Leita í fréttum mbl.is

Engin undankomuleið

Það er svo sem ekki mörgu við að bæta um þennan sorglega atburð á Álftanesinu í gær.

En viðbrögð fólks virðast á einn veg.

Skilningur á gjörðinni.

Þetta gerði mig hins vegar verulega sorgmædda.

Vegna tilhugsunarinnar um örvæntinguna, sorgina, reiðina og óttann sem hlýtur að liggja að baki svona aðgerð.

Sumir segja; þetta er bara byrjunin, eins og það hálf hlakki í þeim.

Ég vona svo sannarlega að þeir hafi ekki rétt fyrir sér.

Mér finnst þetta hins vegar vitnisburður um hversu erfitt það er fyrir venjulegt fólk að fóta sig í rústum bankahrunsins.

Þess vegna verða stjórnvöld að hjálpa fólkinu í landinu sem situr nú uppi með reikning útrásarvíkinganna og er jafnvel að missa heimili sín og atvinnu.

Ég varð líka sorgmædd í gær þegar ég horfði á þjóðhátíðarsetninguna á Austurvelli.

Vegna þess að það rann endanlega upp fyrir mér hvar við erum stödd.

...og við virðumst ekki eiga nokkra einustu undankomuleið.


mbl.is Bankinn fékk ekki lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir að við eigum enga undankomuleið, verðum að lifa við það að menn brugðust.
Hvenær er svo hægt að treysta aftur, langt í það.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.6.2009 kl. 10:15

2 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Kaldhæðni: Atvinnuhorfur hjá verktökum og vinnuvélaeigendum fara óðum batnandi...

Jón Bragi Sigurðsson, 18.6.2009 kl. 10:43

3 identicon

Ég skil vel þennan gjörning á Álftanesinu, en ég skil ekki af hverju fólk er ekki búið að ná sér niður á útrásarþjófunum ?!  Þó að þeir séu flestir í felum, þá eiga þeir ekki skilið að sleppa svona vel og óáreittir frá þjóðinni sem þeir féflettu.

Stefán (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 11:20

4 Smámynd: Meinhornið

Stefán, það er bara svo einfalt að útrásarþjófarnir eru í öruggu skjóli hjá sömu tjöllunum og eru að rífa af okkur skinnið.

Meinhornið, 18.6.2009 kl. 12:17

5 identicon

Þetta er það eina sem á að gera gagnvart þessum þjófum (Bankanum) það er búið að fella niður erlenda skuld hjá bankanum en hann heldur áfram og rukkar okkur.  Ég er ekkert sérstaklega á móti útrásarvíkingunum þeir voru snillingar og unnu vinnuna sína vel í þeim skiliningi. En það á að hengja þann sem kvittaði uppá ríkisábyrgð fyrir icesave erlendis það er sökudólgurinn. ég sem þegn þessara þjóðar kvittaði aldrei undir neina ríkisábyrgð og man ekki eftir hvort það hafi verið gerð þjóðaratkvæðagreiðsla með jafn mikilvægt mál og þetta. P.S ég var með 16 mill erlent lán það er nú 50 með vöxtum ég tapa öllu bara út af ´því að ég tók erlent lán. það var uppboð aldið heima og fyrsta boð var 5 mill og ég á sitja uppi með restina. skjaldborg my ass. bara lygi og kostningasvik, setja í lög með að stytta gjaldþrotstíman í 2 ár það á ekki eftir að gerast heldur verður þetta gamla aðferðin, kallin er á fá kennitöluna sína aftur í lag vip endurnýjum bara kröfuna. svart lið maður. aftur skjaldborg var sniðug kostningarlygi til að plata lýðinn :)

Gunnar (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband