það sár vantar fólk um allt íslenska fjármálakerfið?

Garg.

Fréttin.


mbl.is Fengum langmesta höggið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Þessi Bakkabróðir mun líkast til bera því við, að enga hugmynd hafi hann um að búið er að frysta 50 milljarða á Tortóla í nafni þessa Róberts.

Segi eins og sumir er "orðin þreytt og leið" á lýginni sem menn reyna að bera á borð fyrir almenning og eru síðan sendir til baka með sem úldið slátur væri.  En ég er bláedrú, sverðað!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 26.8.2009 kl. 22:36

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

http://baggalutur.is/frettir.php?id=4616

Þeir klikka ekki hérna drengirnir :)

Baldvin Jónsson, 26.8.2009 kl. 22:47

3 identicon

blessaður maðurinn ber nafn með RENTUM.....

zappa (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 00:50

4 Smámynd: Eygló

Er það ekki þannig, allavega á Moggabloggi, að fullt nafn ábyrgðarmanns verður að vera, a.m.k. í höfundarreitnum?

Hvað er þá verið að tala um?  Þá sem skrifa athugasemdir?  Önnur blogg?  Hefur hann eitthvað til síns máls með þessar nafnlausu nornaveiðar á blogginu?

Eygló, 27.8.2009 kl. 01:38

5 identicon

Sagan er alltaf að endurtaka sig. Nýir Bakkabræður koma fram aftur og toppa fyrri Bakkabræður í vitleysunni. Bakkabræður úr Svarfaðadalnum voru þó heiðarlegir þrátt fyrir heimskuna og þeir voru ekki alltaf að kenna öðrum um ófarir sínar. Útrásarvíkingavæl !!!

Stefán (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 08:52

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég nennti ekki að horfa á kastljósið í gær. Ekki frekar en þar áður og þar áður og þar áður

En víst er lífið hér á klakanum einn sirkus út í gegn í dag.  Og við erum peðin sem eigum að borga fyrir allt saman, en okkur kemur samt sem áður ekki við hvað er í boðí. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2009 kl. 09:08

7 Smámynd: Lilja Skaftadóttir

Ég er með óþægilega klígjutilfinningu eftir að hafa horft á þetta.

Lilja Skaftadóttir, 27.8.2009 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.