Leita í fréttum mbl.is

Búsáhöldin fram!

Sexhundruðogfimmtíumilljarðar vegna Icesave.

Íslendingar greiða.

Þetta heitir að draga stysta stráið í orðsins örgustu.

Við vorum ekki með en megum borga.

Búsáhöldin fram, er það ekki?

Ég er til.

Helvítis fokking fokk.


mbl.is Engin Icesave-greiðsla í 7 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eru þessir menn búnir að tapa glórunni! Á að taka kreppuna á vísa rað?  Þetta þýðir 10-12 ára algera hörmung hérna. Er þetta prísinn sem Jóhanna ætlar að borga prívat og persónulega út af okkar reikning til að lúta kúgunum, svo hún komist í bandalagið sitt þvert ofan í vilja 75% landsmanna?

Já, nú þarf búsáhöldin fram, ef þess var einhverntíma þörf.  Þetta fólk er gersamlega viti firrt eða senílt, nema að hvort tveggja sé. Það VERÐUR að taka þessa vitleysinga úr umferð.

Menn skulu hafa það hugfast að þessi Evrópusambandsáróður á sér rætur í bæli kleptókratanna fyrir hrun. Jón Ásgeir og allt hans hyski. Svo eru menn eitthvað að bíta í vör með það hverjum þessi Samfylking er að þjóna.  Þvílíkt hórerí!

Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2009 kl. 14:09

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Michael Hudson segir "Default!" Joe Stiglitz segir "Default!" Hundruð annarra hagfræðinga segja það sama. Farið að fordæmi Argentínu og fleiri ríkja. Borgið ekki! Þetta er ekki okkar klúður heldur örfárra glæpahunda, sem enn ganga lausir. Eigum við ekki bara að taka á okkur að sitja inni fyrir hina krimmana, svo það verði algerlega frítt spil með restina af lýðveldinu sáluga. 

Væri möguleiki á að benda þeim á að bera þetta undir þjóðina? Það var ekkert minnst á þetta í kosningum. Um þetta var ekki kosið og ekki um Evrópubandalagsinngöngu heldur. Þetta er hreint og klárt valdarán undir fölsku flaggi.

Til helvítins með þetta lið. Ef þetta verður gert, þá er ég farinn úr landi. Hverjir eru með?

Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2009 kl. 14:18

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Og gamli komminn Svavar Gestsson slær þennan líka fína díl. Hvar eru söngvarnir um frjálsa þjóð núna? Lýðfrelsismöntrur Böðvars Guðmundsonar, sem hann söng svo æðar í gagnaugum brustu. Helvítins föðurlandssvikarar og hryggleysingjar, þegar á reynir. Þetta eru hættulegustu menn landsins.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2009 kl. 14:24

4 identicon

Þetta kaustu Jenný

Eiríkur (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 14:33

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Fyrirgefðu vaðalinn, en ég er svolítið brjálaður yfir þessu.  Einhver reikningshaus, gæti kannski framreiknað heildarkostnaðinn miðað við þessar 35 millur í vexti á ári. Þetta ætti að komast eitthvað vel á annað þúsund milljarða, sem litlu skinnin á bangsaborg þurfa að borga fyrir Björgúlf og co.

Hér eru 1000 milljarðar í samhengi, ef það er að velkjast fyrir einhverjum.

Jón Steinar Ragnarsson, 5.6.2009 kl. 14:54

6 Smámynd: Guðmundur Bogason

Alger vitfirring !!! Jóhanna ætlar semsagt að láta okkur borga skuldir sem við stofnuðum ekki til. 

Módelið er þetta: Lúta í einu og öllu vilja AGS og kröfuhafa sem tóku áhættu með því að lána kolvitlausum bankamönnum peninga sem þeir vissu að þeir gætu aldrei borgað.  Tilgangurinn... svo að við séum í sparifötunum þegar við sækjum um inngöngu í ESB, stagbættum og slitnum sparifötum sem vart hanga saman.  Heldur Jóhanna að ESB sjái ekki í gegnum þetta.  Alger veruleika firring 

Nýju ríkisbankarnir færa skuldir frá gömlu bönkunum yfir í þá nýju til að geta sagt þessum sömu útlendingum að þeir eigi svo og svo mikið í útistandandi skuldum - en hver skuldar?  Íslenskir skuldarar sem ramba á barmi gjaldþrots.   

Guðmundur Bogason, 5.6.2009 kl. 14:58

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Róleg gott fólk.  Ekki gleyma því að það er ekki núverandi ríksstjórn sem gerði Lansbankaglæponunum fært að selja fólki í Bretlandi þá hugmynd að það væri arðvænlegt að leggja inn peninga í Icesave.

Hins vegar halda þeir um samningsstjórnvölinn núna og ég er algjörlega á móti því að það eigi að semja um þetta eintútre án þess að athuga lagalega skyldu okkar til þess.

Stefán J: Mæl þú heill.

Svo er ég að hugsa um þau stjórnvöld sem ekki létu hvarfla að sér að útrásarglæponanirnir gætu komið þjóðinni í þessa aðstöðu, mér finnst það fólk vera sekt um landráð hvorki meira né minna.

Þetta er skelfilegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2009 kl. 15:06

8 identicon

Verða fyrrum Landsbankamennirnir Kjartan Gunnars. Bjöggarnir, Halldór J. Sigurjón digri og aðrir rugludallar sem stjórnuðu þessari geðveiki sem kallast Icesave, ekki látnir bera neina ábyrgð á málinu ???

Stefán (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 15:31

9 Smámynd: Sævar Einarsson

Það sem ég skil ekki er að hvernig er hægt að semja um eitthvað sem er ekki á ábyrgð Íslands, Bretar settu jú hryðjuverkalög á Landsbankann, frystu alla eigur og yfirtóku bankann í Bretlandi og þá hefði ég haldið að ábyrgðin væri þeirra þar sem þetta er jú eignarupptaka Breta á bankanum og það á við bæði skuldir og eignir, alveg furðulegt að bjóðast til að borga eitthvað sem okkur varðar ekkert um.

Sævar Einarsson, 5.6.2009 kl. 15:55

10 Smámynd: Finnur Bárðarson

Svei mér þá ef maður fari bara ekki að fordæmi kreppukallsins, ég fer að missa móðinn. Úff

Finnur Bárðarson, 5.6.2009 kl. 16:03

11 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Gleymum ekki Björgólfi Thor sem nú lifir í vellystingum í BRETLANDI umvafin skjaldborg íslenskra yfirvalda.

Það er búið að skuldbinda þjóðina fyrir óendanlegu kúluláni (tæplega 1000 milljörðum með vöxtum næstu 7 ár) allt annað er í óvissu.

Ég tek undir með Jenný, nú eru það búsáhöldin...

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.6.2009 kl. 16:16

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Slakið nú aðeins á,lesið nú hvernig í þessu liggur og sparið stóru orðin, það virðast nú fæstir hafa gert, því þetta eru enn drög ekki ávkeðin og undirritaðir samningar.En ekki er hægt að breyta eðli fólks, þeir sem þrífast á upphrópunum, æsingi og ofstæki í einskis þágu, verða alltaf á ferli, vþí miður.

Lætin í alþingi snérust svo minnst um innihald draganna, heldur þá staðreynd að enn einu sinni kemur upp leki í stjórnkerfinu, meðan þingheimur er rígbundin trúnaði og má ekki ræða efnislega um drögin.

Magnús Geir Guðmundsson, 5.6.2009 kl. 16:35

13 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mér dettur bara ekki í hug Magnús að spara stór orð. Látum þá sem sköpuðu þennan hrylling sem og þá sem leyfðu honum að viðgangast, borga allt saman.

Finnur Bárðarson, 5.6.2009 kl. 16:39

14 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Jóhanna forsætisráðsfrú fullyrðir að eignir gamla Landsbankans nái að dekka þetta 95%. Trúir enginn Jóhönnu lengur? - Það er af sem áður var - segjum fyrir svona mánuði síðan.

Svanur Gísli Þorkelsson, 5.6.2009 kl. 17:56

15 Smámynd: Sævar Einarsson

Magnús Geir Guðmundsson, maður þarf ekki að kunna að kljúfa atóm til að skilja það að ef ríki tekur eigur annarra eignarnámi þá fylgir með allur pakkinn svo ábyrgð okkar er enginn og svo ætlar Bretar að grenja í okkur að borga þær skuldir og eignir sem þeir tóku eignarnámi, halló Hafnafjörður ... maður tryggir ekki eftir á stendur einhverstaðar, þetta eru þeirra afglöp svo þeir geta étið það sem úti frýs og svo skulda þeir okkur ca 3200 milljarða fyrir að hafa rakkað þjóðina niður á alþjóðagrundvelli með setningu hryðjuverkalaga og það á herlaust land(þeir eru kannski ennþá hræddir við Landhelgisgæsluna eftir þorskastríðið?). Það er alger aumingjaháttur, getuleysisgangur og gunguháttur í þessari ríkisstjórn að draga ekki Bretland fyrir alþjóðlega dómstóla fyrir þann gjörning, sleikjuhátturinn og ESB ljósið byrgir SF draslinu algerlega alla sýn.

Sævar Einarsson, 5.6.2009 kl. 18:18

16 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

jæja. búinn að taka fram búsáhöldin, tappatogarann og glösin. nú vantar bara búsið. annars geri ég byltingu!

Brjánn Guðjónsson, 5.6.2009 kl. 18:31

17 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Held að það væri best að fá mykjudreifara og halda til þings á þeim,
þeir sem eru með búsáhöldin, rekuna, hvíslarnar og allt annar fylgi eftir
Til fjandans með þessa bjána

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.6.2009 kl. 18:36

18 Smámynd: Óskar Þorkelsson

enginn hlustar á Svan .. því miður.

Óskar Þorkelsson, 5.6.2009 kl. 19:36

19 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jú, ég!

Átti ekki við þig sérstaklega Finnur.

Brjánn spausamur, eins og hann á kyn til ef mér skjátlast ekki!?

Annars leiðinlegt að heyra í Þór frá Borgarahreyfingunni í Kastljósinu í kvöld, er svei mér bara farin að hljóma eins og sjóaður tækifærissinnaður pólitíkus!

Magnús Geir Guðmundsson, 5.6.2009 kl. 20:49

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

MG:Sammála með Þór.  Sorglega stór breyting á skömmum tíma.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2009 kl. 21:30

21 identicon

Sævarinn:

Hef það frá lögfróðum mönnum sem hafa kynnt sér þessi mál að ástæða þess að við erum ekki búin að draga Breta fyrir dóm sé sú að við getum það ekki. Ástæðan - það er ekki til sameiginlegur vettvangur fyrir slíkt. Ef við værum í ESB þá gætum við farið með mál okkar fyrir Evrópudómstólinn en þar sem við erum ekki í ESB höfum við ekki aðgang. Og alþjóðaréttur kveður á um að ef það er ekki sameiginlegur vettvangur (dómstóll) sem menn hafa komið sér saman um að skeri úr um deiluefni þá verði menn að vera sammála um að leita annað. Auðvitað vilja Bretar ekkert leita neitt enda hafa þeir engu að tapa. Það er það sorglega í málinu. Við værum með unnið mál í höndunum ef við hefðum dómstól að leita til, en svo er ekki og því sitjum við uppi í þessari ömurlegu stöðu. Mér skilst það hafi verið reynt að leita til Alþjóðadómstólsins með þetta en Bretar hafa ekki áhuga sem fyrr segir og því er málið fallið um sjálft sig.

Hólmfríður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 22:12

22 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það hefur verið margsagt að eignir landsbankans eru alger óvissuþáttur og verðlausar í dag , en gætu hugsanlega vaxið. Minna ber á að eignir landsbankans eru eignir ríkissins, svo það er alveg sama hvernig menn reyna að selja þessa landráðahugmynd. Þetta er allt úr okkar vasa!  Er fólk ekki með réttu ráði?

Einn bendir kurteyslega á hverjum þetta er að kenna. Hvaða andskotans máli skiptir það nú? Er einhver huggun í að vita það.

Jeeeesh!

Jón Steinar Ragnarsson, 6.6.2009 kl. 03:10

23 Smámynd: Fríða Eyland

Sammála

þetta er hætt að vra fyndið

Fríða Eyland, 6.6.2009 kl. 12:53

24 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Fyrst eignir Landsbankans í Bretlandi eru metnar á um 95% af Icesave skuldinni finnst mér að þeir geti bara hirt þær og þetta komi svo út á sléttu. 5% afföll eru ekki það mikið.

Málið dautt.

Jón Á Grétarsson, 6.6.2009 kl. 13:38

25 Smámynd: Sævar Einarsson

Nákvæmlega Jón Á Grétarsson er ekki verið að selja skuldabréf til vogunarsjóða með allt að 95% afslætti svo um hvað er verið að semja ? þeir segjast geta fengið 95% af þessu, það er svoldið betra en að fá 5%

Sævar Einarsson, 6.6.2009 kl. 14:37

26 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Stefán, ég sé lítinn mun á pólítikusum sem frömdu afglöp með því að gæta ekki betur að því hvað fjármálakerfið var að gera og flutu steinsofandi í afneytun fram af björgum og núverandi stjórn sem með opin augun ætla að ganga að þessu og stökkva fram af hömrum. Hvers eigum við íslendingar að gjalda? Eigum við bara stjórnmálamenn sem verða snarvitlausir um leið og þeir komast í stjórn?

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 6.6.2009 kl. 17:37

27 Smámynd: Bara Steini

Fólk er handtekið í DAG 6 juni fyrir ad nappa ser i matinn.... ekkert skeður hja þeim.......

Bara Steini, 6.6.2009 kl. 20:40

28 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Eruð þið alveg að tapa glórunni?

Jenný mín - mín kæra bloggvinkona sem ég met mikils og hef dálæti á: Andaðu með nefinu, kona. 

Þeir sem blogga bera líka ábyrgð á umræðunni, og það er ekki ábyrgt að tala þjóðina upp í hysteríu yfir þessum Ice-save samningi.

Um samninginn sjálfan vil ég segja það sem lesa má hér : http://olinathorv.blog.is/blog/olinathorv/entry/891723/ 

Að öðru leyti:

1) Við erum stödd í þrotabúi Sjálfstæðisflokksins. Það er staðreynd númer eitt.

2) Ekkert okkar bað um að vera í þessum sporum.

3) Þau stjórnvöld sem nú sitja fengu það hlutverk að sópa upp eftir eyðilegginguna. Það gera þau til að bjarga þjóðinni - ekki til þess að koma henni á vonarvöl.

 

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 6.6.2009 kl. 21:06

29 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Ólína

Ég rek fyrirtæki og er nokkuð vanur að gera samninga.  Ég er sjálfur með lán á helmingi betri kjörum en þetta. Stýrivextir í Bretlandi eru 1%

Það myndi ekki nokkrum heilvita manni láta sér detta svona samningur í hug og hvað þá skrifa undir hann.  Manni dettur í hug að það hafi verið 5 ára börn að semja fyrir okkur

Það er ekki hægt að verja þetta. gerðu sjálfri þér að ekki.

ef þetta er ekki stoppað verður hér örbyrgð

Alþingismenn

Neitið að borga þetta og þjóðin mun vaða eld og brennistein með ykkur því þá er von

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 7.6.2009 kl. 01:54

30 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gunnar Ásgeir.

Í samningnum felst að við getum hvenær sem er fengið að greiða þetta lán upp - og það getum við ef okkur býðst annað hagstæðara lán á þeim hagstæðu kjörum sem þú ert hér að tala um. 

Enginn samningur er undirritaður fyrir hönd þjóðarinnar nema með fyrirvara um samþykki Alþingis. Það er því mikill misskilningur að hér sé verið að skuldbinda þjóðina án samráðs við þingið. Þetta mál verður að sjálfsögðu til umfjöllunar og endanlegrar staðfestingar þar.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 7.6.2009 kl. 10:57

31 Smámynd: halkatla

nei nei, ekki búsáhöldin!!! Frekar eitthvað bitastæðara

halkatla, 7.6.2009 kl. 14:22

32 identicon

jams, Helvítis fokking fokk.

sandkassi (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 23:36

33 Smámynd: Mofi

Það er hlutverk banka að fá fólk til að leggja peninga inn í bankann svo út frá því sjónarmiði þá var Icesave. Það sem er slæmt er að lánin sem veitt voru út á þetta virðast hafa verið ótraust og við getum ekki innheimt nema hluta af þeim.

Það sem er svo hræðilegt við þessa samninga er að það er eins og við tökum allan skellinn. Honum er ekki dreift á einn eða neinn, bara íslenska þjóðin.  Hvers konar niðurstaða er það?  Í mínum augum var það versta mögulega niðurstaða áður en menn settust að samningarborðunum og það er niðurstaðan sem þeir náðu að semja um. 

Kannski er full þörf á að byrja að berja aftur potta og pönnur fyrir framan alþingi aftur áður en alþingi gerir þetta að veruleika.

Mofi, 8.6.2009 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband