Leita í fréttum mbl.is

Skíthælar á ferð

Sjálfstæðismenn eru byrjaðir að tuða undir liðnum "fundarstjórn forseta".

Aldrei áður hafa störf í þingsal minnt eins mikið á ólrólegan barnaskólabekk eins og eftir að Framsókn og Sjálfstæðisflokks fóru í minnihluta saman.

Nú gargar Bjarni Ben.

Áður Illugi Gunnarsson.

Ég myndi halda þverrifunni á mér saman tilheyrði ég þeim flokkum sem gáfu bankana á silfurfati til vildarvina og hófu þar með þá atburðarás sem hefur gert almenning á Íslandi að ómerkingum og stórskuldurum.

Annars hef ég verið að velta fyrir mér ástandinu í þjóðfélaginu.
Nú eru nefnilega uppgangstímar fyrir krípin.

Eins og þá sem hóta og skelfa án nafns.

Gaman hjá þeim.

Líka gaman hjá innheimtufyrirtækjum eins og Intrum.

Nú er gróðæri þar í miklum blóma.

Ég held að hver og einn þurfi að kanna vel hvað liggur að baki hvers atburðar.

Það er nefnilega ekki alltaf réttlætiskennd, örvænting og ótti sem liggur að baki.

Stundum eru einfaldlega skíthælar á ferð.


mbl.is Dýrt fyrir ríkið að selja banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bjarni Ben og Illugi Gunnars hafa ekki efni á því að ibba kjaft eða að slá sig til riddara. Þeir eru eingöngu hagsmunagæslumenn fyrir atvinnurekendur, kvótakónga og útrásarvíkinga. Þeir tóku þátt í öllu sukkinu með þessu liði og gáfu ótýndum glæponum bankana.

Stefán (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 12:27

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sammála.

Edda Agnarsdóttir, 9.7.2009 kl. 12:54

3 Smámynd: Einar Þór Strand

Ættir kannski að gera það sem þú segist að þú myndir gera ef þú værir þeir

Einar Þór Strand, 9.7.2009 kl. 12:57

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stefán: Rétt og satt hjá þér.

Edda: Jabb.

Einar Þór: Vertu úti og rektu þig í hurðarkarminn á leið þinni út.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.7.2009 kl. 13:12

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Jebb, það er nöturlegt að hlusta á þessa aðila belgja sig út í heilagri vanlætingu eins og þeir hafi aldrei komið nálægt neinu.

Arinbjörn Kúld, 9.7.2009 kl. 13:25

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þingmenn hafa alltaf látið svona, alveg burtséð frá því hvort þeir ættu að skammast sín sjálfir eða ekki.  Það mætti halda að þingmannssætið sé svona vinsælt vegna yngingaráhrifanna... 

Kolbrún Hilmars, 9.7.2009 kl. 14:43

7 identicon

sjálfstæðisþingmenn eru búnir að koma sínu máli nr 1-2-3 í gegn...og það er að svæfa alla umræðu um innköllun kvótans...

zappa (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.