Leita í fréttum mbl.is

Gott að búa í Kópavogi - fyrir spillta stjórnmálamenn?

Ég held að svona flestir meðal almennings á Íslandi að minnsta kosti, séu búnir að átta sig á að það eru breyttir tímar á Íslandi.

En stjórnmálamenn, sumir hverjir (helvíti margir reyndar), embættismenn (nokkrir) og sjálftökumenn (allir) eru enn í fílabeinsturni ala 2007 og komast hvergi.

Íhaldið í Kópavogi er enn í 2007-gírnum.

Þeir eru alveg: Ekki hætta Gunnar, plís, haltu áfram að taka okkur í afturendann elsku dúllan.

En afhverju vilja þeir í Sjálfstæðisflokki ekki "missa" Gunnar?

Getur það verið vegna þess að valdabaráttan um sætið hans er óleysanleg?

Eða hræðslan við að missa völd?

Hvorutveggja kannski?

Ésús minn á galeiðunni hvað þeir eiga bágt.

Mér þætti gaman að sjá þá reyna að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist.

Það hefði gengið í fyrrra.

En fjandinn fjarri mér að þeir komist upp með það núna.

Eða hvað?  Kannski er gott að búa í Kópavogi.

Fyrir spillta stjórnmálamenn.

 


mbl.is Vilja ekki að Gunnar hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef að samstarfsmenn Gunnars í bæjarstjórn Kópavogs láta kallinn ekki fjúka núna STRAX, þá eru þeir Ómar og félagar einfaldlega jafn gjörspylltir og Gunnar og öll hans ætt.

Stefán (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 10:17

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Merkilegt, en kannski er þetta þannig að þeir séu allir jafn spilltir.
Ég þakka fyrir að búa huglægt hvergi þar sem spilling er, en ég verð nú samt að taka við áföllunum eins og aðrir, þarf víst að halda lífi.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.6.2009 kl. 10:34

3 identicon

Ómar og restin af þessu liði er auðvitað jafn spillt og Gunnar.  Þeir sem vilja hylma yfir með Gunnari eru auðvitað jafn sekir honum.

Einar (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 10:37

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Það er þó ekki satt, sem þau segja öll hér fyrir ofan, að þeir sem vilja hylma yfir með Gunnari séu jafnsekir og Gunnar sjálfur. 

Eins og það t.d. að vilja láta Ármann Ólafsson Forseta bæjarstjórnar, hægri hönd Gunnars, í öllum málum, taka við bæjarstjóraembættinu. 

  Ármann K.ÓL var sitjandi þingmaður,  er í 3ja sæti í bæjarstjórn flokksins.  Ármann sem Sjálfstæðisflokksmenn höfnuðu í prófkjörinu fyrir Alþingiskosningarnar í apríl.  Honum á nú  að þrýsta í bæjarstjórastólinn með illu eða góðu.  Já, bara með ofbeldi, sama hvað hver segir.  Gunnar og Ármann ráða.

  Ármann K. Ólafsson og hans auglýsingastofa hefur séð um allar auglýsingar og markaðsmál fyrir Gunnar I. Birgisson. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.6.2009 kl. 12:49

5 identicon

Burt með þennan Teflon - húðaða Gunnar Birgisson .

Og ekki líta á Ármann ,hægri hönd hans .Það er mikið að ekki er stungið upp á dóttur Gunnars !

Heiðarlegt fólk er það sem þarf í dag ,sem fyrr .

Kristín (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband