Leita í fréttum mbl.is

Grískir harmleikir á hverjum degi

Það er þetta með flutninga fólks til útlanda.

Ég get ekki séð það sem neikvæðan hlut að minnsta kosti ekki að öllu leyti.

Það er talað um atgervisflótta.

Að svo margir stökkvi á brott að eftir verði gamalmenni og aðrir bótaþegar.

Þjóðarsálin er að verða aðeins of dramatísk fyrir minn smekk.

Þrýstingur verður að einelti.

Flutningur ungs fólks til útlanda (oftast tímabundið) verður að atgervisflótta og stórkostlegri fækkun íslensku þjóðarinnar.

Maður rífur hús og þingmaður hendist á staðinn og vafrar um allt í dramakasti með trékubb úr rústunum.  Blóðbunan aftur úr viðkomandi.

Svo kemur í ljós að  niðurrifsmaðurinn er bara ekki skömminni skárri en þeir sem hann er að beita sér gegn.

Róið ykkur gott fólk.

Við búum á eyju.

Ekkert eðlilegt en að ungt fólk flytji úr landi og víkki sjóndeildarhringinn.

Flest komum við aftur.

Er ekki ástandið alveg nógu slæmt þó það sé ekki hlaupið upp til handa og fóta og heilu grísku harmleikirnir gerðir úr öllum sköpuðum hlutum.

Gangi fólkinu vel í Noregi.

Þetta er eins og að flytja á milli sveita.

Ekkert stórmál.

Kommon.


mbl.is Hundruð flytjast til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 12:36

2 identicon

Gott innlegg.

Það er merki um þroskað samfélag ef fólk yfir höfuð getur elt uppi atvinnu. Mörg sveitarfélög á Íslandi hafa mátt sjá á eftir góðu fólki á höfuðborgarsvæðið undanfarna áratugi. Nú eru margir á leiðinni aftur "heim". Þetta nefnist á okkar frábæra tungumáli sveigjanlegur vinnumarkaður.

Jóhann F Kristjánsson (IP-tala skráð) 25.7.2009 kl. 12:43

3 Smámynd: Anna

Yes, þú segir nokkuð.

Anna , 25.7.2009 kl. 15:27

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er þetta ekki norskur harmleikur?

Ásdís Sigurðardóttir, 25.7.2009 kl. 16:48

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Æ mér finnst erfitt að vita að fólk er að rífa sig upp og fara annað, jafnvel úr neyð.  Ég er samt sammála þér að ég hef trú á því að þetta sé tímabundið.  Annars góður pistill hjá þér að vanda mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.7.2009 kl. 17:04

6 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Ég er nú talsvert sammála þér með þetta kæra  Jenný Anna

Anna Karlsdóttir, 25.7.2009 kl. 17:39

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég vil bara hvetja ungt fólk til að nota tækifærið og fara burt til kynnast nýjum alvöru heimi, alvöru fólki sem ekki er að rembast við að vera heimsmeistarar í einu eða neinu og yfirgefa þennan sýndarveruleika sem ríkt hefur á Íslandi undanfarin ár.

Finnur Bárðarson, 25.7.2009 kl. 17:55

8 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Takk vinkona!

Ég fékk vinnu sem "laborant " í Noregi, en daginn áður hringdi leikskóli í Kóp. (ég sæki um allt) og bauð mér vinnu!

Verð hér í bili!

:-)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 25.7.2009 kl. 20:00

9 Smámynd: Einar Indriðason

Akkúrat eins og staðan er núna, þá eru 5 atriði sem halda mér hér á landinu.  Fólkið mitt í kringum mig.  Ef það fer, þá er ég farinn.  Og ég er ekkert viss um að ég komi aftur....

Landið okkar er æðislegt.  Það er bara byggt upp, og stjórnað af algjörum öpum.

Einar Indriðason, 26.7.2009 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.