Leita í fréttum mbl.is

Loksins!

Loksins, loksins, eitthvað jákvætt.

Ég reikna auðvitað með að þetta tilboð Bretanna verði þegið með þökkum.

Svei mér þá ef það verður ekki til þess að maður fer að anda léttara.

Mér vitanlega á "Serious Fraud Office", enga frænda, klíkubræður, maka eða flokksbræður í bönkum og skilanefndum.

Ég treysti þeim.

Loksins eitthvað jákvætt segi ég enn og aftur.

Gleði, gleði, gleði og það á sjálfan gleðidaginn.

Úje.


mbl.is Bretar bjóða aðstoð við rannsókn á bankahruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sennilega verður þetta afþakkað,það væri í takt við vitleysuna sem er í gangi en spennandi að sjá hvað gerist.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 11:21

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er virt stofnun um allan heimm Skorrdal.

BD: Ég get sagt þér að ef þetta verður ekki þegið þá verður allt brálað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.8.2009 kl. 11:26

3 Smámynd: Guðni Þór Björnsson

Margir eru á því að þetta sé slæmt útaf hryðjuverkalögunum sem þeir skelltu á okkur en þetta er ekki breska ríkið. Er sammála að þetta sé mjög jákvlætt, enda veit ég um marga breta sem urðu mjög reiðir þegar þessi lög gerðu okkur nánast óvíg gagnvart hruninu. En auðvitað er ekkert frítt!! Kannski er þetta skref í því að viðurkenna sameiginlega ábyrgð, það yrði vonandi.

Guðni Þór Björnsson, 8.8.2009 kl. 11:46

4 identicon

Svo oft höfum við sagt: ef þetta gerist (ekki) þá verður allt brjálað! Svo hefur það gerst (eða ekki) og allt er við það sama, nema þjóðin er soldið meira brotin og sorgmædd. Við látum allt yfir okkur ganga (eins og sést, eins og sést). Þess vegna er allt eins og það er.

Rósa (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 11:48

5 Smámynd: halkatla

þegar ég sá byrjunina á þessu þá hélt ég að þú værir að gleðjast vegna þess að ég byrjaði alltíeinu að blogga hérna aftur í morgun svona er maður montinn, en það er samt ótrúlega gleðilegt er það ekki? ég og bretar að hafa okkur í frammi á þessum degi...

halkatla, 8.8.2009 kl. 11:49

6 identicon

Við eigum að þyggja þessa aðstoð. Við höfum ekki efni á að hafna henni. Ég treysti Evu til að láta ekki Bretana hlunnfara okkur hvað varðar alla þessa miklu rannsóknarvinnu. Fólkið í landinu verður rórra.

Kolbrún Bára (IP-tala skráð) 8.8.2009 kl. 13:01

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þarf heimsmeistaraþjóðin sem getur alllt og skillur allt virkilega aðstoð ? Upp með rembuna og afþökkum allt.

Finnur Bárðarson, 8.8.2009 kl. 14:09

8 Smámynd: Anna

'Eg held að þeir séu nú að gera þetta fyrir sinn hag. Milljónum að peningum Íslands eru frosið í banka London. Eigum við ekki að fá þá peninga. ??? Nema að hjálpin sé út af því að þeir séu með svona mikla sektarkennd yfir því að setja Hryðjuverkalögin á Ísland sem margir út í heimi hafa gagnrýnt.

Anna , 8.8.2009 kl. 16:29

9 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Já ég hef trú á þessari "Fraud office" hjá Bretum. Þessi sama stofnun kom upp um múturnar hjá SAAB í Svíþjóð við að selja herflugvélarnar. Enginn vildi taka upp málið hér í Svíþjóð þar sem ríkið og SAAB eru í allt of miklu samkrulli við að pranga út þessum vélum.

Það sorglega var hins vegar að málið var samt sem áður lagt niður af sænskum saksóknara með þeim rökum að hann ætti erfitt með að sanna brot og sum væru orðin of gömul osfrv. En þetta sýnir alla vega að utanað komandi rannsóknaraðili á oftast hægara með að komast til botns í málum vegna þess að hagsmunatengslin eru ekki til að hindra.

http://svt.se/2.112190/1.1596247/jas-utredningarna_laggs_ned

Jón Bragi Sigurðsson, 8.8.2009 kl. 16:55

10 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Tek undir þetta með þér Jenný Anna enda var blogg mitt á svipuðum jákvæðum nótum.

Jón Baldur Lorange, 8.8.2009 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.