Leita í fréttum mbl.is

Framsókn, Framsókn, dæs

Það er verið að ræða þingsályktunartillöguna um inngöngu í ESB í þinginu.

Fátt kemur á óvart.

Sjálfstæðismenn í skotgröfunum en eru þó með skoðun á málinu þó það megi segja að djúpt sé á henni.

Mr. Bertelsson sló í gegn hjá mér.  Ég er að verða ofboðslega höll undir Borgarahreyfinguna, er farin að hafa áhyggjur af þessu svei mér þá. Hvað um það, Þráinn kom sá og sigraði.

En ég hef áhyggjur af Framsókn sem situr uppi með prótótýpu manns sem líður af athyglissýki, málefnafátækt og lýðskrumsgreddu á formannsstóli.

Það er sorglegt að sjá þessi asnalæti í manninum sem hljóta að stafa af biturð vegna útkomu í kosningum.

Sigmundur Davíð; ekki láta þjóðina líða fyrir biturðina, dílaðu við þetta.

SD vildi ALLA ráðherra í salinn til að hlusta á fagnaðarerindið sem hann flutti, sem einkenndist mest af dylgjum og útúrsnúningum.

Sama með (addna) Eygló Harðardóttur (addna) sem virðist líta á sig sem sjálfskipaðan skemmileggjara málefnalegrar umræðu um þetta stóra mál sem önnur.

Mér er ekki hlátur í hug og ég vil beina því til allra þingmanna að hafa í huga að það er þjóðin sem mun segja af eða á varðandi inngöngu í ESB.

Haldið málinu ekki í gíslingu með málfundaæfingum og skítkasti.

Afgreiðið málið í nefnd.

Við höfum ekki efni á þessu karpi.

Við viljum fá að vita hvað er í boði.

Arg.


mbl.is Æði margir ráðherrar í húsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Daginn,

Forljótt er að heyra, en algjörlega fyrirséð.  Tel enn að það hafi veri misráðið hjá S og VG að kippa ekki Borgarahreyfingunni með í stjórn.

Já margir eru misvitrir nafna, og takk fyrir alvöru þingfréttir.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 28.5.2009 kl. 14:33

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála hverju orði.

Sigrún Jónsdóttir, 28.5.2009 kl. 15:31

3 identicon

Þú ert greinilega búinn að gleyma hvernig Steingrímur Joð og Ögmundur hegðuðu sér í stjórnarandstöðunni.  Það fer svo fyrir brjóstið á ykkur stuðningsfólki stjórnarinnar að Framsókn skuli ekki spila sama sönginn.  Ég held að Sigmundur sé bara ánægður með úrkomu síns flokks í kosningunum bætti við sig tveimur þingsætum.  Ég ætla rétt að vona að það fari nú ekki svo að Össur fái umboð án skilyrða til að fara með samningsumboð fyrir hönd þjóðarinnar við ESB.  Það yrði ekki gæfulegt. 

Petur (IP-tala skráð) 28.5.2009 kl. 15:32

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

"Orðið á götunni er að málflutningur á hinu háa Alþingi hafi náð nýjum hæðum með þessum orðum:

“Ég geri athugasemd við að forseti skuli gera athugasemd við að við gerum athugasemd við að forseti geri athugasemd við að við gerum athugasemd við fundarstjórn forseta.”

Svo mælti einn þingmanna framsóknarflokksins í umræðum um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu."

Heyrðirðu þetta nokkuð í morgun?  

Lára Hanna Einarsdóttir, 28.5.2009 kl. 15:45

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

LH: Ég heyrði þetta en þú gleymir að bæta við (addna, addna, addna) en þetta var Eygló Harðardóttir.

Pétur: Farðu og reyndu að hlaupa úr þér sorgina.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.5.2009 kl. 16:08

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég heyrði þetta, og ég hélt að sjónvarpið hefði bilað, rauk til og sá hvers kyns var, þá var hún enn að láta ljós sitt skína,  þessi sem er alltaf að reyna að vera fyndin, systir hans Bjarna Harðar! 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.5.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985712

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband