Leita í fréttum mbl.is

Á pari með Mússólíni eða Móður Theresu?

Ég er búin að horfa á innanhússmyndband Kaupþings aftur og aftur.

Það er hér fyrir neðan en það hefur farið eins og eldur í sinu um netheima og víða um heim.

Sem er auðvitað ekkert undarlegt þegar bandið er skoðað.

Þetta myndband fyllir mig óhug.

Ég veit að það er kannski ekki pólitískt rétt að segja upphátt það sem mér finnst en af því ég er á skjön og ská þá læt ég það fjúka.

Þetta myndband er uppbyggt eins og áróður í mynd frá Hitlers-Þýskalandi eða frá Ítalíu Mússólínis.

Guðakomplexinn og mikilmennskubrjálæðið nær nýjum hæðum.

Boðskapurinn augljós:

Kaupþing getur allt.

"Kaupthinking" er að hugsa öðru vísi og hærra, við getum allt.

Kennedy, Martin Luther King og móðir Theresa eru sum af þeim stómennum sem sýnd eru í myndbandinu.

Ergó: Kaupþingsfólkið er á pari með mikilmennum sögunnar.

Mér finnst hins vegar þeir vera á pari við þekktustu oflætissjúklinga mannkyns.

Er það nema von að illa hafi farið og að íslenska þjóðin sitji nú uppi með afleiðingar geðveikinnar og oflætisins.

Eftir því sem ég horfi oftar á þetta sönnunargagn vitfirrts mikilmennskubrjálæðis og græðgi þá fyllist ég æ meiri óhug.

Því þetta getur allt endurtekið sig.

Sú staðreynd að hvorki eftirlitsstofnanir eða stjórnvöld stöðvuðu geðveikina gerir mig skelfingu lostna.

Aldrei aftur.

Vona ég.


mbl.is Gamalt Kaupþingsmyndskeið vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Varstu búin að lesa þennan?

http://davidg.blog.is/blog/davidg/entry/935590/

Heiða B. Heiðars, 23.8.2009 kl. 21:07

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá, var að því og kommentaraði líka.

Ég veit ekki hvort er óhuggnanlegra.
Davíð eða myndbandið.

Að tala um afneitun.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.8.2009 kl. 21:14

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehe ég kíkti á Davíð! Snögglega var búið að snúa umræðunni upp í ljótleika rauðsokka, kynlífsleysi og fleira sem kemur málinu minna en ekkert við!

Ég er sammála þér með þetta myndband. Það er ömurlegt. Ég fyllist samúð með þeim sem þurftu að vinna við þessa hugsun en hún tíðkast víðar en í Kaupþingi skal ég segja þér. Miklu víðar....

Hrönn Sigurðardóttir, 23.8.2009 kl. 21:29

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er náttúrulega engan veginn í lagi að mínu mati.  Hvar voru mennirnir sem áttu að fylgjast með þessu öllu, og af hverju bera þeir enga ábyrgð á málunum?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.8.2009 kl. 22:21

5 identicon

Vantar samt Jesú og Gandhi ...

alla (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 22:23

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

þetta myndband er slappt. hvar eru stórmennin Hreiðar Már og Sigurður Einars? Þessir sem breyttu gömlum framsóknarbanka í alþjóðlegt veldi. þar til gat kom á blöðruna.

verið ekki svona vondar við Davíð. hann er bara að rifja upp góðu árin sín í vinnunni. sjálfur vann ég eitt sinn hjá hugbúnaðarfyrirtæki, kring um 2000, þegar sú bóla var og hét. auðvitað sigldu menn því skipi í strand, en það var gaman að vinna þar meðan á siglingunni stóð.

Brjánn Guðjónsson, 23.8.2009 kl. 23:22

7 identicon

Fólk í ákveðnum stjórnmálaflokki  hér á landi ,hlýtur að fá fulln.....u við að horfa á þennann óskapnað. Akkúrat hugsunargangur þeirra.Við skulum, hvernig sem að við förum að því.Þótt heil þjóð sé í rúst eftir gjörði þeirra og græðgi.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 09:29

8 identicon

Það er búið að banna mig fyrir að segja fólk geðsjúkt... þannig að ég held bara áfram að segja sannleikann... þetta myndband er algerlega geðsjúkt, enginn sem kom nálagt gerð þessa myndbands getur talist heill á geði.
Hver sá sem er ekki sáttur við greiningu mína getur bara farið til Jónínu Ben og látið sjúga úr sér skítinn

Amen

DoctorE (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 10:36

9 Smámynd: Sveinn Ríkarður Jóelsson

Móðir Teresa var ekkert sérstakt góðmenni, í það minnsta ekki á mælikvarða flestra sem athuga störf hennar sem einkenndust af þjáningardýrkun og óbilandi dugnaði í að breiða út eigin reglu fyrir framlög sem fólk veitti í hennar nafni til hjálparstarfa. Er það svo ólíkt því sem gömlu bankarnir gerðu eða hvað?

Þeir sem efast um Teresu geta kynnt sér Christopher Hitchens (http://en.wikipedia.org/wiki/Christopher_Hitchens).

Sveinn Ríkarður Jóelsson, 24.8.2009 kl. 11:46

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sveinn Ríkharður:  Það er eiginlega ekki pointið hérna hversu góð eða slæm móðir Theresa var.

Heldur er hún hálfgerður dýrðlingur í augum heimsins og því er hún sett með Kennedy og Martin Lúther King.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.8.2009 kl. 11:58

11 identicon

Mamma Teresa var djöfull í mannsmynd, stefna hennar var að halda fólki í fátækrargildrunni... + a' snobbast í kringum "mikilmenni" og einræðisherra.

Að endingu missti mamman illa sína trú... varð trúlaus með öllu.
Hún er líklega fyrsti dýrlingur kaþólikka sem var ekki haldin geðklofa... allir aðrir dýrlingar töluðu við tennurnar í sér og töldu þær vera Gudda

DoctorE (IP-tala skráð) 24.8.2009 kl. 11:58

12 Smámynd: Sveinn Ríkarður Jóelsson

Mjá, mig langaði bara að hressast yfir því að líking þeirra var etv. betur viðeigandi en þeir gerðu sér grein fyrir :)

Sveinn Ríkarður Jóelsson, 24.8.2009 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband