Leita í fréttum mbl.is

Blessi ykkur börnin góð

Prestar blessa hluti.

Líka fólk og allskonar bara.

Mér finnst hipp og kúl að láta presta blessa lítil börn.

Getur að minnsta kosti ekki skaðað.

En eru blessanir presta og preláta magnaðri en þeirra sem eru próflausir á kærleikinn?

Nú var biskupinn að blessa krossinn upp á Hallgrímskirkjuturni.

Vonandi bjargar það krossinum frá alkalískemmdum.Devil

En mig langar að vita eitt (og reyndar fleira en eitt, það kemur seinna).

Hafa umboðsmenn guðs á jörðu blessað íslensku útrásina?

Mig rámar í að þeir hafi verið að ferma og skíra í boði bankanna og svona í gróðærinu, hví ekki þá að blessa þá sem plönuðu stærsta bankarán sögunnar?

Nei annars getur ekki verið.

Það hlýtur að hafa verið myrkrahöfðinginn sjálfur sem var með þar í för.

Svona miðað við útkomuna.

Ég neita að trúa að guð hafi eitthvað að gera með strákana "okkar".

Eða hvað?

Þetta er trúleysinginn sem talar frá menningarheimili sínu á Teig kenndum við hús guðs.

Ésús minn á fjallinu.


mbl.is Biskup blessar í hæstu hæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Blessuð og sæl,

Vonandi bjargar það krossinum frá alkalískemmdum.Devil

GARG!

Annars var útrásin blessuð og lofuð af æðstu "prestum".

"Þeir lengi lifi húrra húrra húrra" ........ "ég lofaði aldrei þessa útrás"

Jenný Stefanía Jensdóttir, 8.7.2009 kl. 16:54

2 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Við vitum ekki alltaf hvað er okkur sjálfum fyrir beztu. Kannske er hann að reyna okkur eins og Job forðum.

Emil Örn Kristjánsson, 8.7.2009 kl. 17:01

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Esus var guð dauðans :).. mig minnir að hann hafi verið keltneskur

Óskar Þorkelsson, 8.7.2009 kl. 17:05

4 identicon

Kirkjuturnar eru typpaframlengingar á biskup og presta, slík sóun á almannafé í risatyppi til heiðurs gudda, það er þjóðarskömm... biskup og prestar eru þjóðarskömm, sníkjudýr sem nenna ekki að vinna heiðarlega vinnu... þessir kuflar hafa mergsogið ísland öldum saman.

DoctorE (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 17:11

5 Smámynd: Garún

Andskotinn sjálfur....var að lesa að hann hefði næstum því farið uppá krossinn sjálfan og þá hefði ég getað hrópað geðveikt kúl setningu "get off the cross honey, somebody needs the wood"....en hann gerði það ekki.   Síðan er það annað...er ekki alltaf verið að laga þessa kirkju?  Ég held að ég hafi bara aldrei séð Hallgrímskirkju án stillasa einhvers staðar á henni.....oh well, eins og mér sé ekki sama.

Garún, 8.7.2009 kl. 18:49

6 Smámynd: Anna  Andulka

Flott skrif hjá þér Jenný Anna eins og allt sem frá þér kemur. Ég er sammála því að Guð var ekki með í útrásarmálunum. Held að honum lítist ekki vel á að nokkrir menn valdi þeim skaða sem þeir hafa gert íslenskum almenningi. Ef Guð er til mun hann refsa þeim sem það eiga skilið.

Anna Andulka, 8.7.2009 kl. 18:53

7 identicon

Munið það krakkar að maðurinn sem fór upp á krossinn og vældi í ímyndaða fjöldamoðingjanum í geimum, þið borgið þessum manni ~1 milljón á mánuði... kirkjan í heild fær 6000 milljónir árlega... á meðan fólk sveltur, menntun skert... þá borgið þið hundingjarnir þessum hjátrúargúbbum fleiri þúsund milljónir á ári.
Ísland heimskasta land í heimi!!

DoctorE (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 19:30

8 Smámynd: Garún

Afsakaðu Doctor E-pilla.  Hvað gerir þú!  Ert þú ekki að borga eins og við hinir hundingjarnir?  Ef ekki þá hlýtur þú að vera á spenanum og þá erum við hundingjarnir að borga fyrir þig aumingjann!  Og ef þú ert að vinna svart þá ertu náttúrulega ekkert betri en útrásavíkingarnir að nýta þér það sem við hundingjarnir borgum fyrir þig!   Djöfull ertu dónalegur maður...

Garún, 8.7.2009 kl. 19:58

9 identicon

Well Garún Graða... ef menn eru skráðir í þjóðkirkju þá fer skattur til biskups og presta, ef ekki þá fer skattur til ríkisins.... þannig að trúfrjálsir leggja meira til uppbyggingar íslands en trúaðir, enda eru trúaðir sjálfselskasta fólk í heimi, hugsar bara um falska flugmiðann til himnaríkis þar sem þeir telja sig getða lifað að eilífu.

P.S. Þú byrjaðir að uppnefna mig.... og þú ert hreint klikkuð að vita þetta ekki

DoctorE (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 20:01

10 Smámynd: Garún

Takk fyrir það! 

Garún, 8.7.2009 kl. 20:22

11 identicon

Ég er ekkert fúll út í þig Garún... en veistu hvað, einu sinni stofnuðu einhverjir kristlingar blogg um mig... ég var það kallaður öllum illum nöfnum, þar á meðal doctor e pilla.
Það hafa verið bænahringir gegn mér um land allt, auðvitað hefur ekkert virkað því guð er ekki til... nema að því leiti að þegar trúuð manneskja horfir í spegil þá sér hún guð, guð er sá trúaði og endalaust líf í lúxus; They are suckers for eternal life :)

DoctorE (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 20:32

12 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Doktor, var lögunum breytt aftur?  kom ekki fram í bandorminum að sóknargjöldin okkar heiðingjanna rynnu "óvart" til þjóðkirkjunnar aftur, um daginn?  Ég hef allavega alveg misst af því, ef það hefur verið leiðrétt.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 9.7.2009 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.