Leita í fréttum mbl.is

Kæri sérstaki saksóknari

Kæri sérstaki saksóknari.

Vildi benda þér á þessa frétt ef hún hefur farið fram hjá þér.

Finnst það borgaraleg skylda mín að auðvelda þér vinnuna einkum og sér í lagi vegna þess að það er brjálað að gera hjá ykkur í hvítflibbaglæpunum þessa dagana.

Málið með Hannes Smárason, æi kaupsýslumanninn sem býr á Blekkingargötu 2-68 hér í borg, er að hann hefur sent út yfirlýsingu.

Hann tilkynnir okkur öllum að hann hafi ekki brotið lög!

Af því orð manns eins og hans vega afskaplega þungt og engum dettur til hugar að hann færi að ljúga til um svona hluti, þá er þér óhætt að dömpa rannsókninni og snúa þér að alvarlegri málum.

Það er t.d. stöðugt verið að ræna kardimommudropum frá kaupmanninum á horninu.

Ó, er það ekki þín deild?

Okei, en þú getur hent Hannesi Smárasyni í ruslið.

Hann hefur ekkert gert sem fer á svig eða sving við lög.

Sumarkveðjur frá mér.


mbl.is Hannes segist ekki hafa brotið lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hahahahha.... já ég meina - hvað er verið að eltast við svona stálheiðarlega menn?

Hrönn Sigurðardóttir, 24.6.2009 kl. 21:09

2 Smámynd: Sigrún Óskars

gott hjá þér að benda saksóknara á þetta

en by the way heldur einhver að eitthvað komi útúr öllum þessum "rannsóknum" í alvörunni?

Sigrún Óskars, 24.6.2009 kl. 21:28

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú ert góð kona Jenný Anna

Jónína Dúadóttir, 24.6.2009 kl. 21:32

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég hló....ég er rætin....grey karlinn hann Hannes

Sigrún Jónsdóttir, 24.6.2009 kl. 21:53

5 Smámynd: Bergljót Aðalsteinsdóttir

Hvað er í gangi hjá þessum fréttastofum? Í gær fengum við að heyra að Björgúlfur yngri hugsar stöðugt um bankahrunið og býðst til að laða fjárfesta til landsins! Ég spyr bara treystir einhver þessum mönnum? Af hverju er okkur ekki sagt hvað þeir sem sitja á Hrauninu hugsa um?

Bergljót Aðalsteinsdóttir, 24.6.2009 kl. 22:25

6 identicon

Sérstakur saksóknari á bara að fá tvennt: 1) Kindabyssu og 2) 250 skot.

Arngrímur (IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 22:32

7 Smámynd: Dúa

Bara slatta fleiri svona yfirlýsingar frá fólki og við getum lagt embættið niður

Dúa, 24.6.2009 kl. 23:33

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

eins og Dolli sagði í den; „Yfirlýsingin mun gera þig frjálsan.“

Brjánn Guðjónsson, 25.6.2009 kl. 01:35

9 Smámynd: Eygló

Berljót skrifaði óborganlega:  "Af hverju er okkur ekki sagt hvað þeir sem sitja á Hrauninu hugsa um?"

Já, hvað klúðri ætli þeir velti fyrir sér? ...

Skrifið um það frekar en þetta vesen sem BTB man eftir daglega, að sögn.

Eygló, 25.6.2009 kl. 01:44

10 identicon

ekki var tekið mark á útskýringum Lalla Johns- af hverju ættum við frekar að trúa Hannesi Smárasyni ?

zappa (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 02:12

11 identicon

Það er raunar hneyksli að Hannes Smárason skuli ekki sitja inni núna þegar hann er grunaður um svona gífurlega alvarleg efnahagsbrot, upp á milljarða að mér er tjáð ( þarf auðvitað ekki að koma neinum á óvart ). Þarna er augljóslega um mjög einbeittan brotavilja að ræða og allir smákrimmar þjóðarinnar væru auðvitað komnir á bak við lás og slá við slíkar aðstæður. Lögmannafélag Íslands er að opinbera sig þessa dagana með smeðjulegri yfirlýsingu til verndar hvítflibbaglæpamönnum. Við íslendingar höfum mátt þola það allt of lengi að búa við meingallað dómskerfi, þar sem hefur viðgengist að níðast sem mest á smákrimmum á borð við Lalla Johns, á meðan hvítflibbarnir ( oft nátengdir eða með vinatengsl við dómara og lögmenn ) hafa sloppið ótrúlega vel frá hvers kyns glæpastarfsemi.     

Stefán (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.