Leita í fréttum mbl.is

Nei, heyrðu mig nú!

Mér fannst endalausar spekúlasjónir um hvort Sigmundur Ernir hafi verið fullur eða ekki fullur hálf hallærislegar.

Og ég lét það í ljós eins og mín er von og vísa, alltaf rífandi kjaft.

En ég verð að éta þessa skoðun mína ofan í mig af því forsendur eru breyttar.

SE þvertekur fyrir að hafa smakkað áfengi á fimmtudeginum þegar Icesave-umræðan fór fram.

Nú hefur verið sagt til hans eins og var í raun borðleggjandi að myndi gerast af því maðurinn er þingmaður og ekki einkamál hans hvað hann gerir í vinnunni.

Það er tvennt sem ég sé aðfinnsluvert.

Í fyrsta að hann skuli segja ósatt.  Við erum breyskar manneskjur, líka á Alþingi (sumir myndu segja að þar væri breyskleikastuðullinn hærri en á öðrum vinnustöðum).

Það er ekkert að því að játa á sig mistök og dómgreindarleysi og biðjast afsökunar.  Málið væri þar með dautt.

En það sem er í öðru lagi og öllu alvarlega er sú staðreynd að þingmenn skuli vera í boði banka í sukkpartíum, mati og drykk og golfi eða hverju sem er.

Átti ekki að afleggja þennan ósið á nýja Íslandi?

Hvern fjandann er þingmaður að gera í boði MP-banka?

Og hvað er MP-banki að meina með vildarvinasukki á þessum krepputímum?

Sigmundur Ernir:

Segðu satt og láttu það ekki henda þig aftur að fara í partý í boði banka eða annarra fjármálastofnana.

Ekki fara í strætó einu sinni nema að borga það sjálfur.

Opna augun - svona dómgreindarbrestir eiga að heyra sögunni til.

Almenningur hefur nákvæmlega núll prósent tolerans fyrir svona athæfi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Jenný mín.

Ég kvitta undir þessa færslu þína. Skáldið sagði " Vér undirtökum" að vísu englasöng, en það er næsta víst að við erum ekki beint englar, ég og þú. En samt. Vér tökum undir orð yðar hvað téðan þingmann varðar í gullkálfadansi, daðri og drykkju.

Einar Örn Einarsson, 26.8.2009 kl. 11:39

2 Smámynd:

Einmitt - eins og talað út úr mínu hjarta

, 26.8.2009 kl. 12:15

3 identicon

Hvað er Þingmaður að gera í golfboð og fyllirí í boði  banka? Spillingin er enn á fullu ,

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 12:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég sagði reyndar annarsstaðar að skömmin væri hans, og hans eins, þ.e. að mæta fullur í vinnuna.  En ég tek heilshugar undir þessar vangaveltur þínar Jenný með hvað maðurinn var að gera við þessar aðstæður.  Hann þarf að gera okkur grein fyrir því svo sannarlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.8.2009 kl. 12:50

5 Smámynd: Guðni Þór Björnsson

Sama spilling, nýtt fólk.

Guðni Þór Björnsson, 26.8.2009 kl. 12:53

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Er það nema von hversu vel er gert við bankamennina?  Þeir hafa þingmennina ennþá í vasanum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.8.2009 kl. 14:30

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Endalaus spilling alls staðar. Hélt einhver að þetta mundi taka enda ef skipt yrði frá hægri til vinstri? ekki ég.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2009 kl. 14:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband