Leita í fréttum mbl.is

Lausnamiðað uppgjör á kærleiks

 kreisí

Er ekki ófrávíkjanlegt, innmúrað og öruggt að það sé komið sumar?

Fyrsti júní og svona, það hlýtur að vera.

Það kallar á framkvæmdir.

Ég hef bloggað um nokkuð nýlega uppkomna andúð mína á gasgrillum en eins og þið vitið þá skildi ég ferlíki kærleiksheimilisins eftir á svölum þegar við fluttum í haust.

Fannst ekkert útivistar við að steikja á gaseldavél.

Þess vegna ætlum við (lesist ég) húsband að fjárfesta í nostalgíunni og kolagrilli.

Málið er að það brjótast ekki beinlínis út fagnaðarlæti hjá húsbandi við svona framkvæmdir en hann lætur sig hafa þetta með töluverðum harmkvælum.

Alveg: Þetta er svo mikið vesen og stúss, eldum inni (lesist elda þú inni).

Þetta kallar á villtar samræður, enda málið alvarlegt og getur stofnað heiminum í hættu ef ekki fæst lausn og það fyrir sólarlag.

Samtal í morgun hvar ég sat við tölvuna inni í eldhúsi, hann var inni í stofu eitthvað að bauka útspilaði sig á eftirfarandi hátt (Strindberg hvað?):

Ég: Elskan, ég er búin að finna kolagrill handa okkur.  Kostar skít og ingenting.

Hann: Hmrpf (heyrði ég greinilega).

Ég: Hér er mynd komdu og sjáðu.

Hann (svarar með söng, hátt): When I wake up early in the morgning, lalalalala, I´m still yawning.

Ég: Hættu að láta eins og bjáni og komdu aðeins (finnst þetta stönt ekki fyndið).

Hann (hærra): Please don´t wake me, I´m only drííííííming.

Ég (rýk á fætur og segi eftirfarandi dálítið hátt svo gestir í Laugardalslaug fái líka að vera með í lausnamiðuðum uppgjörum á kærleiks):  Alveg er þetta merkilegt að þú skulir geta látið svona Einar.  Þú ert eins og staður asni í hvert skipti sem ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt.  Má ekki hafa gaman á sumrin?  Eigum við að loka okkur inni fram á haust?  Þú villt kannski rífa gleðina úr brjósti mér?  Ha?  Þú vilt kannski borða SVIÐ í allt sumar?

Hann (lítur upp, eitt spurningarmerki í framan): Ha?  Það þýðir ekkert að tala við mig þegar ég er með heyrnartólin i eyrunum!  Hvað varstu að segja?

Ég: Ekkert sko, er bara á leiðinni út að reykja.

Sjitt

En þetta er lagið sem hann söng.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

...vona að fjárfest verði í kolagrillinu í dag

Sigrún Jónsdóttir, 1.6.2009 kl. 13:44

2 Smámynd: Ragnheiður

hahaha LOL kallanginn...

Ragnheiður , 1.6.2009 kl. 14:08

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 ..Í Danmörku grilla menn aðeins á kolum (helst á Weber) og telja gasið algjört húmbúkk!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 1.6.2009 kl. 14:46

4 Smámynd: Garún

ahahaha Brjálæðislega fyndið!    Right back at you!   Æðri máttur hlýtur að hafa bilast úr hlátri yfir þessu litla viljastunti!!!
Einu sinni ætlaði ég að fara að rífast við mann í hjálpræðishernum!   Ég gekk uppað honum og sagði frekar pirruð "hæ hvað segir þú við samkynhneigð" og svo setti ég mig í stellingar....Maðurinn leit á mig björtum augum, brosti og sagði með norskum hreim "ég segi góðan daginn".  Og þar með fór ég út að reykja með skottið á milli lappanna og klinklaus! 

Garún, 1.6.2009 kl. 15:30

5 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Góður þessi !!!!!  Þú átt nú skilið kolagrill fyrir þennan, ekki spurning.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.6.2009 kl. 15:45

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úps, bara snilld. Ég hló upphátt að þér, ormurinn yðar!

Guðríður Haraldsdóttir, 1.6.2009 kl. 16:19

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ekki að spyrja að því, en í alvöru þessir karlar eru stundum svolítið skrítnir þó eigi hafi þitt húsband verið það nú, minn er úti á lóð búin að vera þar síðan kl tvö að bjástra við sláttuvél sem konurnar í lengjunni dæmdu ónýta í fyrra, en hann ætlaði að bjarga henni frá bráðum bara
það verður gaman að vita hversu oft hann ætlar að setja hana í gang,
hún drepur nefnilega alltaf á sér, ekki að marka minn er vestfirðingur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.6.2009 kl. 16:51

8 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Heheheh hann er bara krútt hann Einar þinn.  Hann hefur vonandi ekki bætt við dream on, þá hefðir þú klikkast alveg heheheh...  ég verð að halda með honum núna, kolagrill hvað???????

Ía Jóhannsdóttir, 1.6.2009 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband